Síminn tapar á sl. ári.

xxxx Síminn tapaði rúmum 3,5 miljarði króna í fyrra. Forsvarsmenn Símans segja skýringuna vera gengistap. Þrátt fyrir tap upp á 3,5 miljarð voru forsvarsmenn félagsins brattir á aðalfundinum í dag. Sala Símans og dótturfélaga hefur hækkað og heildareignir hafa aukist. Framundan er meðal annars uppsetning búnaðar fyrir þriðju kynslóð farsíma, og er stefnt að því að kerfið verði komið í fullan rekstur undir lok sumars. xxxx RUV í dag.

Jæja, þá höfum við enn eina staðfestingu á að einkarekstur er ekki endilega betri rekstur. Er það líklegar ef einstaklingur byggir upp sitt fyrirtæki. Eins og Húsasmiðjuna forðum daga. En þegar verið er að kaupa og selja fyrirtækin, þá eru allt önnur prinsipp í gangi.

Er tími kominn á að þjóðnýta fiskimiðin? Joyful

Rugl er þetta!

Þó að markaðurinn fari úr 12,3 í 12,1 þá er mér nú bara persónulega slétt skítsama. Þetta eru ekki-fréttir, nema fyrir bilaða braskara með hland fyrir hjarta ef "markaðurinn", að því er virðist aðal vinur þeirra, hækkar eða lækkar.

Eiga þeir sem halda að þetta bylti lífi þeirra við einhver persónuleg vandamál að stríða, s.s. að vera heilaþvegnir í að halda að peningar séu það eina sem máli skiptir? Ég hef þekkt marga sem eru yfir sig stressaðir með bípper ef verðbréfin þeirra kingcrims-courthækka eða lækka. Svo eru þeir allann daginn að kippast til við að heyra bíppið og hringja sveittir og kexruglaðir í sölukallinn. Þetta truflar vinnu þeirra og er klárt dæmi um siðferðilega hnignun í þjóðfélaginu. Rétt eins og dópið fór illa með marga á hippaárunum. Þá er heilbrigðara fyrir svona flest fólk að bara vinna sína vinnu með gufuna í bakgrunni, standa uppi á stól og syngja, reyna að minnka svoldið þessa óheilbrigðu samkeppni við alla vini sína og frekar vilja fólki vel.

Vandamál Bandaríkjanna eru margþætt, m.a. að þó hlutabréfamarkaðir fari upp eins og 1995-2000, þá hefur fátækt samt aukist. Bara lesa sig til um þessi mál. Þeir á botninum þéna minna en fyrir "uppsveifluna." Millistétt er smátt og smátt að færast á botninn. Þá vaknar sú spurning hvaða máli markaðsspilavítið skiptir, þegar það svo augljóslega þjónar einungis ákveðnum valdatoppi.

Vandamálið er ekki bara að Íslendingar upp til hópa geta misst húsið til bankanna í einhverjum öldudal, það er einkenni á sjálfu vandamálinu. Vandamálið sjálft er hvers vegna kerfinu var breytt svo beisikk hlutur eins og húsnæði er orðið að fjárhættuspili á uppsprengdu verði fyrir venjulegt fólk. Hvers vegna var verið að breyta kerfi sem virkaði, bara í nafni asnalegra peningatrúarbragða frá Texas? Kerfi sem breytir 10 milljóna íbúð í 50 milljóna íbúð er AUGLJÓSLEGA ekki að virka. Nema fyrir kexruglaða braskara. Því launin hækka ekki nema smá brot af þessu og þ.a.l. hefur fólk það ekkert betra.

Það er nefnilega mun skemmtilegra að vera til ef maður þarf ekki að hafa áhyggjur af svona stjúpid hlutum eins og ef markaðurinn fer upp um eitt prósent einhvers staðar úti í löndum að geta misst einföldustu eigurnar sínar bara ef braskaratölur fara upp eða niður.

Jæja, nú ætla ég að fá mér eitthvað róandi og fara að vinna. Tounge


mbl.is Óróleiki á bandaríska húsnæðislánamarkaðnum hefur víðtæk áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banana-hugsanaháttur hjá ráðherra?

