En af hverju einkaleyfi?

Ég skil nú ekki alveg hvers vegna menn geta fengið einkaleyfi fyrir auglýsingaprentun á klósettpappír. Er t.a.m. hægt að fá einkaleyfi fyrir að prenta á plastpoka??
Það er vel hægt að sjá einkaleyfi fyrir ákveðnu formatti eða grafík og nafni o.s.frv. en mér þykir slappt ef hægt er að einkavæða/einoka þetta.

Allavega verða menn ekki í vandkvæðum með að lýsa áliti sínu á því sem verið er að auglýsa. Það hefur gengist áratugum saman að selja klósettpappír áprentaðann með einhverju sem maður fyrirlítur. Sýnir líka hvernig gildismat hefur kollsteypst á sl. áratug.

En þetta er væntanlega síðasti griðarstaðurinn þar sem hingað til hefur fengist friður fyrir þessari pest sem auglýsingar geta verið.


mbl.is Norðmaður fær einkaleyfi á að auglýsa á salernisrúllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Ólafur Þórðarson

Þetta er blogg frá Manhattan.  Þetta blogg er sambland af faglegu blaðri og ýmsum skoðunum á þjóðfélagslegum hlutum.Ég hef til langs tíma verið gagnrýnandi í arkitektúr-, hönnunar- og borgarskipulagsdeildum ýmissa ágætra háskóla á austurströnd BNA. Þar fyrir utan reyni ég að lesa bækur um ýmis samfélagsmál og tengja saman í stærri heimsmynd.

Öll skynsamleg komment eru velkomin og vel þegin og gætu fengið ítarlegt svar.

Varðandi nafnleysingjaparanoju, þá heiti ég Ólafur Þórðarson. Bú!

Allt efni er höfundarvarið, en má dreifa ef getið er hvaðan það kemur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 1960

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband