7.11.2009 | 00:21
Hrapa að ályktunum...
"Barack Obama varaði við því í dag að fólk hrapaði að ályktunum um hvað olli því að 39 ára gamall geðlæknir í hernum framdi fjöldamor.."
Google þýðingarvélin kemur sér vel.
Það er nú oftast með svona byssumenn sem ganga berserksgang, að þeir hafa verið undir álagi frá þeim sem þeir snúast gegn. Sem múslimi hefur hann sjálfsagt verið tekinn fyrir og þurft að heyra ýmislegt vegna eigin uppruna og trúarskoðana. Látið mig þekkja "arabahatrið" hér.
Fréttastöðvarnar eru á "klikk" stillingu í allann dag á kafi í þessum morðum.
Hitt er merkilegt en dæmigert að þeir 9 afganir sem myrtir voru í dag af NATÓ þ.á.m. 3 börn hafa lítið verið í fréttum. Þá erum við að tala um tvær tragedíur svo til sama daginn.
![]() |
Bandaríska þjóðin syrgir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.11.2009 | 15:25
Vísindi eða skáldskapur?
Er þetta ekki áhugavert.
Menn vilja trúa skáldum frekar en vísindunum.
Ef margar kolgeislagreiningar sýna þetta í mannvistarleifum, þá er ekki um að villast.
En jafnvel samtíma skáld okkar fá trúnaðinn í öðrum þjómálum. Slíkur er máttur hinna rituðu orða.
Það er enginn efi að Íslendingasögurnar eru verðmæti sem búa yfir mikilli speki og miklum sannleika. Lítum á landnámið í vestri, söguna og svo uppgröftinn þar. En sannleikurinn er í söguformi svolítið teygjanlegur og gæti þóknast ýmsum valdamönnum samtímans. Eða menn ritað eftir bestu getu miðað við aðstæður.
Umfangsmiklar aldursgreiningar eru bara það sem þær eru, setja ártöl langt aftur í tímann með áreiðanlegum aðferðum.
670? Fínt mál.
![]() |
Var Ísland numið 670? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2009 | 13:49
Bloomberg áfram borgarstjóri hér í New York.
Það var við því að búast að Bloomberg sigri, þetta er gaur sem er að kaupa sér góða umfjöllun í gegnum þá fréttamiðla sem hann á, s.s. 1 2
Hann og Berlusconi eiga kannski ýmislegt sameiginlegt.
En það er nú líka svo að "til að koma hlutum í verk" þarf að stjórna skoðunum fjöldans.
![]() |
Bloomberg marði sigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2009 | 13:39
Flatskjáarsýkin hræðilega
Allar þessar auglýsingar um ágæti flatskjáa hefur gert margann manninn sturlaðann.
Menn virðast leggja allt í rúst, sitt og annara, bara til að fá að snerta þessa hluti.
Er ekki tími til kominn að koma aftur niður á jörðina og bara fara á bókasafnið til að lesa góðar bækur, ha?
![]() |
Þjófurinn slasaðist í látunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2009 | 00:18
Auglýsingar virka svona.
![]() |
Vilja eyða meiru ef hnerrað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2009 | 17:05
Stálið úr tví-turnunum og...
"Herskip smíðað úr stáli úr world trade center."
Sá skipið sigla upp Hudson ánna áðan. Það eru nú víst bara 7,5 tonn af stáli, sem er voða lítið af þessum massa sko.
Ég vil nú ekki skemma daginn fyrir neinum en velti nú fyrir mér hvort afgangurinn af stálinu kæmi nokkuð frá Kína.
![]() |
Herskip smíðað úr stáli Tvíburaturnanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.11.2009 | 15:35
Hvort kemur á undan, eggið eða hænan?
Frétt segir að tengsl hafi fundist á milli þunglyndis og unninna/ferskra matvæla.
Snúum þessu aðeins á haus.
Hefur einhver spáð í hvort þunglyndir séu einfaldlega líklegri til að borða unnin matvæli?
