9.2.2007 | 04:36
Frú Clinton í brjóstahaldara eða ekki?
Greinilega mál málanna. Frú Clinton í buxum eða pilsi. Skítt með mál á borð við launahækkanir til þeirra lægst launuðu, almennar heilsutryggingar fyrir alla kana, herinn burt úr írak og svoleis smámál.
Maður kannast jú við hennar "rauðu" kynslóð, sko við verðum að fá að vita líka hvort frúin stundi vaxið, sé í brjóstahaldara eða bara engum. Verðum að hafa umræðuforganginn á hreinu. Buxurnar af frú Clinton!
![]() |
Donatella vill koma Rodham Clinton úr buxunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2007 | 04:27
Stórhætta fyrir flugumferð.
Vá maður. Ef öllum Pizzukössum landsmanna á einu ári væri staflað upp, myndi staflinn ná 240km hæð. Þetta er mikið hættumál, ekki einungis vegna flugumferðar, heldur líka gervitunglaumferðar. Og ef maður kæmist upp á staflann gæti maður séð Hálsalón frá Reykjavík.
Ekki má gleyma pælingum með hversu mikið kransæðakítti er á ferð, hvað ætli hjarta og æðakíttið myndi fylla margar sundlaugar? Annars át ég pissu í kvöld líka. **rop**
![]() |
Fjórar milljónir pítsukassa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2007 | 02:18
Plat jólasveinar eyðilagðir.
Falskir Tinnar eyðilagðir segir fréttin.
Fyrir mér hefur Tinni nú aldrei verið raunverulegur, hann er bara einhver teiknimyndasögupersónufígúrufyrirbæri. Hvernig er þá hægt að tala um "falska" Tinna? Ha? Var það kannski litaljósrit? Eru ekki allir Tinnar falskir þegar upp er staðið? Allt í plati, þú veist? Bara teiknimyndafígúra? Ekki alvöru strákur! Bara plat, svona í sögu, þú veist!
Sama segi ég um Andrés Önd. Varla er líka til plat-Andrés Önd fyrst ekki er til alvöru Andrés Önd? Hvernig má það vera? Ég held nú að svo sé ekki, í alvöru talað.
Og ef Tinni er svona sem plastkall er hann þá minna raunverulegur en teikningin? Hvað er verið að segja með þessu?
Erum við ekki bara vitni að einhverju ofstæki í löggu þarna í niðurlöndum? Heyrir maður kannski næst um að plat-jólasveinar verði eyðilagðir af Hollensku löggunni? Hafa þeir ekkert að gera þessir löggukallar, þurfa að vinna við eitthvað plat-löggustarf? Hvað ef ég teikna teiknimyndir af löggunni þarna, þurfa þeir þá að eyðileggja sjálfa sig? Sumir sprengja sig í loft upp ef maður teiknar mynd af Múhammeð. Já við lifum á skrýtnum tímum.
![]() |
Falskir Tinnar eyðilagðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.2.2007 | 00:03
Stóð í stað?
Dow Jones hækkaði!!!! Mbl í dag.
Þegar litið er á "hækkunina" 0,07%, eh hmmm *hóst* ... hvað eiga menn að segja? Get a job?
Peningafréttir eru sósan á kartöflustöppu íþróttafrétta. Maður er bara aldrei viss um af hverju maður er að borða eitthvað svaka spennandi framyfir annað. Namminamm hvað þetta eru góðar stappaðar kartöflur! Eða af hverju maður fylgist með "fréttum" af einhverju ákveðnu. Eins og ef á hverjum degi segir einhver: "Jesús, heyrirumaðurrr?? Vekjaraklukkan fór í gang aftur í morgun!!" Það er nú varla fréttnæmt nema góða Dow-hækkunin sé umtalsverð, er það? Hvað eigum við að segja? 5%? 10%? 25%?
Er það frétta-kækur að birta þessar upplýsingar eins og sumir eru með kæk að fara alltaf með faðirvorið við matarborðið? Eða þegar alkóhólistar fá sér bjór í morgunmat? "Hey, sdrágar, sjáiði -- Einn bjór i einum teig, góðann daginn! glúgg-glúgg"
Eða eru þessir peningabraskarar svona nervösir um smáaurana sína að frú tepra í þeim bíður eftir fréttinni og hoppar og skríkir þegar Dow hækkar um 0,07% en brestur í grát þegar Dow LÆKKAR (já ég sagði það: lækkar!) um 0,07%!!
