17.4.2007 | 16:01
Mr. Watson og þjóðarskútan
Meikar sens að leyfa einstaklingum að komast að við stjórn skips sem vilja sigla því í strand? Koma því í niðurrif því þeir eru með "önnur og betri skip"? Er það ekki eins og að leyfa Mr. Watson "hvalavini" að fá afnot af hvalveiðiskipunum eins og honum þóknast?
Hef á sl. áratug oft heyrt menn á Íslandi segja að nú þurfi að einkavæða, kúpla ríkið út úr lutverkum. Þessi klysja hefur viðgengist miklu lengur í Ameríku og hefur verið standard frasaumræða a.m.k. síðan ég kom hingað fyrst, á Reagan árunum. Þá var ég af fjölskylduvana tryggur Sjálfstæðismaður en breytti fljótlega um skoðun eftir að hafa kynnst göllum "góða" einkavædda kerfisins. Hann er fyndinn þessi dellufrasi frá viskýsvampnum honum Churchill; að menn verði vitanlega meira hægrisinnaðir með aldrinum.
Já og að það þurfi að einkavæða, jafvnel þó það sé allt í lagi. Að einhver kall úti í bæ geti haft betri stjórn á sameiginlegum eignum landsmanna. Svona eins og ef fjölskylda á fínann bíl og sonurinn gefur vini sínum hann því "vinurinn" muni bóna hann betur. Brooklyn-brúin hefur oft verið seld, en hvernig kemst þá fjölskyldufaðirinn í vinnuna.
Aðalvandamálið hjá mér er þetta: Hvers vegna treysta mönnum til að reka ríkið, sem segja að ríkið sé óvinur okkar? Bændur vita vel að ekki geyma hænur og refi í sama búri, svo hvers vegna velja menn til starfa, sem hafa sem takmark að koma starfsumhverfinu/fyrirtækinu fyrir kattarnef?
Er fólk búið að missa vitið? Kannski.
Meikar sens að leyfa einstaklingum að komast að við stjórn skips sem vilja sigla því í strand? Koma því í niðurrif því þeir eru með "önnur og betri skip"? Er það ekki eins og að leyfa Mr. Watson "hvalavini" að fá afnot af hvalveiðiskipunum eins og honum þóknast?
Er margföldun á íbúðarhúsnæði virkilega "framfarir"? Meira að segja markaðstrúarnött skilur að hærra verð á undirstöðuhlutum eru ekki framfarir, heldur afturfarir. Verðlækkunin á matvörum var bara ryk í augu almennings fyrir því sem hann raunverulega þarf að punga út. Hefur einkavæðing banka þá tekist vel? Er betra að börnin þín basli í húsnæðiskaupum, meðan eldri kynslóðin keypti bara og pældi lítið í stífum afborgunum til braskaranna? Er betra að komandi kynslóð eigi erfiðara með að koma upp þaki yfir höfuðið?
Eins og skáldið Bukowski sagði: "First there is honey. Then the knife." Og bankarnir veita ekki 100% lán lengur, því þeir þurfa ekki lengur að afhenda nammi. Nýjabrumið farið af. Búið að heilaþvo fjöldann með loforðaflaumi og henda smotteríi í hungraða listaelítuna sem bregst hlutverki sínu sem þjóðfélagsgagnrýnir. Sorrý kids. Upp með veskið.
Nýjir og betri valdhafar tekið yfir með miklu betra frel$i.
Annað er með þetta her-brölt. Hvers vegna fá öfgamenn að gagnrýnislaust kynna þverstæðukenndar hugmyndir talandi út úr hægra munnviki að vilja skera niður ríkisútgjöld, lækka skatta etc. og vinstra megin að vilja stofna her, sem er Nota Bene rándýr andskoti? Verður auðveldara að finna opinbert fjármagn fyrir skriðdrekum og loftvarnarbyssum en þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna? Verður frábært að fá stríðsbrask og stríðsmangara inn í markaðskerfið? Gera það fjölbreyttara og auka samkeppni á víðari grundvelli? Er það efnileg framtíð fyrir Íslenskt ungviði að fá að vera tindátar í höndum misvitra stjórnmálamanna?
Nú síðast fyrir um 2. árum ef ég man rétt, lýsti Geir Haarde yfir að nú þyrfti að einkavæða orkukerfið. Nú er þessi umræða á fullu og alvara í refunum. Mikið vill meira og meira verður aldrei nóg. Gullgæsin heitir Landsvirkjun. Nú verð ég að segja að mér vitandi er orkuverð ekkert það hátt á Íslandi. Af hverju "laga" eitthvað sem ekki er bilað? Af hverju þarf að einkavæða ef enginn kvartar yfir rafmagnsreikningum? Ég bý í New York þar sem rafmagnið var einkavætt og ég borga síhækkandi rafmagnsreikninga, allt upp í $400- á mánuði og það bara fyrir 160 fm íbúð. Nei einkavæðingin er ekki "lausnin" heldur er lausnin þegar komin í höfn. Saman stöndum við, sundruð föllum við.
Fólk veit ekki hvað það hefur það gott -fyrr en það er búið að missa það sem það hafði.
Ástarkveðjur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.4.2007 | 16:10
Rigning báðum megin!
Við búum hér syðst á Manhattan, íbúðin er löng og mjó, nær alveg í gegn, götu í götu. 3ja ára dóttir mín Lilja og ég vöknuðum í morgun og litum út um gluggann. Það er hellidemba úti! Svo hljóp hún í hinn endann á íbúðinni og kom svo og sagði mér að það væri líka rigning hinum megin!
Yndislegur þessi aldur. Ekki dytti manni svona sniðugt í hug.
12.4.2007 | 21:28
Moggabloggið, forsíðukvörtun.
Ég kíki oft hingað inn á bloggið. Og les töluvert mikið af því sem skrifað er. Kannski allt of mikið.
Eitt er þó farið að fara í fínu taugarnar, og það er hvernig forsíða bloggsins fær alltaf sömu bloggara til að dúkka upp.
Það virðast ákveðnir aðilar sem fá grænann passa á blogghausinn, sama hvort þeir/þær skrifa af mikilli visku eða bara bulla eitthvað út í loftið. Mér sýnist við vera að ræða um einhvern hóp sem skrifar "safe" eða hefur undarleg forréttindi framyfir aðra bloggara. Skýt á pólitíska rétthugsun, jú sumir eru s.s. á flokkskoppnum. Ok. Það eru að koma kosningar...halló?
Ég hef nefnilega mikinn áhuga á hvað fólk er að ræða, en hef afar takmarkaðann áhuga á hvað gamlar breddur eru að skrifa um, sumar búnar að skrifa þetta sama í áraraðir á öðrum skrifisvæðum hins víða netheims. Magn er ekki ávísun á gæði.
Kannski er galli í kerfinu? Er rétt að gefa sérstökum "vinahóp" grænt ljós á að vera settir fremst? Nei það getur ekki verið, enda er það afar letjandi fyrir egó annara bloggara og hefur áhrif á gæði svona bloggbakarofns. Það er mikið bloggað, en samt sér maður oft sama leiðindadótið efst, allann daginn. Til hvers vera að koma og lesa þegar þúsindir innleggja eru sett inn en sama dótið er efst á boðstólum??
Kannski er gallinn einmitt sá að sumir eru settir efst af því þeir fá flestar heimsóknir. Þá komum við að beisikk formgalla sem er svipaður hænunni og egginu, hvort kom fyrst: Ef bloggari er settur efst, þá fær hann flestar heimsóknir. og þá er hann settur efst af því hann fær flestar heimsóknir. Og þá er hann setur efst af því hann er... auðvitað er þetta svoldið bjánalegt, ekki satt?
Tek fram að ég hef ekkert frekar áhuga á að sjá sjálfann mig efst, en hef áhuga á að sjá skoðanir sem ýta við manni, ekki dagbókarfærslur um hvernig einhverjir kallar eru sexý eða að einhver borðaði Cheerios eða beið í biðröð til að kaupa ís. Mín skoðun er sú að það mætti athuga með að ritstjóri væri settur yfir, sem velur áhugaverðustu bloggin og skiptir þeim út efir sem líður á daginn, í sambland við einhvern RANDOM fídus sem velur blogg af handahófi og einhvers konar stjörnugjöf. Það eru ýmsir fletir á þessu sem þarf að skoða til að bloggið verði ekki óþarflega einhæft.
Ástarkveðjur.
xx
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.4.2007 | 19:29
Little boxes, on the hillside and they all look just the same...
Er þetta örugglega ekki bara mynd úr Sovéskri 5 ára áætlun? Höfuðstöðvar Glitnis minna mig reyndar svoldið á lag Malvinu Reynolds (1962) "Little Boxes"
Little boxes on the hillside,
Little boxes made of ticky tacky,
Little boxes on the hillside,
Little boxes all the same.
There's a green one and a pink one
And a blue one and a yellow one,
And they're all made out of ticky tacky
And they all look just the same.
Nema hvað hér eru þeir allir bara i einum lit. Eða eru hvítt og svart litir? Mikið er þetta annars einsleitt og ljótt og scary. Á ekki til orð. Hvers konar fólk vill svona? Eða er verið að fela eitthvað gott? Óvart vitlaus mynd? wassgoingon, kids? Auðvitað kemur mér það ekki við þar eð þetta er allt einka- whatever og ég á ekkert í þessu. Gúdd lökk.
![]() |
Sænskir arkítektar unnu samkeppni um nýjar höfuðstöðvar Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt 11.4.2007 kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.4.2007 | 11:27
Grenjað á gresjunni.
UWE Reinhardt gefur greinilega verið mikill gagnrýnandi stríðsins í Írak.
Skellið in leit á Google: Uwe E. Reinhard og þá getiði lesið greinar hans.
Ég fann ekki í fljótu bragði þessa ákveðnu grein til að fá kontext (linkur vel þeginn) en mér sýnist í fljótu bragði að Uwe hefði notað Ísland sem dæmi um hvað það er fáránlegt að vera að ráðast inn í önnur lönd, sprengja þau í nafni frelsis. Reyna að skemma góðu meiningu þessa orðs. Að vísu eru til ámóta ógnir á borð við Kúbu, Grenada og Panama, Víetnam, Írak.... en það er annar handleggur, BNA hafa sína menn nú þegar á innsta koppi á Íslandi miðað við stefnur stjórnvalda á sl. áratugum.
Ísland er kannski gott dæmi fyrir svona háð því þeir Kanar sem líta á Ísland sem ógn eru einfaldlega ekki til. Ennþá. Stundum hef ég sagt við vini mína hér í hálfkæringi að við Íslendingar séum á leiðinni að ná í það sem tilheyrir okkur og við fundum fyrst: N Ameríku. Þeir hlægja að því og taka bara þátt í gríninu. En svo eru jú alltaf til þessar sjaldséðu gæsir sem taka háði hátíðlega. Einn og einn hefur leiðrétt lagalega afstöðu mína með því að benda á að indjánar voru hér fyrstir. Jæja, það má altaf reyna.
Smá pæling varðandi fréttina: Eru sumir kannski að vonast til að fá loksins ÓGNINA sem "réttlætir" uppbyggingu þessa óþarfa hers á Íslandi? Það eru fyndnar þverstæður í þeirri réttlætingunni!
![]() |
Biður þjóðina afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Einn ágætur bloggari, Gunnar Th. Gunnarsson segir í bloggi sínu í dag:
"Samfylkingin er söm við sig, er út og suður, þar er einn hrærigrautur sjónarmiða og seglum hagað eftir vindi. Hver er stefna Samfylkingarinnar? Það fer eftir því við hvern þú talar."
Þetta þykir mér afar áhugaverð hugmynd, þetta að einn flokkur sé með samheldna stefnu og að annar sé með sundurleita stefnu.
Einn flötur í mér hugsar sem svo að það sé gott að hafa heilsteypta stefnu sem allir geta tekið þátt í og að markmið náist best þannig. Og að með sundurleitni náist enginn árangur.
Á hinn bóginn er einn angi í mér sem segir að eitthvað sé nú að lýðræðinu ef allir hugsuðu eins innan flokks, til að þjóna einhverri afmarkaðri hugsjón og svo að sundurleitni sé einmitt kostur lýðræðisins, fólk verði að ná sáttum á endanum en tali um hlutina opið og frá mörgum flötum.
En þá er spurningin hvort sé betra. Er ekki viss um að svarið sé í öðru hvoru eða hinu, heldur einhvers staðar þarna á milli. Allavega veit ég að sundurleitni þýðir ekki endilega að slíkur flokkur sé vondur.
(Gunnarsblogg: http://gthg.blog.is/blog/gthg/entry/169215/ )
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.4.2007 kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.4.2007 | 15:25
Klósettið er nú besta uppfinningin

![]() |
50 merkilegustu tækniundrin valin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.4.2007 | 13:54
Mikið vegakerfisálag af flutingabílum. "Mamma borgar"
Þetta hefur meira almennt um vegaflutninga að gera, en á síðasta áratug hefur floti vegaflutningabíla skotið upp kollinum, sem hafa tekið yfir flutninga strandferðaskipa. Þeir búa til nýtt álag á vegakerfið, í formi slits, slysahættu ofl. Spurning hvort þessir bílar eigi ekki að sæta auknum vegatollum og reglugerðum til að tryggja að þeir haldi sig við skikkanlegann hraða og hafi góða bílstjóra (ekki bara ódýrustu bílstjórana) sem vita t.d. um hæð síns bíls, hvernig á að festa farm. Eða að smærri bílar eru í aukinni hættu þegar verið er að keyra framhjá.
Það er svona ákveðinn lágmarksstandard sem þarf að viðhafa þegar verið er að keyra stóra bíla á smágerðum vegum, slysin ske nú líka oftast fyrir eitthvað aðgátsleysi. Farmur hendist af flutningabílum og vörubílum af því hann er ekki festur nægilega.
Mig grunar að tilhneigingin sé að vilja leyfa þessum flutningafyrirtækjum að fylgjast með sér sjálf, en auðvitað þarf gott utanaðkomandi (opinbert) eftirlit með þeim til að tryggja öryggi í fyrsta lagi annara vegfarenda og í öðru lagi vegakerfisins sem RÍKIÐ hefur byggt upp -og á ekki að þurfa að líða fyrir þjösnaskap þeirra sem fá að nota þetta kerfi.
(Mynd úr Kópavogi á sl. ári.)
"...skemmdir urðu á Oddsskarðsgöngunum milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í morgun þegar flutningabíl frá Hringrás var ekið gegnum göngin. Samkvæmt upplýsingum frá Vegaferðinni lenti bíllinn fyrst á hurð ganganna Norðfjarðarmegin og síðan einnig hurðinni Eskifjarðarmegin. Þá kræktist farmur bílsins í einangrun í göngunum og net sem heldur henni fastri og skemmdi á stórum kafla..."
![]() |
Flutningabíll ók á báðar hurðir Oddsskarðsganga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.4.2007 kl. 03:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2007 | 17:07
Nafnleynd er oft nauðsyn á netinu
Jæja, talandi um að koma út úr skápnum, hér kemur góð ástæða fyrir að hafa nikk á netinu í staðinn fyrir að gera sig að skotmarki hjá einstaklingum sem ekki eru sammála manns persónulegu viðhorfi. Fólk er auðvitað tekið fyrir, fyrir að hafa skoðanir. Og það í lýðræðisþjóðfélagi. Ekki ferðu að ráða mann sem skrifar um dásemdir Marxisma, er það nokkuð? Fer eftir í hvaða flokki þú ert, ekki satt, jafnvel þó viðkomandi sé brilliant ásínu sviði.
Ekki eru allar skoðanir heldur heimskupör eins og gefið er í skyn í fréttinni. Þó ekki vanti heimskupörin, líka það að það eru ekki allir með húmor fyrir heimskupörunum og halda að brandarar og grín séu hátíðleikinn uppmálaður.
Ég held að bloggskoðanir hafi í raun sáralítið með getu til að vinna. Þetta eru alfarið aðskildir hlutir. En það er merkilegt hvað bloggið opinberar um hugsanahátt fólks, eða eigum við að segja hvernig því tekst að koma frá sér skoðunum?
![]() |
Bloggið gæti spillt fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.4.2007 kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti niðurrifi, en það er nú líka bara helmingur sögunnar. Mér er nefnilega spurn: Hvað kemur eiginlega í staðinn?
Verða það endurbætur á Laugaveginum eða önnur svona löng og einhæf langavitleysa eins og á Stjörnubíóslóðinni? Flennistór hús eiga nefnilega ekkert heima í fjölbreyttum smágerðum miðbænum, en þau sem verða byggð í staðinn þurfa nú lágmark að vera endurbót á því umhverfi sem Laugavegurinn og hliðargöturnar eru. Annars er enginn tilgangur í þessu, ekki satt? Nógu miklu hafa þeir fokkað nú þegar með þessari blokkadellu rétt hjá, niður við sjóinn.
Og nógu duglegir eru þeir að fá slökkviliðsmenn í blöðin að agitera fyrir niðurrifi í staðinn fyrir að mæla fyrir betra eftirliti með svona sögulegum byggingum.
Já af hverju er veitt heimild til að rífa þessi hús án þess að sýna skýrt með hvað eigi að koma í staðinn og að verið sé að bæta Laugaveginn með enduruppbyggingu? Af hverju er gefið í skyn að þetta séu 3 hús þegar um er að ræða FIMM hús? Er ég að misskilja eitthvað? Ég vil endilega fá að sjá teikningar og skýrar útlistanir á hvernig nýju byggingarnar 5 verða betri og reka stoðum undir smágerð verslunarrými skrifstofur og íbúðir. Það eru nefnilega forréttindi að fá að byggja í miðbænum en ekki í þessum bílastæða-hafsjó sem "skipulagið" hefur samþykkt út um öll einu-sinni-falleg holt. Ef verið er að bæta Laugaveginn, þá má alveg rífa húsin mín vegna.
Talandi um svona mál, þá munu 5 hús koma í staðinn fyrir þessi 5 ekki satt? Þau hljóta að verða 5 er það ekki? Allavega 4 hús á þessum 4. lóðum! Vonandi finnum við ekki út of seint að eitt húsus gigantismus verði reist í staðinn fyrir þessi 3 sem hafa átt heima þarna lengur en nokkur þeirra aðila sem er ólmur í að byggja? Eitt hús í staðinn fyrir 5 er engin lausn, bara ávísun á meiri einhæfni. Sem er einn óvinur borga. Vonandi er ekki ætlunin að gera aðra Stjörnubíóslóðalangavitleysisskrípi eins og ég hef hér teiknað inn á loftmynd með gulu? Þar var grænu barnaleiksvæði fórnað á altari risa-bílastæðainngangs. Smellið á myndina og skoðið sjálf. Ekki passar þetta inn í umhverfið?? Eða á að gera þunnildis blokk með svo og svo mörgum bílastæðum?
Þar fyrir utan er fréttinni stillt upp eins og þetta sé bara eitthvað hægri vinstri bitbein flokka. Þeim sem eru á móti niðurrifi séu bara einhverjir kommúnistaskrattar? Ég á erfitt með að trúa VG séu að setja sig á móti svona bara af því þeir eru svo miklir sófakommar eða að ekki séu til sjallar með skilning á sögu borgarinnar og viðkvæmni borgarmynstursins. Fréttina á að segja þannig að verið sé að stefna að breytingum á horni Laugavegs og Vatnsstíg og hvað endurbætur þær muni fela í sér.
Hvað annað?? Hverjum er ekki sama um stjúpid flokksríg þegar svona mál eru á oddinum?
Hér til vinstri er kort yfir húsin 5, sem á að rífa og hversu mikið þetta er umfangs. Ég teiknaði sjálfur inn útlínuna með rauðu.
Skandall í uppsiglingu? Ekki nema þið lesið bloggið mitt vel og gerið eitthvað í þessu máli. Spurning um að halda rétt á spöðunum.
Dæmið svo sjálf.
Bestu kveðjur úr sólinni.
"Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar samþykktu á borgarstjórnarfundi nú í kvöld að heimila niðurrif á húsunum Laugavegur 33, 35 og Vatnsstígur 4. Fulltrúar Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins lögðust gegn niðurrifi húsanna. "
![]() |
Leggjast gegn niðurrifi húsa við Laugaveg og Vatnsstíg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Skipulagsmál | Breytt s.d. kl. 04:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.3.2007 | 23:46
Andsk. nafnleysingjar!
Guðfræðingur sem heitir Jón eitthvað hefur fengið heimsóknir mínar stöku sinnum. Hef lagt þar inn ágæt innlegg og eytt tíma í það. Svo sé ég að maðurinn hefur fjarlægt innlegg mín af því ég "er nafnleysingi." Sem er auðvitað ekki rétt því ég heiti fullu nafni en kýs að skrifa undir nafninu veffari.
Því er nú svo farið að ég kýs að skrifa undir höfundarnafni eins og fullt af fólki hefur gert í gegnum aldirnar. Það er ekkert að því, enda er ég ekkert að auglýsa eigin persónu, eins og umræddur talsmaður Guðs, heldur reyna að beina augum að innihaldi skriftanna frekar en þeim sem skrifar.
Það er eins og sumir skilji ekki að það er undir hverjum og einum hvort hann skrifar undir skírnarnafni eða ekki. Jú know, persónal ákvörðun. Megas ofl gera þetta. Að ráðast að höfundinum í stað þes að skeggræða það sem sagt er flokkast undir frekar þunna útgangspunkta.
Innihald texanna er það sem máli skiptir hvort eð er, og oftar en ekki eru menn á móti skrifum einhvers vegna þess að þær þóknast ekki þeirra skoðunum. Sem var tilvik þessa fordómafulla Guðsmanns. Mig grunar að ef maður er hommi eða með stórt nef, þá væri manni hent út úr þeim heilagleikanum.
Þessi fyrirsláttur með nafnleysingja er því þunnur þrettándi á pallborði stundum ágætrar umræðu á blog.is.
Kveðja veffari.
Sem ekki er erfitt að finna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.3.2007 kl. 02:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.3.2007 | 17:14
...að skulda meðlag á pizzukössum?
MBL: "Myndir af mönnum sem skulda meðlag á pizzukössum."
Ein smá spurning: Er hægt að skulda meðlag á pizzukössum?
![]() |
Myndir af mönnum sem skulda meðlag á pizzukössum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.3.2007 | 16:42
Ósýnilega Sunnudagsbloggið.
.
Yours Truly,
veffari
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.3.2007 | 04:10
Macintosh eða Windows tölvur. Epli eða appelsínur?
Fyrst þegar ég fór á fast með tölvu, ca 1994, þá var ég með Macintosh en færði mig yfir á Windows nokkrum árum seinna þar til um daginn að ég skellti mér á svona MacBook Pro sem aukatölvu.
Á þessum árum hefur maður gert sér smá grein fyrir því að fólk skipar sér í flokka eftir því hvaða stýrikerfi eru á tölvunum þeirra. Undalegt nokk. Macintosh notendur hata Windows og Windows notendur hata Macintosh. Fólk skipar sér svo í fylkingar og með vinahópum eftir þessu. Það má því segja að stýrikerfin komist alveg inná heila í ansi mörgum. Kannski er hægt að bera þetta fyrirbæri saman við ráðningar ef menn spila Golf eins og hinir, þá eru betri líkur á ráðningu. Ef menn skipa sér með samsk, PC fólki, þá eru kannski betri líkur á að fá lánuð forrit eða ráðleggingar með tæknivandamál.
Hef verið með annan fótinn á skrifstofu hér í NY, og þar tek ég eftir að menn eru sífellt að reka sig á einhver "stillingavandamál." Þessir skrifstofumenn hata Macintosh, svo þegar eithvað vandamálið kemur upp læt ég það vaða: "why don´t you just get a Mac?" Er litinn hornauga en það er samt eins og eitthvað sannleikskorn sé að laumast inn þrátt fyrir augnaráðið sem ég fæ fyrir skotið. Og ég hlæ. Samt vantar nú smælíkalla og myndaoptions á bloggið hér í gegnum Opera vafrarann. Hvernig hlæ ég hér?
Fór í dag í APPLE búðina á 5. Avenue. Þar var þvílíkt æði í gangi að mætti vel rugla saman við Star-Trek ráðstefnu, allt "svo ógeðslega kúl" og allskyns 70´s retróstílar í gangi á tækjadótinu. Hvítt harðplast með rúnuðum hornum og voða sjabbí tónlistarkúl eithvað í gangi og allir voða rokkandi og svo voða kúl eitthvað og uppteknir við að skoða og slefa á tölvurnar sem virtust vera að verða eins og risa-LCD skjáir úr geimstöðinni hjá Dr Spak. Sem er í sömu fötum og afgreiðslufólkið. Eða var hann dauður? Sko ég náði þessu ekki alveg. Inngangurinn var eins og maður væri lítill kall að labba ofan í einn tölvukassann. Ferköntuð útgáfa af IMPei glerpýramídanum í Louvre frá því fyrir eitthvað 20+ árum síðan, og með málm-epli hangandi í miðjunni. Hefði mátt vera hologram epli if you ask me.
Allavega var ætlunin að blogga smá um skoðunina þessar fyrstu 2 stuttu vikur, af Macintoshinum. Vægast sagt undarlega góð. Macintosh kerfið er til mun viðmótsþýðra og hingað til hefur tölvan farið fram úr öllum vonum. Til að mynda þegar ég tengdi þráðlausu músina, þá bara var það ekkert mál. Sömu mús tók 30 mínútur að koma inn á Pésann, með 1-1/2 bls leiðbeiningum, þrátt fyrir að stýrikerfið er með öllum síðustu uppfærslum. Þráðlaus netenging? Gluggi birtist og ég bara smellti á OK. Auðvitað eiga svona hlutir bara að virka og maður á ekkert að þurfa að stilla neitt.
Það sem mig grunar að sé helsti munurinn er að Macintoshinn gefi manni meiri frið til að vinna og einbeita sér. Það eru engar aðvaranir, engar blaðurbólur sem vara mann við vírusvarnir og allt hitt. Mac kerfið er bara hljótt og skýrt og vel hannað viðmót, svipmót og notendavænt kerfi. Að vísu kann ég illa við IBM-legt lyklaborðið á MacBook Pro en voða vel við takkana á MacBook, þessum hvítu.
Annað er að multimedia virkar mun þjálla. Til að mynda ef þú stingur DVD í Windows tölvu og vilt spila, þá uppgötvarðu að fyrst þarftu að fara á netið til að finna þér spilaraforrit. Svo eftir alls kyns hundakúnstir er hægt að byrja að spila DVD myndir.