"Árni Mathiesen segir það hinsvegar vonbrigði að veitingahúsin séu ekki að skila virðisaukaskattslækkuninni inn í verðlag á veitingum. "


Mig grunar að menn séu að rugla bananasölum annars vegar, og matþjónustu hins vegar. Matarinnkaup á veitingahúsi er ekki nema takmarkaður hluti af kostnaði við rekstur veitingahúss. Það er ekki eins og banani fari á diskinn eins og hann var keyptur inn, í hýðinu og alles. "Sjöprósent afslátt, þjófur!!" hrópar maðurinn með opna munninn.

arnimattMat þarf að elda, stilla upp á disk, bera fram og þjóna til borðs, bíða eftir að mathákarnir hámi draslið í sig og svo í lokin taka diskana og þvo þá upp og stilla upp fyrir næsta sett. Ekki gleyma að þrífa líka borðið og allt sem tilheyrir matreiðslunni.

Þessi samanburður við matvörubúðir er því út í hött. Veitingahús lækka varla verðið sem þessu nemur, nema kannski 2% plús mínus þegar upp er staðið, enda mun meiri kostnaður í launum og fíniríheitum tengdum þjónustunni. Matvörubúð þarf varla meira en pláss fyrir stálhillur, búðarkerrur og búðarkassa, þar sem kúnninn hjálpar sér algerlega sjálfur.

Sko mister fjármálaráðherra á nú að geta sett upp svona einfaldar forsendur sjálfur áður en hann fer að lýsa vonbrigðum.

Hef tvær alvarlegri athugasemdir við þetta mál allt:

1. Hvers vegna lækkar sælgæti og óhollur matur svona miklu meira en hollur matur? Hverjum er verið að þjóna? Varla bættri/fyrirbyggjandi heilsugæslu?

2. Hvernig fer ríkið að ná endum saman þegar svona mikið minna fer í ríkiskassann? Hvað kemur í staðinn og hvað missa þjóðfélagsþegnar fyrir vikið? Minni heilsugæslu? Verri skóla? Hvað gefur?

Bon apetit.


mbl.is Fjármálaráðherra: Vonbrigði að veitingahúsin hafi ekki lækkað verð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld. Allir í strætó, takk fyrir.

KONA bakkar á andskotans trjáhríslu. Mynd 423092

Stúlkan hefði getað verið þú eða ég. Allavega styður þetta þá teóríu að fleiri ættu að notfæra sér strætó. Það getur verið leiðigjarnt að finna bílastæði og svo getur margt skeð á leiðinni. Sparar vandræði.

Af hverju segja að konur geti ekki keyrt?

kopav-VITLEYSINGURMinni á svipað atvik í Kópavogsgjánni fyrir 1-2 árum síðan. Það var jú KARLMAÐUR sem keyrði á fullu á vörubíl með pallinn uppi. Svo festist vörubíllinn þegar KARLMAÐURINN klessti á brúnna og KARLMAÐURINN gat hvorki keyrt fram né aftur. Engin kona þar á ferð.


mbl.is Bakkað yfir tré á Skólavörðustíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er að kýla á hafnargerðina.

Hafnargerð í Bakkafjöru.

Herjólfsleiðin er alger hörmung, tímafrek og yfir langt og úfið haf að fara. Herjólfur er auðvitað mikill samgönguþröskuldur fyrir eyjar. En það eru rétt um 5km í land úr eyjum og svifnökkvi færi þetta á örfáum mínútum.

Loksins kæmist maður til eyja án þess að taka hálfann eða heilann dag bara til að ferðast.

Tal um göng er tal um mjög dýra framkvæmd fyrir lítið byggðarlag. Þar til gangagerð hefur náð hagkvæmni er Bakkafjöruhöfn góður, auðveldur og ódýr kostur sem ætti að vera frekar einfalt mál miðað við getu til hafnargerðar á landinu.

Hef skrifað svoldið um þetta á Málefnum.com en það er furðulegt að þessi höfn hafi ekki verið gerð fyrir löngu síðan. Ef þetta gengur upp, þá segi ég bara til hamingju Vestmannaeyjingar.


mbl.is Telja gerð hafnar í Bakkafjöru vel mögulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlægileg Las Vegas-forsjárhyggja.

Málið er auðvitað að auðlindaskiptingin eins og hún stendur í dag gengur þvert á rétt einstaklinga í sjávarplássum víðs vegar um landið. Menn sem vilja fara að fiska þurfa að greiða himinhátt verð áður en fiskurinn er veiddur af því braskarar fá forgangsrétt fram yfir alla. Af hverju eru dellingar að verja rétt freks og yfirgangsmikils minnihlutahóps fram yfir rétt margfalt fleirri einstaklinga um land allt? Þetta bara gengur ekki upp.

Þessir jólasveinar í kjallaranum á Háaleitisbraut 1 gefa oft frá sér svipaðar yfirlýsingar, svona eins og þegar Páfinn segir það glæp gegn Guði að nota smokka. Eða þegar Páfi sagði jörðina ekkert vera hnöttótta. Fyrirsjáanlegt blaður og forsjárhyggja komin beint frá bröskurum í Las Vegas. Það er nefnilega síst ríkið sem er með forsjárhyggju, heldur áhangendur peningaræðisins, og þeir eru jú líka óvinir lýðræðisins þegar upp er staðið.salesman

Þessi er líka svoldið fyndinn frasi: "Þjóðnýting hafi hvarvetna leitt til sóunar og lakari lífskjara." Sko, ef ekki væri fyrir ríkið sem sterkt afl og tól fyrir landsmenn, þá væru Íslendingar mjög misskipt þjóðfélag. Með ríkið sem skipuleggjanda hefur verið lagður hringvegur, hafnir byggðar og ýmsir flugvellir, skólakerfi sem við megum sannarlega vera stolt af, nemendir sendir um heim allann til að mennta sig, spítalar í háum kaliber og heilbrigðisþjónusta sem fæstir vilja sjá af. Bara svona til að nefna sumt sem tekist hefur með þessu "hræðilega ríki." Sambland ríkisins og fyrirtækja og einstaklingsdugnaðar hefur reynst bara ágætlega, enda Ísland komið með velferðarþjóðfélag í kringum 1970-1980. Langt fyrir daga þessarar einkavæðingardellu.

Það er erfitt að kyngja þessum trúaröfgarfrösum að ríkið sé einhvern veginn þetta vonda og illa afl. Enda eru þessir óvinir ríkisins í raun óvinir lýðræðis Íslands. Hef búið í USA í rúm 23 ár og djö maður, margir Íslendingar vita ekki hvað þeir hafa það gott, einmitt vegna sterks ríkis og dugmikilla eintaklinga. Stundum finnst mér eins og andstæðingar lýðræðisins og ríkisins séu svona eins og tímabundið afvegaleiddir gelgjukrakkar sem halda foreldra sína svo vonda, án þess að sjá jákvæðu hliðarnar fyrr en þeir eignast sjálfir krakka.


mbl.is SUS andvígt auðlindaákvæði í stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningasóun.

Ég hef áður bloggað um þessa brú. Ég er alfarið þeirrar skoðunar að Selfoss fái meira út úr umferð í gegnum bæinn en að nýjar keðjubúllur opni við veginn fjærri kjarna Selfoss. Þegar vegurinn verður fluttur úr Selfossi mun bærinn dofna til muna og slatti af mannlífi bæjarins dofna. Það er nefnilega til hagsbóta fyrir Selfoss að vegurinn liggur í gegn, þá tínast til kúnnar sem í framtíðinni munu bara keyra framhjá á 90km/h norðan við bæinn. Enda er þetta grundvallaratriði í borgarskipulagi:

Byggð myndast umhverfis aðal umferðaræðar. Svo þegar "framfarir" eiga sér stað, er lögð hraðbraut svoldinn spotta frá miðbæjarkjarnanum. Miðbærinn deyr drottni sínum  og við hraðbrautina þrífast í staðinn keðjubúllur sem enginn í bænum á neitt í. Þetta má sjá víðs vegar um heiminn, m.a. í smábæ í New York fylki þar sem ég á smá landskika. Þar var einmitt svona smábær sem svo dó þegar aðalleiðin var lögð 1km fyrir utan. Í dag er fyrrum miðbærinn í niðurníðslu og flestar byggingar horfnar, en eftir eru grasi grónar gangstéttir. Ég er ekki að segja að sama muni verða um Selfoss, en við sjáum að svona pláss þrífst að töluverðu leyti á viðskiptum ferðalanga sem keyra í gegn. Svona eins og Vík í Mýrdal og flestir staðir á landinu gerðu áður en vegir voru lagðir langt í burtu til að stytta leiðir um einhverja metra.