Til dæmis; getur verið að þunglyndir njóti síður matargerðar og leiti því skyndilausna?
Hvort kemur á undan, eggið eða hænan? Og eru áhrifin af ferskum mat svona afgerandi?
Ég er ekki að draga úr gildi ferskra matvæla, heldur setja spurningamerki við hvort rannsóknin sé svona afgerandi eins og gefið er í skyn.
![]() |
Tengsl á milli þunglyndis og unninna matvæla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.10.2009 | 21:21
Tugþúsundir Íslendinga í valinn
Það er sannarlega staðreynd að sígarettureykingar hafa dregið til dauða tugþúsunda Íslendinga.
Þessi dauðdagi er margbrotinn og skelfileg upplifun. Það eru ótrúlega margir reykingarmenn sem ég þekkti. Og eru komnir í kalda gröf.
Sem betur fer er reynt að taka á þessu og mín vegna mætti endurskoða hvernig staðið er að innflutningi sígaretta, eða athuga frekari hömlur á sölu þeirra.
Svo eru líka hagsmunasamtök braskara í bjór- og öðrum áfengisiðnaði sem hafa sterk ítök í þjóðlífi vesturlanda og áhrif á löggjafann í gegnum peningavaldið. Þessi iðnaður notar frjálshyggjunöttarana sér til framdráttar.
En hvort þá sé ástæða til að fegra ýmsa ólöglega vímugjafa? Ætli það. Ef eins mikið væri reykt af hassi eða maríjuhana eins og gert er í miðborg Reykjavíkur með áfengi, þá held ég að almennur trassaskapur myndi snaraukast.
Þar fyrir utan mæli ég með að menn séu edrú, andi að sér hreinu lofti, drekki mikið hreint vatn og læri að haga sér eins og fífl án þess að þurfa að smakka vímuefni.
![]() |
Rekinn eftir að segja áfengi skaðlegra en önnur vímuefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.10.2009 | 02:04
Þversögnin er...
![]() |
Hamingjusamir í 66,4 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2009 | 15:54
Villtum kindastofni nær útrýmt?
Hvernig er það. Ef féð í Tálkna er búið að vera þarna frá miðri síðustu öld, hvers vegna í ósköpunum ekki bara láta það í friði??
50-60 ár sjálfbjarga, allt ómerkt, greinilega sérstakt fyrirbæri sem ætti að vera fylgst með af líffræðingum.
Þetta fé hefur nefnilega ekkert með haustsmölun að gera. Stundum finnst manni að mannfólkið búi yfir einhvers konar grunnhyggni sem erfitt er að skilja.
Kannski er þetta bara drápsfýsn sem þarf í sjálfu sér líka að útrýma. Tilgangslaus dráp eru akkúrat tilgangslaus og heimsk.
Man eftir frétt af albínó lunda í Vestmannaeyjum fyrir ca 15 árum. Hann var umsvifalaust drepinn. Já það er eftir öðru. Um að gera að taka fyrir það sérstaka og drepa það strax!
Horfði nýlega á Iwo Jima. Mér varð við lestur fréttarinnar hugsað til Japanana sem hentu sér fyrir björg frekar en lenda í klónum á óvininum.
Svo segir í fréttinni í dag að kindurnar hafi búið við harðræði.
Það er þá "mannúðin" að enda í sláturhúsinu eða vera hrakinn fram af björgum. Eitthvað mikið er að í rökfræðinni.
Ætli þurfi ekki lagabreytingar til að vernda þetta villta sauðfé frá þeim sem gerðu þessa aðför.
Manni er spurn eins og svo oft áður: Hvar eru náttúruverndarsamtökin núna? Eða er ekki nóg PR í þessu?
![]() |
Nítján kindur heimtar af Tálkna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.10.2009 | 16:07
Hallar undan fæti hjá víkingunum.
Enn hallar undan fæti hjá víkingunum. Svo virðist sem frásagnir og montið séu eintómt byggðar á sandi, loforð upp í ermina.