Þið vitið, eins og þegar menn vinna 100kr í LOTTÓ. Voða spennó, mar, eins og núna áðan þegar ég rak við!
![]() |
Dow Jones hækkaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.2.2007 kl. 02:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2007 | 23:33
Oh no! Ekki Giuliani!
Sem langtíma íbúi í WTC hverfinu verð ég að segja að það er varla sanngjarnt að halda fram að Giuliani hafi reddað málum eftir 11. September. Þetta er maðurinn sem fékk því framgengt að almannavarnarstöðin var sett í WTC og þessar almannavarnir, nýkláraðar, voru auðvitað það fyrsta sem fóru. Ég tók sjálfur mynd af rústunum. Og sem íbúi í WTC hverfinu get ég staðfest að hann er lygari. Og vil líka benda á að ekki fengu björgunarmenn rykgrímur við að hreinsa til, (þeir fengu þær ekki fyrr en eftir margar vikur) En Giuliani sést sannarlega með grímu sjálfur strax fyrsta daginn. Mikla hetjan! Nú eru alvöru björgunarmennirnir að deyja úr lungnakrabba ofl. sjúkdómum, heiðurskrossinn er stundum hengdur á þá sem minnst gerðu. Hvað hefði tekið til að redda nokkur hundruð eða nokkur þúsund grímum fyrir þá sem voru að vinna ofan í gryfjunni og í brakinu? Árni Johnsen hefði sannarlega reddað því eða hvaða maður sem er sem kemur hlutum í verk. Voða góður stjórnandi, hann Rudy. Eða bara góður í PR?
Og hann er einlægur aðdáandi Bush stjórnarinnar. Ef þú dáist að Bush og aðferðafræðinni í Írak, þá er Giuliani maðurinn fyrir þig. Hann er mikill talsmaður á innsta kopp og flokkar víst þá sem eru á móti stríðinu sem hálfgerða aula. En ekki er hann á förum til Íraks sjálfur, enda ekki við slíku að búast miðað við grímuatriðið góða.
Smá aukabónusar:
Eiginkona Giuliani fékk að vita sumarið 2001 að hann ætlaði að skilja við hana til að vera með hjákonunni. Hún frétti það af því svona: Hann gaf út opinbera yfirlýsingu um skilnað án þess að minnast orði á það fyrst við konuna sína. Pældu í því. FV eiginkonan heitir Donna Hanover. Skörp og bráðskýr.
Frægðin gerir fólk nefnilega ekki betra.
Sama ár, 2001 var hann að lýsa yfir að honum þætti eiga að loka listasýningum sem fyrst því listaverkin þar "væru ógeðsleg." Honum tókst það ekki. Einhver gerði nefnilega listaverk úr fílakúk. Þessi maður er með öfgatendensa og hreint út sagt ekki með öllum mjalla. Það sem bjargaði honum frá algeru falli var að hann gat notfært sér 11. September atburðina til eigin framdráttar. Pressan át þetta upp enda er víðtækur tendens að upphefja vitlausa hlaupahesta. Að maður tali ekki um á örlagatímum þar sem ekki fer mikið fyrir gagnrýni.
Við getum líka rætt um góða vininn hans Bernard B. Kerik, sem þú getur flett upp í Google. Eða kíkt á þetta: http://www.msnbc.msn.com/id/6697161/site/newsweek/
Hvað mig varðar persónulega, þá sagði Giuliani trekk í trekk að það væri allt í góðu að fara aftur í hverfið strax eftir öll ósköpin. En það var bara ekki í lagi. Hann var að ljúga (til að vernda vini sína sem voru að leigja út íbúðir, ofl.) Allir sem aðhöfðust við í hverfinu voru með hausverki, brjóstsviða og öndunarfærasviða. Þ.m.t. ég og eiginkonan. Vegna brunanna í rústunum. Svo flúði maður til vina sinna lengra í burtu og þar var "hetjan mikla" í sjónvarpinu að segja "its all rigth to go back to the area, perfectly safe!" og Bush strax á eftir: "Go shopping, buy that car you always wanted!"
Sem sagt; klikkað lið. Er bara að minna á þetta því við erum flest með langtímaminnið einhvers staðar í skottinu.
![]() |
Giuliani sækist eftir tilnefningu til forsetaembættisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.2.2007 kl. 04:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.2.2007 | 19:24
Hvað á þá forstjóri Coca Cola að fá langann fangelsistíma?
Bara spyr svona af forvitni. Hvað hefur Coca Cola drykkja eyðilagt mikið af tönnum í fólki í heiminum? Er það ekki alvarlegri glæpur að leyna þessari hættu, alvarlegri en þjófnaður á einhverri kökuuppskrift? Já ætli það sé ekki fyrir löngu búið að stela henni hvort eð er? Ekki var Stalín lengi að stela kjarnorkusprengjuleyndarmálinu, hvað þá kókistar sem sjá dollara koma í bunkum!
Já hver er ábyrgð forstjóranna með að setja merkingar á flöskurnar? Nefnilega engar merkingar hafa verið á Coca Cola umbúðum vegna glerungs-eyðingar barna, unglinga og fullorðinna, eða hvernig best sé að verja tennur skemmdum eftir langvarandi neyslu þessa annars bragðgóða drykkjar. En það er staðreynd að tannskemmdir eru gríðarlegar af kókdrykkju, mér skilst vegna þess að sýrustig drykkjarins leysir upp glerunginn í samspili við sykur innihaldið. Annars veit ég það ekki því það stendur ekkert á kókflöskunni minni.
Neytendur standa því í tannlæknaferðum, þar sem borað er í massavís í áraraðir, lagaðar skemmdir vegna glerungseyðingar, sem á endanum gerir að fólk missir tennurnar. Nema neytandinn búi í 3ja heims landi þar sem læknar eru sjaldséðir eins og hvítir fílar og tennurnar bara, tjah...
Svo hvað á forstjórinn að fá margra ára fangelsi fyrir að vara neytendur ekki við? Hvað er viðeigandi refsing per tönn? Er alvarlegra að skemma tennur annara en að missa frá sér einhverja ömmu-kökuuppskrift?
![]() |
Fundin sek um að hafa reynt að selja viðskiptaleyndarmál Coca-Cola |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.2.2007 kl. 02:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2007 | 04:57
Seinheppni Gore mun leiða til...
Hann var líka tilnefndur til að verða forseti BNA, bæði af Demókrataflokknum og líka Bandarískum almenningi. Miðað við þessa seinheppni má gera ráð fyrir hverju sem er, einhver annar mun hljóta hnossið ef allt er sem þrennt er...
Annars verð ég að segja að myndin hans kom mér skemmtilega á óvart. Mæli alveg með henni, sérstaklega fyrir Bush aðdáendur.
![]() |
Tilnefna Al Gore til friðarverðlauna Nóbels |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2007 | 00:10
Glæsilegt
Flott hjá þeim að styrkja þetta mál. Varmársamtökin eiga eftir að vaxa í mikið afl.
Þetta hraðbrautardrasl sem er lagt um allar byggðir hefur algerlega eyðilagt íslenska bæi og borgir, en Álafosskvosin er einmitt einn af örfáum STÖÐUM sem eftir eru á landinu, þar sem bíllinn er ekki kóngur, einvaldur og leiðindafrekja í umhverfinu. Þarna er svona staður, eða það sem í den tid kallaðist hlað.
Maður keyrði um landið fyrir 20 árum og kom við á stöðum. Í dag er keyrt framhjá stöðum. Fólk réttlætir þetta með sinni bílfrekju, en í raun hefur stór hluti þjóðarsálinnar horfið við svona vega-gerðir.
![]() |
SigurRós með styrktartónleika fyrir Varmársamtökin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skipulagsmál | Breytt 27.4.2008 kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.2.2007 | 16:24
Ágætis byrjun
Fyrir utan það að lágt verð þýðir einhvers staðar lág laun. Þá er nauðsynlegt að skoða fleiri þætti:
Næsta skref er að vera með gæðaeftirlit á vörum. Myglað salat, brún epli, brúnir bananar, eða hágæða vörur, hvað er verið að bera saman?
Glansandi vibbavaxhúðað epli á 10KR er ekkert betra en lífrænt ræktað epli á 11KR. Jafnvel þó það komi betur út á ljósmynd. Fyrir það fyrsta þarf að setja upp staða á mannamáli með HVAÐ er verið að bera saman. En að einblína á krónutöluna er afar villandi í rauninni, ágætis byrjun samt.
![]() |
Miklu magni upplýsinga um verðlagsbreytingar safnað saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2007 | 15:48
Tittlingaskítur
Þetta er smátt atriði í stærra heilsuspillandi samhengi. Það er mun veigameira að stuðla að minnkaðri einkabílanotkun. Of mikil einkabílanotkun er ekki bara mengandi og krabbameinsvaldandi, heldur efna-sóandi og gerir fólk latt og feitt. Hófleg bílnotkun kemur til af hreinni nauðsyn.
Fólk notar bílana of mikið af því það vill ekki fá alvöru borgarskipulag, slíkt er kannski bara eitthvað í útlöndum. Mun athyglisverðara en nagladekkjamálið væri að sjá almennilegar tillögur og framkvæmdir í bættum almenningssamgöngum. Það mun þó ekki fást fram, aðallega því ýmis öfl eru á móti bótum í þessu máli.
Þeir sem eru á móti þessu eru m.a.:
- Bílainnflytjendur
- Bílaseljendur
- Bílaviðhalds- og bíladrasl-sölu bransinn
- Vegagerðarfólk: Byggingarverktakar og stærri verktakar.
- Fólk sem ruglar saman frelsi og því að keyra bíl
O.s.frv.
![]() |
Vilja lækka gjöld á ónegldum hjólbörðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2007 | 14:45
Drepinn fyrir að klippa girðingu?
![]() |
Ísraelsher felldi þrjá Palestínumenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2007 | 02:30
Getur þetta verið rétt?
Er sammála öðrum bloggara sem segir könnunina kannski geta verið gallaða.
Það er furðulegt ef 13% hafa ekki heyrt minnst á hlýnun andrúmsloftsins. Þarna stendur 25,000 netnotendur, whatever that means. Sjálfur þekki ég ágæta fánu Bandaríkjamanna en engann sem hefur aldrei heyrt um hlýnun andrúmsloftsins.
Hvaða hlýnun er annars verið að tala um?
Það er oft viðhorf að halda að Bandaríkjamenn séu upp til hópa vitleysingar. Sumir þeirra eru það, rétt eins og sumir Íslendingar eru vitlausir. Það er nú nauðsynlegt að muna að Bandaríkjamenn hafa leitt allskyns tækniframfarir og rannsóknir, nefnum bara tölvur og sjálft netið sem dæmi. Fyrir utan ljósaperur og einmitt rannsóknir á loftslagsbreytingum.
Maður finnur stöku sinnum fyrir þessu viðhorfi: "Aha, þú býrð í Ameríku"=vitleysingur. Það eru auðvitað bara vitleysingar sem hugsa svona. eða gegnumsósaðir fylliraftar úti á börum. Svo eru nú ýmsir Kanar sem eru með samskonar viðhorf gagnvart þeim sem ekki eru fæddir í landi frelsisins.
Svo spurningin er hvort könnunin sé rétt? Kæmi mér mjög á óvart.
![]() |
13% Bandaríkjamanna hafa aldrei heyrt um hlýnun andrúmsloftsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.2.2007 kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.1.2007 | 22:14
The Gods must be Crazy
Var einmitt að horfa á þessa skemmtilegu mynd frá ca 1980. Þar fellur kókflaska af himnum ofan og Búskmaður finnur hana og gerir að trúarhlut.
Þetta íshrafl sem lenti á bíl í Flórída er greinlega gjöf frá Guði til handa Bush, svo fréttirnar frá Írak stingi ekki eins mikið.
![]() |
Ísklumpur af himnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.1.2007 kl. 02:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2007 | 03:49
Hún gaf valdið frá sér, er henni þá treystandi?
Þegar lúser eins og maður sjálfur finnur út með lygarnar fyrir Íraksinnrásina löngu áður en farið var inn, þá verð ég að segja að svona kella með kolkrabbaanga amerísks þingmanns veit mun meira en maður gerir um hvað er að ske. Veit ekki betur en frú Clinton hafi greitt atkvæði með þessum hrylling í Írak, maðurinn hennar kom margoft fram og bað Kana um að styðja Bush í Íraksinnrásinni.