Í Macintoshinum stingurðu disknum bara inn og þá kemur upp skjár sem þú getur spilað og stillt með lítilli fjarstýringu eða lyklaborðinu. Þannig að notandinn þarf ekki að hafa aukalega fyrir einföldustu hlutum, Macintoshinn bara virkar og ekkert maus. Það er auðvelt að búa til tónlist og kvikmyndir fyrst og fremst vegna þess að þetta bara liggur fyrir sem hluti af tölvunni sem þú kaupir.
Ég er því farinn að halda að fólkið sem skiptir sér í flokka sé annars vegar Windows notendur, sem sparar peninga með sínu kerfi en fá í staðinn fleiri smærri hausverki. Það er vel hægt að venjast mígreni ef það er ekki alveg bilað sárt. Macintosh notendur eru frekar svona fólk sem er með "góðann smekk" og velur sér apparat eins og það velur sér þægilegann, fallegann einfaldann stól. Windows notendur eru alveg eins með bara einhvern plast draslstól og lætur eins og því sé alveg sama hvernig útlit er á öllu. Ég hef ekki enn notað límmiðana sem fylgdu Mac tölvunni, mynd af sætu hvítu eppli. Á maður að líma þá á Windows tölvuna gömlu? Hugmyndir óskast fyrir þetta framtíðarverkefni.
Þá má spyrja hvort hægt sé að finna pólitíska fylgni meðal Mac notenda á móts við Windows? Er áberandi t.d. hvort Windows notendur séu hlutfallslega frekar áhangendur markaðsnauðhyggju og Bush, hvort sem þeir búa í útteipuðum trailer eða ósmekklegum ríkramannahöllum. Eða hvort Mac notendur séu meira svona intellectual listatýpur sem kann ekki á tölvur? Fólk getur verið voða viðkvæmt fyrir svona hlutum. Mér finnst mikil framför á Makkinum, eins og að komast í geimskip eftir að hafa verið að skransa um á ryðguðum kagga í öll þessi ár. Þetta er tölva númer 7 ef ég tel rétt. Ritvélar ekki taldar með.
En 2 vikur segja ekki allt, verð ábyggilega farinn að væla yfir einhverju sem kemur upp um hvað vitlaus ég raunverulega er með tölvur, hafandi alið upp manninn á svarta manual stálritvél 4 Christs sake. Sem minnir mig á þessa áhugaverðu síðu með total sögu tölvunnar:
http://www.computermuseum.li/Testpage/01HISTORYCD-Chrono1.htm
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 05:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég verð að segja að mér þykir frábært að halda að svona sé umræðuvert. Einhver markaður hækkar um 0,1% og þetta er birt sem einhver frétt?
Annar markaður lækkar um 0,17%.
Ég meina, skeði eitthvað? Hvað myndi fólk segja ef veðurfræðingur kæmi og segði hitastigið hærra í dag en í gær, af því það mældist 3,04 gráður í gær, en 3,05 í dag?
"Halló lesendur góðir, frétt dagsins: Ekkert skeði!"
Er það frétt ef sólarhrings umferð bíla á einhverri götu eru 1673 einn daginn en 1672 þann næsta?
Greinilega eitthvað komið úr sambandi í toppstykkinu.
Væri ekki bara betra að gera almennilega frétt um hvernig er að vera láglaunamaður með tvö börn? Fjallaferð austur á landi eða gera fréttarannsókn um spilafíkn braskara?
![]() |
Bæði hækkanir og lækkanir á Wall Street |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2007 | 00:38
Listin dofnar í öfugu hlutfalli við aukið lögregluvald.
"Sá hafði krotað á hurð hjá stofnun í borginni en pilturinn, sem er 15 ára, játaði sök því sem næst undanbragðalaust. Málið var svo leyst á staðnum en piltinum var gert að þrífa veggjakrotið af hurðinni, segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. "
Listin dofnar í öfugu hlutfalli við aukið lögregluvald.
Aumingja listamennirnir. Kannski er málverkið ekki dautt
og striginn ennþá lifandi, þrátt fyrir allar yfirlýsingarnar?
Þarf bara smá lögguvinnu
og handjárn í málið! Koma þessum guttum á strigann
með valdi!
![]() |
Gert að þrífa veggjakrotið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.3.2007 | 15:31
Ósýnilega veffarablogg dagsins í dag.
.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 15:26
Hégómi
"Margir vilja borða morgunverð með fyrrverandi seðlabankastjóra Bandaríkjanna, Alan Greenspan og eiginkonu hans, Andreu Michell, fréttamanni hjá NBC. Kostar morgunverðurinn fimm þúsund dali, 335 þúsund íslenskar krónur og gildir fyrir allt að fjóra." MBL í dag
Já er hann farinn að rukka fólk fyrir að gefa sér að éta líka? Greyið, hann fær kannski ekki nóg að éta hjá Bandaríska ríkinu eftir allar skattalækkanirnar, kassinn tómur! Og þetta er maðurinn sem Las Vegas spilavítið stólar á með ellilífeyri og húsnæðisbraskið?
Ætli hann sé með leiðir til að græða á klósettferðum líka?
![]() |
Barist um að borða morgunverð með Greenspan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 03:03
Sko, þetta er eins og að birta frétt um tannskemmdir án þess að segja frá tannburstanum.
"Tölvum sem tölvuþrjótar hafa brotist inn í og tekið yfir til þess að dreifa ruslpósti og tölvuveirum fjölgaði um tæp 30% í fyrra að því er fram kemur í nýrri könnun. Yfir sex milljónir tölva um allan heim tilheyra nú svokölluðum botnetum,"
Mér er bara spurn, eftir endalausa tölvuhöfuðverki, hvaða einkenni fylgja svona málum, og hvernig veit maður ef tölvan manns er sýkt og hvað er best að gera í þessu (fyrir utan að kaupa eitthvað drasl frá framleiðanda)
![]() |
Innrásir tölvuþrjóta jukust í fyrra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2007 | 20:08
PR fyrir Sinbad, PR fyrir prentað mál?
Sinbad skrifaður látinn á Wikipedia.
Alls kyns vitleysingar hafa skrifað misgóða dellu á Wikipedia þó mest af efninu sé gott.
Menn hlaupa til og vara aðra við að trúa því sem er á netinu. En prentað mál er óvart uppfullt af alls kyns dellu líka. Hef lesið fullt af bókin sem eru tóm steypa, án þess að nefna nein nöfn. Minni á forsíðufrétt þegar lýst var yfir að Íslendingar hefðu fundið efnavopnin í Írak. Ekki var það til framdráttar prentuðu máli. Svona dæmi eru mýmörg.
Minni líka á að sögurnar um efnavopnin voru sjálfar hreinn uppspuni stríðsbraskara, eins og átti að vera ljóst hverjum þeim sem las sig til fyrir innrásina.
Það má fara yfir söguna með þegar deCode var stofnað og fullt af fólki tapaði miklum upphæðum út af dellu í fjölmiðlunum almennt, þegar Íslendingar voru að fara af stað af fullri alvöru með peningahyggjuna. Fjölmiðlar hafa heilaþvegið almenning til að halda að lífið snúist bara um brask, og taka því þátt í að naga niður marga mikilvæga mannlega undirstöðuþætti samfélagsins. Nægir að nefna traust, hjálpsemi, virðing gagnvart öðru fólki ofl.
Dagblöðin eru því líka uppfull af alls kyns dellu sem oftast er lítið fylgt eftir, allavega eru á Wikipedia til leiðir til að leiðrétta, vegna fjölda ritstjóranna, eitthvað sem sjaldan er gert í rituðu máli. Það hefur líka sýnt sig á spjallrásum að hópar myndast sem takast á við að ritskoða, mest megnis í gegnum umræðu sem tekur dellur oft út af kortinu.
Ekki að það skipti mig neinu máli hvað einhver skrifar um Sinbad. Kannski var þetta bara hann sjálfur?
![]() |
Líflátinn á Wikipedia |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
arh
-
robertb
-
nimbus
-
hehau
-
soley
-
gmaria
-
tulugaq
-
andreaolafs
-
katanesdyrid
-
ingibjorgelsa
-
skodunmin
-
varmarsamtokin
-
joiragnars
-
lextalionis
-
gbo
-
malacai
-
floyde
-
skarfur
-
reykur
-
fsfi
-
gudmunduroli
-
hallgrimurg
-
veravakandi
-
drum
-
hlekkur
-
haddih
-
prakkarinn
-
kreppukallinn
-
krilli
-
liljabolla
-
magnusthor
-
manisvans
-
sgj
-
huldumenn
-
svarthamar
-
palmig
-
pjetur
-
pjeturstefans
-
ransu
-
raudurvettvangur
-
robertthorh
-
runarsv
-
lovelikeblood
-
sivvaeysteinsa
-
fia
-
stefans
-
stjornuskodun
-
midborg
-
sveinnolafsson
-
torfusamtokin
-
vest1
-
steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world