Er ekki hægt að nota peningana í eitthvað þarfara og haldmeira? Til dæmis að koma í farið betri almenningssamgöngum, góða stoppistöð í miðbæ Selfoss sem miðpunkt strætó í Reykjavík og um Suðurlandsbyggðarkjarnana. Þetta myndi styrkja miðbæinn á Selfossi.


mbl.is Rætt um að flýta nýrri Ölfusárbrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt ákvörðun.

Skógrækt ríkisins hefur kært til lögreglu framkvæmdir í Heiðmörk

Þó að menn geri mistök og allt kannski í voða gúddí í svona baktjaldamakki milli vina og þannig, þá held ég samt að þessi ákvörðun að kæra sé bara nauðsynleg. Að kæra ekki myndi sýna fordæmið að það sé hægt að komast upp með svona spjöll. Náttúruvernd er mjög mikilvægur þáttur, enda mikið af kennileitum borgarinnar umturnað með vanhugsun jarðýtukallsins á kontórnum. Rauðhólar, Geldingarneseiðið ofl. ofl. sem fólk pælir ekki í fyrr en of seint er í rassinn gripið og nátturunni umturnað fyrir skammsýni og tröllaskapar.

Næsta skref er að viðurkenna þessi stórtæku náttúruspjöll sem neyslu-úthverfaskipulagið er ábyrgt fyrir. Þau náttúruspjöll eru svo stórtæk og marglagskipt að skömm er að ekki sé það neitt rætt. Bílisminn veldur fullt af sjúkdómum sem dregur fólk til dauða. Viðhald á útsprengdri byggð er yfir öllu valdi og myndi varla standast stífa efnahagskreppu. Heilbrigðu samfélagi bæja hefur verið fórnað á altari auglýsinga og draslmennsku og íbúar borgarinnar sitja hver í sínum botnlanga einangraðir frá borginni sem þeir segjast búa í.

Allavega, rétt ákvörðun hjá Skógrækt Ríkisins.


mbl.is Skógrækt ríkisins kærir röskun á skóglendi í Heiðmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En af hverju einkaleyfi?

Ég skil nú ekki alveg hvers vegna menn geta fengið einkaleyfi fyrir auglýsingaprentun á klósettpappír. Er t.a.m. hægt að fá einkaleyfi fyrir að prenta á plastpoka??
Það er vel hægt að sjá einkaleyfi fyrir ákveðnu formatti eða grafík og nafni o.s.frv. en mér þykir slappt ef hægt er að einkavæða/einoka þetta.

Allavega verða menn ekki í vandkvæðum með að lýsa áliti sínu á því sem verið er að auglýsa. Það hefur gengist áratugum saman að selja klósettpappír áprentaðann með einhverju sem maður fyrirlítur. Sýnir líka hvernig gildismat hefur kollsteypst á sl. áratug.

En þetta er væntanlega síðasti griðarstaðurinn þar sem hingað til hefur fengist friður fyrir þessari pest sem auglýsingar geta verið.


mbl.is Norðmaður fær einkaleyfi á að auglýsa á salernisrúllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvenna-hvað?

Þetta ætti ekki að koma á óvart. Miðað við hvaða skilaboð eru í fjölmiðlunum, þá eru kallar þeir einu sem geta eitt eða neitt. Maður er hissa á að konur geti á annað borð fætt börn eins síns liðs eða keyrt bíl, miðað við suma tölvupóstabrandarana. Við skulum svo muna að í USA eins og á Íslandi eru konur með um 75% af tekjum karla. Þetta blasir við og endurspeglast klárlega í svona könnun.
mbl.is Tveir þriðju Bandaríkjamanna segja að kona geti gegnt embætti forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Listrænn viðburður!

344_skurdurÞjóðhátíðarlundur í Heiðmörk stórskemmdur af einkaframtakinu. Er þessi atburður ekki bara táknrænn um líðandi tíma? Einkaframkvæmdin að taka sinn toll með því að stytta sér leið að þýfinu?

Sjálfsskipaðir talsmenn einkaframtaksins (klíkuræðis) eru sífellt að hamra á hvað Íslenska ríkið sé hryllilegt og íslenska lýðræðið ekki nógu undirgefið einkaframtakinu. Jæja, þá tókst þeim loksins að búa til stórmerkilega og táknræna list. Til hamingju með framtakið.


mbl.is Skarð rofið í Þjóðhátíðarlundinn án vitneskju borgaryfirvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnaskólinn góði

Við Donna fórum í viðtal í barnaskóla (4-12 ára) vegna dótturinnar í gær. Á að vera topp skóli hér og þurftum að bíða í 3 mánuði með að fá þetta viðtal.
100 manna foreldrahópur var mættur á sama tíma, allir í einni kös, voða viðtal. Skólastjórinn var Uber-hæper klappstýra að því er virtist úr einhverju Off-Broadway leikhúsinu og sagði skólann þann besta í heimi.

Mér datt nú eiginlega frekar í hug bráðabirgðarhúsnæði í Sovét. Einn kennarinn var spurður hvaða tungumál væru kennd: Svar: "English only. Its not good for children to learn more than one language, it just confuses them." Vá, munur að hafa svona vel gefinn kennara!

Einhver akfeitur repúblíkani reyndi að setja upp gáfnasvip og spurði skólastýruna "Whats your eh annual budget." Þá gall úr mér "Oh yeah and whats your electric bill?" En þegar fólk sýndi rekstrartölunum meiri áhuga en sjálfu kennsluefninu, þá bara löbbuðum við rólega út. Ekki hægt að bjóða barninu upp á svona drasl.

Þetta var reyndar svoldið áhugavert. Skólinn svona semi sjálfstætt apparat að reyna að meika það með því að betla peninga hér og þar í gegnum ýmsa styrktaraðila. Að mestu styrkt af hinu opinbera, en samt með svona betlistarfsemi til að dekka afganginn. Það þýðir að áhuginn er auðvitað allur í betlinu og húrrað yfir að hafa fengið einhverjar fjárupphæðir (nefnt var s.s. 25 milljónum Ísl. á ári) en aðal ruglið er auðvitað það að ríkið á einfaldlega að borga þetta í staðinn fyrir að kaupa herþyrlur og bombur eða að vera að leyfa "einkarekstri" að mjólka kerfið í einhver prívat verkefni aftaníossara stjórnmálamanna. Ef þetta er á skattaspena, þá er hægt að einbeita sér að námsefni og aðhaldi við börnin frekar en auglýsingastarfssemi.

Svo það lítur út fyrir að við höldum áfram í sama skóla með Lilju dóttur okkar. Jæja tími til kominn að fara að vinna!


Vissulega skemmir vegurinn!

Nú hefur verið marg sagt að þetta hafi verið voða vel kynnt, samt fann ég það bara ekki um daginn en gerði núna. En hvers vegna ætli sé ekki alveg augljóst að finna þessar upplýsingar, þegar verið er að gefa í skyn að þetta sé svo vel kynnt? Tók eftir að tölvulíkan af nýju hverfi sýnir ekki tengsl við kvosina. Jæja hvað um það, set hér inn það sem ég hef fundið og mína skoðun á þessu máli.

Setti í fyrsta lagi saman loftmynd sem ég fann af veginum góða og svæðinu í dag og skeytti í við hliðina mynd af veginum sem á að fara að byggja.

Þessi nýji vegur er sannarlega ekki gata fyrir bæ, heldur straumlínulagaður flóttavegur fyrir úthverfið sem á að rísa í hlíðinni fyrir ofan álafosskvosina. Vegurinn og hverfið munu gjörbreyta þessum sérstaka dal. Eftir því sem ég fæ best séð, enn eitt pakka-svefnhverfið, að öllum líkindum einhæft formúluhverfi í kvöðum úreltra skipulagsreglugerða og hlekkjum þröngra markaðssjónarmiða, lágmarksnýtingu á dýrmætu landi and so on and so forth. 