Nú sé ég fyrir mér einhvern útrásarfíkilinn koma upp með bisnissplan um að hér sé Pisa norðursins. Bæjaryfirvöld óttast að stytta falli um koll. Fólk dregst að til að skoða undrið.
Að lokum vil ég eindregið benda Mbl á að hætta með blikk-auglýsingarnar svo maður geti lesið greinarnar. Mér verður illt í augunum að reyna.
![]() |
Víkingastytta í Gimli hallast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2009 | 13:55
Íslensk list er bara útflutningsvara
"Íslensk list er útflutningsvara" eða svona hefur hljómurinn verið í ansi mörgum.
Nú er kominn tími á stóra sell-outið og verðmæti Íslenskrar listasögu komin á tombólu braskara.
Verða frjálsramarkaðs-öfga-sinnar ekki ánægðir ef þessi verk hverfa úr landi? Kjarval hlýtur jú bara að vera eins og "hver önnur vara" við hliðina á banönum og hjálpartækjum ástarlífsins.
Sorglegt hvernig hugarfarið hefur verið, og ég spái mun áfram verða.
-
Að lokum mælist ég til að þetta blikkljósa-auglýsingarusl á moggabl.is sé fjarlægt hið snarasta svo hægt sé að lesa greinarnar!
![]() |
Listaverkin lenda í eigu erlendra kröfuhafa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2009 | 17:43
Kort
Ekki væri verra að hafa kort með svona frétt svo lesendur skilji hvernig styttingin eigi sér stað.
![]() |
42 km styttra á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.10.2009 | 16:28
Warren commission?
Nú verða þessir menn að standa sig fyrir þjóðina og klára það sem er rétt byrjað á. Ég ræddi sjálfur örugglega við 1000 manns á síðasta ári. Halló?
Það er líklegt að þessi nefnd sé að vinna mikilvægustu vinnu á Íslandi sl. áratuga.
![]() |
Rætt við yfir 300 manns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2009 | 16:25
Íþróttafrétt og prins-bjálfi.
Er ekki hægt að halda þessum íþróttafréttum á sér vef?
Krónprinsinn hefði alveg eins getað farið á klósettið mín vegna.
Sko. strax komið efni í annan mögulegann sér-vef.
![]() |
Prins fyrir borð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.10.2009 | 10:51
Hlýnunin er.
Það er alltaf að verða hlýrra á Íslandi. Hér eru skógar að vaxa, korn á ökrum, ávetir á trjánum og bráðum vaxa bananar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Við skulum gera ráð fyrir apanýlendum og þá verður gaman að heimsækja aldingarðana, i stuttbuxum, með sólarolíuna í rassvasanum.
![]() |
Snjóaði snemma í ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.9.2009 | 13:25
Sammála, eða hvað?
"Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins að Ögmundur Jónasson hefði með afsögn sinni úr embætti heilbrigðisráðherra verið að lýsa yfir vantrausti á vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í Icesave-málinu."
Ég vissi nú ekki að Þorgerður væri ennþá menntamálaráðherra.
Annars er mér ekkert annt um hvað hún hefur að segja. Hún segir það sem passar í skrílshilluna.
Hún átti sæti í stjórn sem var viðriðin hrunið, sat yfir kúlulánum og allsk viðskiptaósiðferði í nafni öfgastefna frá Texas og Chicagó.
Þó er ég sammála Davíð ritstjóra að ekki eigi almenningur að borga skuldir óreiðumanna.
![]() |
Er að lýsa yfir vantrausti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.9.2009 | 12:44
Fækkað og fjölgað!
Þekki til hermanna sem eru færðir frá Írak til Afghanistan.
Spurning hvort á áróðurs-máli það kallist að fækka í Írak?
Kannski getur mbl.is skoðað þetta mál aðeins betur.
![]() |
Bandarískum hermönnum fækkað í Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.9.2009 | 09:26
Hindurvitni?
Það eru ólíkir hlutir að segjast hafa séð fljúgandi furðuhlut eða þá að halda að líf fyrirfinnist annars staðar í heiminum. Það eru allar líkur á að líf fyrirfinnist á fleiri geimklessum en bara jörðinni. Annað mál ef "fljúgandi diskar" eru að heimsækja okkur.
Það sem ég hef heyrt af lýsingum á svona sýnum er afar veikt, aðallega einhver æskuminning eða þá að það hljómi eins og skáldskapur eða þá væri bara flugvél. Svo hef ég séð ljósmyndir af þessu sem eru svo augljóslega feik.
Einhver til í að sannfæra mig?
![]() |
Sá fljúgandi furðuhlut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.9.2009 | 06:00
Er þetta rétt? Dagblöð útdauð eftir 2-3 áratugi?
Stríðsbraskarinn Murdoch heldur fram að dagblöð verði útdauð eftir 20-30 ár.
Ég er ekki viss um að þetta sé rétt, því margt getur breyzt í bransa á örfáum mánuðum eða árum og forsendur eftir 20 ár eru einfaldlega ekki vitaðar. Bók í kvikmyndaformi eða á snældu hefur sjálfsagt áhrif á lestur bóka fram og til baka.
Sjálfur held ég að dagblöð og netið séu að mörgu leyti bara aðskildir miðlar, og þó að netið ríði ýmsum að fullu, þá er það ekki endilega svona augljóst. Þegar menn þurfa að greiða fyrir áskriftir að fréttum á netinu, þá t.a.m.breytir það miklu. Ég myndi halda að á einhverjum punkti munu menn sjá betur hvernig aðgreina megi dagblöð/tímarit og netrit.
Svo eru staðbundin blöð í besta falli rótgróinn hluti af samfélaginu eins og til dæmis okkar Moggi sem hefur í heildina í gegnum áratugina verið nokkuð góður, með ágætu samansafni aðsendra greina, minningargreina, Lesbókar o.s.frv. Net-mogginn er bara allt öðruvísi miðill sem t.a.m. þrífst að stóru leyti á bloggi, ítarlegum gagnagrunni fasteignamarkaðar eða skyndifréttum.
Ég held því að Murdoch, sem er að fara að rukka fyrir fréttir á netinu, sé að reyna að koma á koppinn tekjulind og því er þetta dulin auglýsing hjá honum. Hann lifir og hrærist í slíkum pælingum:
"Þú borgar, af því dagblöð eru hvort eð er að hverfa."
Að öllum líkindum verður Murdoch þó sjálfur dauður eftir 20-30 ár og er gott að minnnast þáttar hans í alls konar beinum áróðri til dæmis þess að agitera fyrir mannlegum hörmungum og innrás í Írak eða krukka í pólitík innan BNA og utan.
Með sjónvarpsstöð á borð við FoxNews getur ekki nokkur maður talist vera áreiðanlegur. Jafnvel þó braskarinn hafi keypt Wall Street Journal.
![]() |
Murdoch boðar dauða dagblaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
arh
-
robertb
-
nimbus
-
hehau
-
soley
-
gmaria
-
tulugaq
-
andreaolafs
-
katanesdyrid
-
ingibjorgelsa
-
skodunmin
-
varmarsamtokin
-
joiragnars
-
lextalionis
-
gbo
-
malacai
-
floyde
-
skarfur
-
reykur
-
fsfi
-
gudmunduroli
-
hallgrimurg
-
veravakandi
-
drum
-
hlekkur
-
haddih
-
prakkarinn
-
kreppukallinn
-
krilli
-
liljabolla
-
magnusthor
-
manisvans
-
sgj
-
huldumenn
-
svarthamar
-
palmig
-
pjetur
-
pjeturstefans
-
ransu
-
raudurvettvangur
-
robertthorh
-
runarsv
-
lovelikeblood
-
sivvaeysteinsa
-
fia
-
stefans
-
stjornuskodun
-
midborg
-
sveinnolafsson
-
torfusamtokin
-
vest1
-
steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world