Eitt skilja stjórnmálamenn vel. Og það er skammtímaminnið okkar og að fólk hefur tendens til að muna fagrann blómagarð þegar fiskinnyfli voru upp á bátnum. Skammtíma minnið gerir það að verkum að við eigum erfitt með að muna öll smáatriðin og þá nægir að tala nógu hátt yfir manni og á mann til að allt gleymist og fegrist.
Á Íslandi eru sömu kosningafrasarnir notaðir, algerlega gagnslausir í uppbyggilegri umræðu um málin sem skipta jú máli. Nefni sem dæmi "Varist vinstri slysin" eða "Vinstri menn geta ekki ____" [meðhöndlað peninga] [stjórnað] etc. og fólk gleypir við þessu eins og þetta séu heitar lummur eða staðreyndir. Auðvitað geta vinstri menn stjórnað eins og hægri menn, þetta eru ekki einhverjir dópistar. Og jafnvel vinstri menn segja að nú megi lækka skatta, án þess að bjóða neins staðar niðurskurð. Sem hlýtur auðvitað að eiga að koma á sama tíma.
Gallinn er að kosningar í dag eru mestmegnis auglýsingaherferðir og skrum og hafa ekkert með stjórnmálaumræðu að gera því hvorki kanar né Íslendingar búa við raunverulegt lýðræði. Fólkið sem gengur upp í þessum flokkahópdrætti er ekki að praktisera sitt lýðræði heldur hópast um jarmandi klappstýrur eins og rollur í leit að betri haga sitt hvorum meginn við ímyndaðann læk.
Og allt umhverfis eru víðáttumikil tún.
![]() |
Clinton segir Bush hafa misnotað vald sitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2007 | 04:07
Hvað með Slade?
![]() |
Æluhljóð það versta í heimi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.1.2007 | 04:01
Flott, svona fyrir Vista. Mikið vill meira.
"Hraðvirkari tölvuörgjafar væntanlegir"
Glæsilegt þetta. Nú þegar Vista er að koma út og heimtar margfalda vinnslugetu er ráð að fá sér svona nýja örgjörva svo maður sé með jafnhraðvirka tölvu og 1999. Það var lagið!
![]() |
Hraðvirkari tölvuörgjörvar væntanlegir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.1.2007 | 19:07
Þú hefur verið vondur strákur og færð ekki neinn iPod!
Viðskiptabann skemmir alltaf mest fyrir þeim sem minnst mega sín í viðkomandi löndum.
"Þú hefur verið vondur strákur og færð ekki neinn iPod!"
Uppeldi þar sem börn eru skömmuð í tíma og ótíma er ekkert uppeldi. Og þetta hugarfar með að koma fram við annað fólk eins og smákrakka skilar engu góðu, er reyndar ein ástæða þess að viðkomandi fara í varnarstöðu og jafnvel koma sér upp kjarnorkuvopnum til að geta varið sig. Engin furða kannski, hvað gerir maður þegar maður er umkringdur af forkólfum viðskiptalífsins um heim allann, sem bíða eftir að breyta flókinni persónu manns í eitthvað bara eitt: afarþunnann neytanda.
"Þú færð engann IPod nema þú gerist viðskiptamaður!!"
Og svo er fullt af kjarnorkuvopnum beint að NKóreu as we speak, baby. Annars þykir mér fyndið að banna IPods. Fyrir utan það að 1) iPods eru að sumu leyti frekar tól lýðræðis, eins og prentvélin, eða það að 2) yfirmenn redda sér hvort eð er ipods með því að fara bara í búð í New York eða Peking og fara með nokkra til vina sinna...
...þá þykir mér skrautlegast að banna mest auglýstu munaðarvöruna, eins og það sé svona hryllilega agalegt að vera án iPods. Annað hvort sveltandi NKóreubúar hafi efni á slíku? iPod er fyrst og fremst uppfundin nauðsynjavara, selst af því að hún er vel auglýst. Fólk gegnumsósa í heilanum af auglýsingaskrumi sér því það sem eitthvað voðalegt að fá ekki að kaupa sér iPod. Þegar staðreyndin er að mikill bókalestur hefur allt umfram svona gimmik græju hvað viðkemur persónulegum þroska einstaklinga.
Spurning hvort Steve Jobs hefur álíka mikil áhrif á utanríkisstefnur BNA, og Lee Raymond forstjóri Exxon og Uberskrímsli Bandaríska viðskiptageirans. Sem sagt þetta er auglýsing fyrir IPod! Áróður kemur að sjálfsögðu mestur úr herbúðum auglýsendanna.
Eitt til umhugsunar: Ef trampólín seldust eins vel og iPod er ég viss um að skrípin sem eru ábyrg fyrir þessum dellu-utanríkisstefnum myndu banna N-Kóreubúm að hoppa.
Svona til gamans má geta þess að ég var að kaupa mér iPod. Enda heilaþveginn eins og allir aðrir. Nema hann er BARA eitthvað annað framleiðslumerki.
![]() |
Viðskiptabann á norður-kóreska valdastétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2007 | 05:31
LES: Litlar hindranir ... í að gagnrýnendur viðskiptaforkólfa... kæmu skoðunum sínum á netið...
Já þeir sem hafa tögl og haldir rembast við að halda í taumin. Vilja stoppa af frjálsar umræður, sama gamla íhaldsdraslið að hneykslast á "heimskum pöpulnum að tjá sig."
Hvað sagan endurtekur sig!
Við vitum vel að margir af þessum viðskiptaforkólfum eru bölvaðir glæpamenn. Er núna að lesa
The Sack Of Rome, sem fjallar um mafíósann Berlusconi.
Það er holl lesning fyrir þá sem vilja selja RÚV eða hleypa viðskiptaforkólfum inní stjórnmálin (ekki að þeir séu ekki fyrir löngu búnir að stela lýðræðinu).
![]() |
Litlar hindranir fyrir öfgamenn að koma skoðunum sínum á framfæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.1.2007 | 04:19
Hörmulegar já, það er greinilegt.
"Afleiðingarnar mistaka munu vera hörmulegar og þeirra mun víða gæta, segir í stefnuræðu forsetans" í kvöld.
Já það ber ekki á öðru. Afleiðingarnar segja til sín, og Írakar hafa það víst verra en undir Saddam. Vel mælt hjá Bush. 90% Íraka vill bandaríska herinn út og það strax. Eða heyrðu, var hann ekki að viðurkenna mistökin?
![]() |
Bush kallar eftir samstöðu varðandi hernaðarátökin í Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.1.2007 | 04:12
Flott hjá þeim
Ef ekki koma upp fleiri svona hópar, þá verður alþingi alltaf einsleitt. Þessi stefnumál eru alls ekki verri en þetta eilífa blaður um skattalækkanir eða að fá að gefa köllum út í bæ okkar ríkiseignir, eða að láta smykka sig fyrir heilsíðuauglýsingu með skælbros og bara feika það með munnræpu.
Margir virðast gleyma að einn góðann veðurdag vakna þeir upp fyrir framan spegilinn og ellidruslan búin að ná þeim. Meira að segja eftirhermur rappara og fv. pönkarar verða gráhærðir (ar). Þá er ágætt að flokkur hafi verið á þingi að koma í höfn sjálfsögðum hlutum.
Til hamingju Íslendingar, segi ég bara hreint út.
![]() |
Aldraðir og öryrkjar stofna til framboðs fyrir næstu Alþingiskosningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
arh
-
robertb
-
nimbus
-
hehau
-
soley
-
gmaria
-
tulugaq
-
andreaolafs
-
katanesdyrid
-
ingibjorgelsa
-
skodunmin
-
varmarsamtokin
-
joiragnars
-
lextalionis
-
gbo
-
malacai
-
floyde
-
skarfur
-
reykur
-
fsfi
-
gudmunduroli
-
hallgrimurg
-
veravakandi
-
drum
-
hlekkur
-
haddih
-
prakkarinn
-
kreppukallinn
-
krilli
-
liljabolla
-
magnusthor
-
manisvans
-
sgj
-
huldumenn
-
svarthamar
-
palmig
-
pjetur
-
pjeturstefans
-
ransu
-
raudurvettvangur
-
robertthorh
-
runarsv
-
lovelikeblood
-
sivvaeysteinsa
-
fia
-
stefans
-
stjornuskodun
-
midborg
-
sveinnolafsson
-
torfusamtokin
-
vest1
-
steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world