Þessi ministærðar hraðbrautarslaufudraslsskratti sem á að leggjast rétt við Álafosskvosina er dæmigerður fyrir þessi endalausu skipulagsmistök og frekar týpískur hluti af þessum úthverfa"pakka" sem bæjaryfirvöld hafa verið að kaupa sér á sl. áratugum. En kvos í handarkrika svona hraðbrautarformúlu verður nú ekalabeforeafterki sama kvos og er til staðar í dag. Manni er kannski óskiljanlegt hvernig svona gengur upp og af hverju það þarf hraðbrautarslaufudúllirí í þetta svefnhverfi á annað borð. Er ekki stýri á bílum svo ökumenn geti tekið beygjur? Þurfa allar götur að vera gerðar fyrir hálf sofandi álfa með kaffibolla í annari og farsíma í hinni, sem hugsa ekki um ökulag og mega engar hindranir eða hraðatakmarkanir sjá á leiðinni að bílskúrshurðinni?

Þarna er gata rétt norðan við og maður mætti halda að það sé nú hægt að nota hana sem hluta aðgengi fyrir framtíðarhverfi. Þá þarf að gefa stefnuljós til vinstri (Ónó, ekki flækja daginn með stefnuljósi!!) og beygja upp meðfram nýrri úthverfabyggð. Þá má leyfa núv. túni/brekku að notast í framtíðarpúkk fyrir byggingar sem hluta af kvos. Sjá neðar.

Maður er barasta eiginlega hálf gáttaður á svona ó-hönnun sem miðast við "hraðskeiðasta aksturinn." Það sem tapast er nokkuð klárt: Eðlileg framtíðaruppbygging kvosarinnar fylgjandi þeirri fyrirmynd sem sagan hefur búið til. Liggur svona mikið á að skipuleggja land í Mosó undir svefnhverfi Reykjavíkur að ekki megi skoða ítarlegri möguleika?

Smá spurning. Hvort er skynsamlegra; uppbygging í smáum skömmtum sem miðast við að búa til byggðarkjarna og styrkja hina upprunanlegu ímynd Mosfellssveitar eða úthverfapakki með  hraðbrautarslaufum?

Útfærsla mín með hugsanlega stækkun Álafosssvæðisins þannig að kvosin sé styrkt með nýbyggingum, en ekki vegið að henni.

Er ekki nokkuð augljóst að Álafosskvosina þarf að stækka beint út frá miðju sinni, miða við núverandi uppbyggingu hennar og leyfa henni að vaxa með hæfilegum hraða með byggingum sem taka mið af þeirri húsagerð sem fyrir hendi er og þáttöku íbúa? Þetta væri nær formúlu fyrir samheldni íbúa, meðvirkni, sérkennum og stækkun á því sem við vitum að er gott og fallegt umhverfi. Þarna er auðvitað hinn eiginlegi framtíðarmiðbæjarkjarni Mosfellsbæjar, þá alls ekki í neinu shopping-mall og mega-bílastæða drasls stíl. Set hér inn smá rissu sem ég gerði, með hvernig kvosin gæti einmitt byrjað að byggjast upp á eðlilegri máta. Þessi húsaklasi myndi vel geta risið þar sem núna er verið að gera þessa leiðinda (og ábyggilega vel meintu) hraðbraut. Hann væri meðvirkur í gerð kvosarinnar og auðvitað hægt að útfæra á mismunandi máta, svo lengi sem það smellur inn í kvosina.  Þetta verður að byrja í kvosinni og svo stækka út frá því sem fyrir er. Whatever you do, man.

15 Febrúar, 2007 


mbl.is Kröfu vísað frá um stöðvun framkvæmda við tengiveg í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útúrsnúningar, aftur.

MacNamara orðaði þetta sirka svona:

"Ef spurt er óþægilegrar spurningar, svaraðu þá þeirri spurningu sem þú hefðir óskað að hefði verið spurð af þér." Það er þetta sem Bush gerði þarna. Sama aðferðafræði og útúrsnúningar.

Sömu öfl að verki og í Víetnam, sami hryllingur sem afleiðing gjörða þessara manna, sem eru lítið öðruvísi en það versta í mannssögunni. Undir trúarfána, þjóðernishroka og von um uppbyggingargróða og olíugróða hafa þessi öfl dempt Írak ofan í dýflissu helvítis.

Og hverjir kvittuðu svo upp á þetta?


mbl.is Bush segir að þjóðernishreinsanir fari fram í Bagdad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lim-lesta, lim-lesta. Karlremban er alls staðar.

Drengir sendir heim úr skóla vegna þess að þeir voru ekki umskornir. Skólastjórinn segir það vegna þess að þeim var strítt og þess vegna hafi þeim verið vísað heim. En auðvitað sagði hann ekki af hverju þeim sem voru að stríða var ekki vísað heim.

Já það vantar ekki karlrembuna. Hún er auðvitað ábyrg fyrir miklu af þessu óréttlæti í heiminum.

Nýlegar fréttir að HIV smit er hærra meðal umskornra í Afríku hefur leitt til styrkingar á málstað þeirra sem vilja lim-lesta unga drengi. Umræðan hefir mikið til mótast af því að smitið er 50% meira eða hvað það er, en sniðgengur þá staðreynd að umskornir smita líka en með smokkum er smitið einmitt 0%.

Mér sýnist mikið af pressunni hafa talað framhjá þessari staðreynd, kannski af því svo miklu er stjórnað úr USA þar sem drengir eru limlestir af (hlýtur að vera) pervískum foreldrum, með læknum sem vantar peninga, löngu áður en drengirnir geta sjálfir tekið neinar ákvarðanir. Að vísu hefur ástandið skánað á undanförnum árum hér í USA, 45% drengja komast óskaddaðir af fæðingardeildinni á móts við 37% árið 2001.

circumcision


mbl.is Deilt um umskurn drengja í Kenýa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útúrsnúningasjúkur brandarakarl.

Já einnarlínu brandarinn dugar oft til að þagga niður í gagnrýnisröddum og málefnalegri umræðu. Vonandi lærir hann Gates þetta ekki í þessum háskóla sínum. Það er aldrei að vita. Auðveldasti aðgangur að sjálfu málefninu er líklegast Chomsky, sem er alvöru prófessor (ekki bara einhver með bindi) sjá meira um hann hér: http://en.wikipedia.org/wiki/Politics_of_Noam_Chomsky

Það er vitað mál að BNA eru með heimsyfirráðastefnu. Zbigniev Brzezinzky kallar þetta einfaldlega nýlendustefnu, og sem áður snýst málið að miklu um auðlindaaðgang og að koma framleiðsluvörum og fyrirtækjaræði á í sem flestum löndum. Eins og t.d. á Íslandi, þessi stefna hefur gengið vel og mikið af fólkinu sem gengur upp í þessu er glórulaust um hvað er að ske. Hér er áhugavert lesefni í framhaldi af þessu:

http://en.wikipedia.org/wiki/Project_for_the_New_American_Century hér eru þeir allir, Rumsfeld, Perle, Bush fjölskyldan, Dick Cheney, Wolfowitz...

Ekki þarf mikið að lesa sig til í sögunni til að sjá yfirganginn um allann heim, stórum hluta Kana til mikillar mæðu. Fillipseyjar, Panama, Grenada, Kúba, Venezuela, Víetnam, Laos, Kambódía, Austur Tímor, Indónesía... Þannig að svona svar að "Eitt Kalt stríð er nóg" er bara útúrsnúningur hjá meðlimi valdaklíku sem raunverulega stjórnar á bakvið lýðræðisduluna í BNA og er nú síðast ábyrg fyrir hryllingnum í Írak.


mbl.is "Eitt kalt stríð er alveg nóg"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænt ljós á meira svona.

     Segi bara það. Nú geta fyrirtæki tekið sig saman og tekið landsmenn í kleinu. Til hamingju með daginn, samráðslið framtíðarinnar!

   Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá dómi máli ákæruvaldsins gegn þremur núverandi og fyrrverandi forstjóra olíufélaga ólöglegs samráðs félaganna


mbl.is Máli gegn olíuforstjórum vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægri hendi eða vinstri? Svar: Báðar.

Krakkar gera þetta, hvora hendina viltu og svo fær maður tómu hendina og hinn stingur upp í sig namminu.

Fréttin um þessar upplýsingar minnir mig á birtar en svertar CIA skýrslur. Spurningin er: Hvað er núna verið að fela? Ég vill fá að vita það. Allt hitt er bara ekki eins áhugavert. Ef þetta eru opinber gögn, þá af hverju er verið að fela eitt eða neitt? Megum við ekki fá að vita hvernig stjórnendurnir eru, eða hvað býr að baki þessum 5% upplýsinga varðandi sögu Íslands? Reynslan sýnir að það sem verið er að fela segir mest.


mbl.is Leggja til frjálsan aðgang fræðimanna að gögnum úr kalda stríðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjarlægja óstöðugleika?

Ha, að fjarlægja óstöðugleika? Er verið að tala um krónuna enn einu sinni eða er verið að vitna í markaðsdýfurnar sem eru svo oft notaðar til að hækka verð? Hvernig fjarlægja menn óstöðugleika? Fyrst við erum byrjuð, já, hvernig fjarlægjum við þessar leiðinda öldur á úthafinu?

Meiri vextir skila alltaf meiri hagnaði og kannski er trúin á hið nýja trúarhópaprojekt frjálshyggju og einkavæðingarbraskara enn svo sterk að hún haldist jafnblind eftir að nýjabrumið er farið og glansinn rispast, sérstaklega hjá þessum á skítalaununum. Lántökur eru á vöxtum m.a. skv. samningum við þá erlendu aðila, sem verða þá eiginlegir lánadrottnar.

"Bankinn lýtur svo á að samfélagsleg ábyrgð sé sjálfsábyrgð." Góð þessi heimspekilega pæling. Gæti smellpassað inní einhverja auglýsinguna. "Hugsaðu um sjálfann þig og þá ertu að hugsa um aðra." Eða virkar lífið virkilega svona? Bara á Íslandi? Veit ekki betur en að met-hagnaður hafi verið hjá bönkunum og þá vaknar ein spurning: Af hverju hækka þá vextir? "Samfélagsleg ábyrgð" segir okkur að þá lækki bankarnir vexti, enda eru þeir bara í þessu til að deila kökunni, ekki satt?

 Hér er margverðlaunuð og afar áhugaverð heimildarmynd frá síðasta áratug, um alþjóðabankana IMF og er einn póll í umræðuna um hvernig starfað er fyrir aftan leiktjöldin og hvernig samfélagslega ábyrgðin virkar útávið líka.

Hvet stuttbuxnatrúarhópinn til að skoða þetta.


mbl.is Ekki við viðskiptabanka að sakast þótt vextir séu háir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdið talar!

Já valdið á bakvið stjórnmálamennina segir það sem verður gert. Krónunni hent út fyrir erlenda gjaldmiðla. Valdið talar svona, fjölmiðlarnir eru gegnumsósa af tali um getuleysi ríkisins og hvernig Íslenskt ríki sé einhvern veginn orðið erkióvinur fólksins. Lýðræði, einhver? Er verið að spyrja landsmenn eða eru þetta bara "ákvarðanir" viðskiptamanna á bakvið tjöldin?

Áhugaverð og skyld málefni:

Hver borgar fyrir auglýsingar stjórnmálamannanna í komandi kosningum? 

Hvers vegna eru auglýsingar ráðandi þáttur í kosningum? Er verið að selja banana með innantómu gjálfrinu?

Hverra máli tala stjórnmálamennirnir í raun? Einkaklíkum "fjárfesta" eða máli almennings?

Er Íslenska ríkið tól almennings til lýðræðis, eða er það óvinur landsmanna? Hvað köllum við menn sem tala um ríkið sem óvin? Eru þeir talsmenn lýðræðis eða að svíkja lit?

Mun markaðsfrelsið ryðja lýðræðinu til hliðar með tilheyrandi persónulegu ófrelsi þeirra sem vinna á skítalaununum?


mbl.is Segir íslensku krónuna munu hverfa með tímanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

 

Ólafur Þórðarson

Þetta er blogg frá Manhattan.  Þetta blogg er sambland af faglegu blaðri og ýmsum skoðunum á þjóðfélagslegum hlutum.Ég hef til langs tíma verið gagnrýnandi í arkitektúr-, hönnunar- og borgarskipulagsdeildum ýmissa ágætra háskóla á austurströnd BNA. Þar fyrir utan reyni ég að lesa bækur um ýmis samfélagsmál og tengja saman í stærri heimsmynd.

Öll skynsamleg komment eru velkomin og vel þegin og gætu fengið ítarlegt svar.

Varðandi nafnleysingjaparanoju, þá heiti ég Ólafur Þórðarson. Bú!

Allt efni er höfundarvarið, en má dreifa ef getið er hvaðan það kemur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband