Bíla-skolplagnir í stað flugvallar í Vatnsmýri?

Flugvöllurinn í Reykjavík er fínn þar sem hann er. Þvílík þægindi að geta komist út á land með 5-10 mín keyrslu út á völl. Verst að bara forréttindahópar fá að lenda þarna í millilandafluginu á sínum einkaþotum, "við hin" þurfum að höktast 45 mín keyrslu þennan leiðinda Keflavíkurveg.

skipulagsslys

Með flugvelli helst svæðið opið. Þar fyrir utan stórefast ég um hvort borgarskipulagið og aðstandandi aðilar sé fært um að byggja almennilega á þessu svæði. Miðað við hvernig borgin hefir þróast á síðustu áratugum er augljóst að bílastæðin og bílamannvirkin myndu taka meira pláss á þessu svæði en sjálfar flugbrautirnar gera í dag.

Ég held fram að það eigi allavega að bíða þar til menn verði hæfir til að búa til almennilega þétta margþætta og mannlega borg. Ekki þetta bíla-skolplagnakerfi. Þangað til er best að ekki eyða góðri landspildu í enn ein skipulagsmistökin og bara bíða þess tíma þegar skipulagið stígur í vitið.


mbl.is Vatnsmýri fram yfir Geldinganes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The Geysers (1960)

CNN í dag: "Years before most knew about green energy, Iceland was tapping into its geysers and volcanoes"

Þetta er nú meira stuðið! Grin

Hér smá fróðleikur af netinu, mitt er í bold:

1970:
The Geothermal Resources Council is formed to encourage development of geothermal resources worldwide: The Geothermal Steam Act is enacted, which provides the Secretary of the Interior with the authority to lease public lands and other federal lands for geothermal exploration and development in an environmentally sound manner.

http://en.wikipedia.org/wiki/The_Geysers 
"The United States is the country with the greatest geothermal energy production.[24] The largest dry steam field in the world is The Geysers, 72 miles (116 km) north of San Francisco. The Geysers began in 1960, has 1360 MW of installed capacity and produces over 750 MW net. Calpine Corporation now owns 19 of the 21 plants in The Geysers and is currently the United States' largest producer of renewable geothermal energy. The other two plants are owned jointly by the Northern California Power Agency and the City of Santa Clara's municipal Electric Utility (now called Silicon Valley Power)."

Ekkert miðað við höfðatölu? Og þó, fer eftir hvernig það er skoðað: " It is estimated that the development meets 60 percent of the power demand for the coastal region between the Golden Gate Bridge and the Oregon state line.[1]

Kanar eru sem sagt ekki eins vitlausir og menn vilja vera láta. Einn munur á okkar landi og usa er að spilling stórfyrirtækja hefur verið fyrir hendi til að beina góðum hugmyndum af lestarsporinu. Í USA eru olíufyrirtæki á innsta kopp, eins og menn ættu að vita. Til þess eru vítin að varast þau.


mbl.is Ýtarleg umfjöllun um íslenskar vetnistilraunir á CNN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páfinn neitaði að fá hana í heimsókn!

Mér þykir betri grjónagrautsfrétt dagsins að páfinn hafi neitað að fá Rice í heimsókn. Sjá hér á BBC. Mogginn mætti gera frétt úr þessu. Margir kanar eru ekkert hressir með hana heldur, t.a.m. hvernig hún stóð sig í 911 rannsókninni. 


mbl.is Rice: Tímabært að hrinda tveggja ríkja lausninni í framkvæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnahagsundrið?

Er þetta rétt orð? Efnahagsundur? Hefur það ekki verið notað yfir fátækar þjóðir sem hafa komist á skömmum tíma í neysluhyggju og alsnægt? Í arkitektaskóla sem ég fór í hér í Ameríku 1984 var m.a. kennt í tíma að á Íslandi væri hæsta hlutfall húsa í einkaeigu í heiminum. Þ.e. minst um leigjendur og auðvitað er það samspil hins opinbera, að fólk smíðaði sér hús sjálft osfrv.

Ísland 1980 var sannarlega á kafi í neyslunni, mér þykir það undarlegt þegar látið er eins og Ísland hafi verið 3ja heims land þar til fyrir nokkrum árum. Sem væri hrein rangfærsla. Ísland hefur breyst á þessum tíma, rétt eins og önnur lönd, ýmsar tækniframfarir stuðluðu að mestu breytingunum. Það er sterkari undirrót og liggur sjálfsagt að baki hagvextinum.  

Væri ekki nær að tala um auðmannasprengingu eða eitthvað í þeim dúr?


mbl.is Er íslenska efnahagsundrinu ógnað?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lyfta hrapar í húsinu okkar

Var með Lilju okkar í baði þegar húsið byrjaði að hristast og allt skalf eins og í jarðskjálfta. Baðherbergið er hér við hliðina á lyftustokknum. Fyrst heyrðist smá búm búm og svo smájókst hljóðið þar til rosalegir skellir skóku húsið. Ég stökk að lyftunni og heyrði mikla skelli frá henni. Einhver dinglaði stöðugt á hjálp-takkann og æpti og gargaði á hjálp. Við "í æfingu" síðan 11. Sept fyrir 6 árum, kipptum stelpunni úr baðinu og hröðuðum okkur beint út um bakdyrnar. Fórum svo fram fyrir húsið og einhver hafði hringt í slökkviliðið, sem kom nú ótrúlega fljótt. Þeim tókst ekki að komast að lyftunni af fyrstu hæð, svo ákveðið var að fara í gegnum íbúðina okkar.

Við fórum aftur inn og opnuðum fyrir þeim. Þegar slökkviliðsmaður hafði spennt upp hurðina sást ofan á lyftuna og vélabúnaðinn og grátur frá konunni. Einn slökkviliðsmaðurinn fór ofan á lyftuna og opnaði hlera og sást þá ofan í og kona sem hafði fengið smá aukaferð en í lagi með hana.

Einn slökkviliðsmaðurinn var með járnstöng sem breyttist í stiga og smeygði honum niður gat í lyftuþakinu. Og upp skreið konan sem býr þa 4. hæð, dauðskelkuð og upp með sér. Lilju fannst þetta voða spennandi og fann vasaljós til að hjálpa slökkviliðsmönnunum að sjá í dimmum lyftugöngunum. Svo var hún sem huggaði konuna með því að spyrja hana spurninga sem bara 3já ára gæti fundið upp á.

Seinna um kvöldið kom einhver frá lyftufyrirtækinu og staðfesti að  einhverjir klossar voru ekki endurnýjaðir og áttu þeir að fyrirbyggja fall.

 


Staðreyndir á haus enn eina ferðina.

Bush var að senda hvað, 20,000 hermenn til Íraks og boðar svo "fækkun um 5700?? Eins og það boði fækkun? Hér erum við að ræða fjölgun hermanna, en Bush að segja að hún verði ekki eins mikil.

Forseti í klandri heimavið og annars staðar að snúa hlutum á haus. Svona er þegar byrjað er með ósannindum, þá er haldið áfram á sömu braut. Spurningin er hversu lengi á að halda á sömu braut.

Allavega er komin gagnrýni á hann núna, eitthvað sem hefði átt að vera fyrir hendi allt frá byrjun. Með réttri gagnrýni hefði farið öðruvísi, en fjölmiðlar brugðust skyldum sínum all hrikalega.


mbl.is Bush segir að 5700 hermenn verði komnir heim frá Írak fyrir jól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilldar galdratrix 3ja ára stelpu!

Lilja mínHún Lilja mín er 3ja ára og farin að læra ýmsa leiki og galdratrix. Við spyrjum í hvaða hendi peningurinn sé svo fann ég peninginn á bak við eyrað hennar!

Hún kemur svona til mín og spyr í hvorri hendi peningurinn sé. Ég sé það að sjálfsögðu og bendi á þá hönd sem er ekki með peninginn o.s.frv. Svo geri ég það sama, set peninginnn í aðra höndina mína og hún getur sér til í hvorri hönd hann sé. Svo geri ég þetta aftur en fel aurinn milli fingranna. Þá sér hún ekki neinn pening í höndunum. Þá gríp ég í eyrað hennar og "finn" peninginn þar.

Þetta finnst henni nú voða skrýtið.

Nokkrum dögum seinna lágum við uppi í rúmi og búin að lesa og syngja úr þessari frábæru vísnabók Iðunnar. Þá teygir hún sig í pening sem lá á náttborðinu og setur hann á koddann undir eyrað mitt. Hún sest svo upp, lítur á mig og spyr:

"Í hvaða hönd er peningurinn?"

LoL 


Stíflueyðir veldur forgangstregðu.

Danir flippa út út af stíflueyði. Áróðurinn er svo gegndarlaus að menn halda að hryðjuverkamenn komi til með að drepa þá. Staðreyndin er nú samt að menn munu deyja úr hjarta-/æða sjúkdómum og krabbameinum fyrst og fremst. Þar liggur hættan og menn eru svo að eltast við stíflueyði.

Hvað verður það næst? Leiðindi? Leiðindi finnast í fréttunum og fólk að drepast úr þeim. 

Greinilega eitthvað sem er að í umræðunni. 

Whistling

 


mbl.is Engin hætta reyndist á ferðum í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleymdist að minnast á hlutverk bankanna í þessu máli.

Frétt: "Leigubílstjórar í New York hóta verkfalli"

Yfirleitt er ég hlynntur þeim sem fara í verkfall, en í þessu tilviki er ég nú aldeilis meðfylgjandi því að leigubílaeigendur í NYC fara að hundskast til að setja kreditkortalesara í leigubílana. Þetta er svona eitt af 3ja heims einkennum í BNA.

Næsta skref er að rúlla aftur mest af þessari markaðsvæðingardellu sem hefur eyðilagt landið og sett tiltölulega fámennann hóp landsmanna í 1sta heims BNA og stærstann hóp landsmanna í 3ja heimsklassann. 

Það er nú þó svoldið til í því sem leigubílstjórar segja að þeir komi til með að bera kostnaðinn af greiðslukortaviðskiptunum. Mikið af litlum bisnessum hafa ekkert efni á að notast við greiðslukort vegna græðgi bankanna sem hafa of háar rentur af hverri greiðslu og há mánaðargjöld eða borga seint það sem sett er á kortin. Þess vegna þarf borgarstjórinn að takast á við bankana samhliða þessum aðgerðum, en auðvitað gerir hann það ekki, hann er hluti af þeirri valdablokk.

Vinir hans , bankaeigendurnir, munu jú græða á tá og fingri. Hann áfram vinsæll í krafti rétthugsandi tilkynningaveitna.


mbl.is Leigubílstjórar í New York hóta verkfalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blómsalarnir lokaðir?

Frétt: "Bush segir hægt að fækka hermönnum í Írak ef öryggisástandið batnar."

mission-accomplishedFlott hjá Gogga vini okkar að fara í heimsókn til Mesópótamíu. Já hann er hugrakkur maður. Hefði getað orðið góður hermaður. Auðvitað er hægt að fækka Amerískum hermönnum ef öryggisástandið batnar. En snýr málið þannig? Snýst þetta svona um heimför hermannanna? Hjá mér vakna nú strax 3 spurningar:

1. Hvað er nú það sem raunverulega lagar öryggisástandið? Fleiri "sorteringar" sprengjuflugvéla? Meira Fallujah?
2. Er sá sem kom þessu ástandi á virkilega hæfur til að laga það?
3. Er Goggi að segja þennan fleiga headline frasa til að fá enn fleiri hermenn senda til Íraks? "Til að laga ástandið" og þ.m. klára "missionið"? (gulrót) Er það ekki það sem stendur milli línanna? Klassískt escalation?

Hvað halda menn? 


mbl.is Bush segir hægt að fækka hermönnum í Írak ef öryggisástandið batnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blöðrur og fagnaðarlæti duga nú skammt. Orðrómur að Kastró sé allur.

Við skulum vona að ástandið skáni en það er nú bara alsendis óvíst. Ástandið í landinu var grundvöllur þess að þessi einsræðisherra komst til valda til að byrja með. Framtíðin er alltaf svo björt, jafnvel í Tehran árið 1978 (áður en Khomeini tók yfir.) Saga Kúbu hefur margar hliðar og nauðsynlegt að vega og meta hvað er jákvætt og hvað er neikvætt í þessari sögu. Ástandið í nærliggjandi löndum er nú ekki endilega til fyrirmyndar.

Hér er einn vinkill: Ef Kastró er dauður munu öfgaöfl í BNA berja á brjóst sér og segjast hafa "komið á lýðræði með staðfestu," þrátt fyrir að hafa verið stór þröskuldur framfara Kúbu í öll þessi ár. Viðskiptabannið hefur verið einn dauðanagli þjóðarinnar og er ein stærsta undirrót vandamálanna ásamt persónulegu ófrelsi. Viðskiptabanninu hefur verið viðhaldið vegna þrýstings frá Kúbu-mafíuöflum.
Kastró kom mafíu frá völdum en hún stjórnaði síðan mörgu óbeint frá BNA í öll þessi ár. Landsmönnum ekki til framdráttar. Gætu Kastróistar sagt að hann hafi ekki verið bógu harður við að slátra mafíunni? Mafíósar segja hann hafa stolið eignum sínum, spilavítum og melluhótelum ofl.

Nú sjá mafíósarnir sér leik á borði og við skulum muna að þeir eru ekki síður akkilesar hæll Kúbu en einræðisherrann. Merkilegt annars hvað margir eru hliðhollir undir mafíuna, jafnvel á Íslandi.


mbl.is Orðrómur um að Kastró sé allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

20 milljarða hagnaður LV -Þokkalegt

Það er glæsilegt að sjá að LV er að skila inn hagnaði. Þetta gengur þvert á þessar hrakfallaspár sem eru orðnar svoldið þreytandi. Gengur líka á þessa staðalímynd að ríkisrekið apparat geti ekki borið sig.


mbl.is 19,1 milljarðs króna hagnaður hjá Landsvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægt er að sjá video og myndir sem ég tók af brunanum hér á blogginu mínu

Skoðið þetta  http://veffari.blog.is/blog/veffari/entry/289914/   Reyndar er unnið að niðurrifi byggingarinnar. Og reyndar er hún ground-zero bygging sem skemmdist mikið 9-11.

Eldurinn í dag fór upp um alla byggingu, töluvert hrundi úr henni, ýmislegt brann á götunni og alveg upp í þak og er enn að brenna núna, 7-8 klst seinna.
Nú er klukkan að ganga ellefu að kveldi til og ennþá eru eldar í Deutsche Bank háhýsinu hér rétt fyrir norðan. Eitthvað virðist ganga illa að slökkva þá -eða þeir eru að láta þá brenna út. Nú hafa þessir eldar varað í 7-8 klst. Það hrynja ennþá brennandi hlutir af húsinu og detta alveg niður og allskyns skruðningar heyrast, þó ekki eins mikið og fyrr í dag, líklegast eitthvað timbur af stillönsum utaná. Hér er brunalykt um allt hverfi og í íbúðinni hjá okkur. Sé í myrkrinu einhverja ganga um í byggingunni með vasaljós að skoða skemmdir, væntanlega að meta strúktúrinn.


mbl.is Eldur kviknaði í háhýsi í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NYC: Eldar í Deutsche Bank háhýsinu hér rétt hjá. Vídeó og ljósmynd.

Deutsche Bank Ólafur Þórðarson Töluverður eldur hefur verið í Deutsche Bank háhýsinu í dag, hér um 200m fyrir norðan okkur.

Mikið af slökkviliði búið að keyra að byggingunni en eins og 11 Sept fyrir 6 árum, þá var hægt að labba ansi nálægt háhýsinu. Maður sá slökkviliðsmenn príla upp stillansana, hvers vegna spyr maður. Ekki sé ég ástæðu til að hætta lífi til að bjarga tómri byggingu.

Náði nokkrum vídeóum af þessu. Hér er eitt ágætt sem þið megið skoða:   

VIDEO:  http://www.youtube.com/watch?v=U3hsNoeQoFQ 

Eldurinn virtist mér sjáandi vera að mestu á 1-2 miðhæðum og í stillönsum utan á byggingunni. Það er mikill eldur sem sást á einni hæðinni (erfitt að ljósmynda) Og mikið efst, amk þegar ég tók myndirnar. Eitthvað brak féll niður og á tíma var eldur í götuhæð. Byggingin í forgrunni huldi aðal brunasvæðið sjónum en ég heyrði töluverð hrun-hljóð.  Það er óneitanlega að um mann fari hrollur, lyktin, eldar svona hátt uppi og reykurinn vekja endurminningar um 11. Sept. Þetta sést vel út um gluggann hér líka, eins og þetta fyrir 6 árum. Þannig vill til að við vorum að skoða íbúðir í báðum byggingunum í forgrunni nú í vikunni. Ein þeirra er beint fyrir framan þessa brennandi.

Deutsche Bank Mynd> Ólafur ÞórðarsonÞessi bygging spilaði stórt hlutverk 11 sept 2001 og tók mikinn skell með braki eldi og höggbylgju. Stórir hlutar úr syðri turni hrundi beint á Deutsche Bank og eiginlega fannst mér við hæfi að ekki rífa hana einmitt af því hún stóðst árásina. Hvað um það...

12. September þegar við Donna löbbuðum framhjá "The day after" í þykku ryklagi og gríðarlegar rústir allt í kring tók ég eftir margra hæða háu stykki úr syðri turni fast í norðurhliðinni. Nú er sem sagt verið að rífa bygginguna og ekki tekst betur til en að þessir eldar eru á fullu. Sé ekkert um þetta á CNN vefsíðu.

 

Viðbót:
New York Times virðist hafa vaknað:
http://www.nytimes.com/aponline/us/AP-NY-Deutsche-Bank-Fire.html?_r=1&ref=nyregion&oref=slogin 
Deutsche Bank eldur, mynd: Ólafur ÞórðarsonTók einnig þessa mynd út um gluggann hjá okkur rétt í þessu og eldurinn er í rénum eftir á að giska 4-5 klst bál.


Hjólreiðatúr í gær meðfram Hudson ánni.

Í gær fórum við í okkar venulega hjólreiðatúr meðfram Hudson ánni. 25km leið, Lilja mín í kerrunni og venjulega komum við við á róló á hálfnaðri leið og líka fáum okkur ís. Mmm. Það vildi nú svo til að það byrjaði að rigna rétt áður en við náðum róló svo ég sneri við og við rétt náðum að komast í skjól undir hraðbrautinni áður en skýfallið kom.

Festi á filmu þar sem ég var nýstiginn af hjólinu og Lilja að rumska eftir næs blund. Engin smá demba.

http://www.youtube.com/watch?v=n9Ms-f8EIc8

xx


Ó, þú þétta Grand byggð, hversu mikið af síld getum við talið ofan í þitt tóma hlaðborð?

Við og við heyrir maður þessi fleygu orð í umræðunni um borg, að þétt byggð sé að reikna út svona og svo marga íbúa á hektara. Svona eins og þegar maður reiknar út hvað eru margar kartöflur í 50 kg pokum, eða hversu mikið af síld er hægt að telja ofan í eina tunnu -svo við notumst við líkingu þeirra sem hvað hræddastir eru við almennilegt borgarskipulag.

Ekki það sama. Jón og Séra Jón. Að kalla eitthvað í Efra-Breiðholti þéttbýli væri náttúrulega reginmisskilningur á hvað borg er. Borg mælist ekki bara í einhverjum íbúum á hektara, en byggjendur stórra bygginga nota þetta nú samt gjarnan til að slá upp hentifrösum. Málpípur þeirra, sumir borgarfulltrúarnir, tala málinu stíft því nú er um að gera að kyssa reku dugnaðarmanna og segja Pass. Og fjárfestarnir græða og hlægja en vita ekki GRAND STANDhvað þeir hafa gert. Þetta er bara allt svo gaman! Og þeir sem vinna hjá skipulaginu skilja ekkert heldur, mætti maður ætla miðað við afraksturinn á sl. áratugum. En gott er nú að hafa cappucino vél á skrifstofunni. Það auðveldar reikninginn á íbúum per hektara og bílum per klukkustund og á skólpinu líka, ef út í það er farið. Og um að gera að samþykkja blokkir upp á tugi hæða og forljót græn og grá Grand hótel sem gefa ekkert í umhverfið í hverju  þessi reðurtákn litla aurapúkans standa. Nú er bara að finna túrista sem vilja dvelja á aumingja litla saklausa hreina Íslandi, fyrir grand verð.

Farðu nú til miðborgar eiginlegu Amsterdam og drekktu amk 1/2 rauðvín með eitt gott kort í rassvasanum. Pældu svoldið í því sem þú sérð. París, London, Kaupmannahöfn, Stokkhólmur, Berlín... þær duga líka. Þarna eru engar raunhæfar "fyrirmyndaborgir" heldur borgir uppfullar af raunhæfum fyrirmyndum. Svo skemmtilega vill til að blýantar voru yddaðir beitt fyrir þessum hugmyndum í Reykjavík allt upp undir seinni heimsstyrjöld. Menn skildu hugtakið "gangstétt" og að mannlíf passaði í umgjörð sem reynsla var fyrir. Gangstétt var mikilvægur þáttur í samfélaginu og eðlilega. Hvað annað á gangstétt að vera?

Farðu svo edrú upp í  efra Breiðholt eða eitt af "þéttu" Kópavogshverfunum og spekleraðu í þeim. Eitthvað skeði eftir seinni heimsstyrjöld. Kannski eru það afleiðingar sprengjuárása bandamanna á þéttar mannabyggðir í Japan og Þýskalandi. Verið að eyða hluta af mannkynssögunni. Nýr kafli, nýtt umhverfi þar sem ákveðnir hlutir eru bannaðir. Auðvitað leynast góðir hlutir inn á milli, en árþúsunda reynsla borgargerðar fyrir mannlíf var kastað út um bílgluggann eins og skyndibitaumbúðum. Bíllinn var nýja frelsið, ætlunin var að keyra langt út í buskann og enginn vissi hvert stefnan var tekin. Kannski sem lengst í burtu frá atómsprengjunni? En leiðin var nú á endanum tekin í úthverfis-botnlangakast, þar sem mitt er mitt, gegnumferð er bönnuð og óviðkomandi bannaður aðgangur, snúðu við og farðu sömu leið til baka og ekki koma aftur.

Í dag er það "please leave us alone, we are blogging on the mogginn, all by ourselves!" Tré og gróður umhverfis, allt er vænt sem vel er grænt eða whatever. Hvort er fólkið í bílunum eða tölvunum, það gæti verið "að Ellýast," en ekki getur það verið að umgangast hvort annað í gangstétta- "kjötheimum!"

Þetta villuramb hins nýja mannlega umhverfis eftirstríðsáranna sem reyndar er löngu úrelt hefur verið að ryðja niður ýmsu í gömlu borginni sem upprunalega var byggt á reynslu og smágerðum mannlegum þáttum. Rakst fyrir rúmum mánuði á innrás þessa skrímslis á Lindargötu, götu sem á í vök að verjast á meðan götu má kalla. Húsamynd götunnar heilstæð á köflum þó margt þurfi að laga. Skyndilega, out of nowhere er komið "grænt bílastæði."

 Grin 

Hvað svo sem gera má með þá þversögn:  http://www.youtube.com/watch?v=aBsFhdOvM_U 

Allavega hafa þeir sem vildu útsýni fengið sitt útsýni. Grænt útsýni af götunni beint á útsýnisblokkirnar sínar þar sem fáir útvaldir geta dominerað yfir litla draslinu, "séð" hvað svo sem þeir eru að sjá. Yfir aðra hafnir. Og sjáðu mig í þokkabót í fínu íbúðinni minni in the sky, and... "Please, leave me alone!!" Gangstéttin á kafla orðin eins og í úthverfunum, utan einn saklausann brunahana, græna bílastæðið orðið lýti á borgarmynstrinu og menningararfinum. Hér blasir svo við síldartunna með útsýni, ein á miðri bryggju, úr samhengi við allt sitt umhverfi.

En þétta byggðin er hvergi sjáanleg í þessum nýlegu táknum hégómans. Sama þó drjúgt hafi verið talið ofan í tunnuna.


Kársnesið og baráttan við Kópavogs-kommúnistablokkirnar.

Kársnesið.

Það vildi svo til að ég fór um Kársnesið nýlega. Þetta er mjög rótgróið hverfi og eitthvað við það sem er mjög spes. Það er hægt að segja að þetta hverfi hafi töluverðann karakter, einmitt af því það er ekki hannað í einu holli og byggðist að hluta úr einhveri fátækt. Kannski er ekki að undra að það þarf hæstvirt skipulagsyfirvöld í Kópavogi til að stefna gæðum hverfisins í hættu. Einn kosturinn er einmit sá að þetta er á nesi þar sem takmörkuð umferð er um. Eins konar ágætis svefnhverfi fyrir stórreykjavíkursvæðið.

Miðað við skipulagsslysin í Kópavogi: Smáralindarumhverfið og hverfin þar í kring og að maður tali ekki um þessa tímaskekkju sem verið er að nauðga Fossvogsdal með (As we speak) þá er ekki hægt að búast við miklu frá Kópavogsyfirvöldum með að bæta eitt eða neitt.

gatan verðlaunaða

 

 

 

 

Keyrði nýlega í Smárahverfið og það lá við að manni yrði illt í maganum. Þetta kaldranalega hraðbrautarhverfi er alger hryllingur. Ég hugsaði með mér, "Hvar er fólkið eiginlega?" Svo á einhverjum staurnum við eitt hraðbrautardraslið mátti greina grænt skilti þar sem hraðbrautin hafði verið verðlaunuð sem einhver fyrirmyndargata(!) Ef einhver er að reyna að vera fyndinn, þá hefur það tekist vel. Ég reyndi að taka mynd af skiltinu en það var ekki hægt að stoppa bílinn og umferðin of hröð. Skilaboðin: Þú ert óvelkominn í þetta hverfi. Þetta verðlaunahverfi.

Svo þegar keyrt er niður Fossvogdalinn blasir við annað umhverfisslys þar sem verið er að byggja meira af svona ömurlegum Kópavogs-kommúnistablokkum. Eða er það ekki ágætt nýyrði fyrir Kommúnistablokk í Fossvogsdalnumþessar innfluttu kommúnistablokkir? Þær voru líka vinsælar í Austur Berlín þó með minna af kjúttí beygjuhornum og svoleis glans-æði. Kannski er meira glansandi drasl utanáhangandi á þessum í hverfinu vestan við Kringlumýrarbrautina. Sama draslið.

Hvers vegna þarf að gera stóra höfn í Kópavogi? Eru þetta ekki bara skemmdir á annars ágætu nesi? Þarna á að liggja um stígur til útivistar, ekki enn eitt iðnaðarhverfið með fleiri Kópavogs-kommúnistablokkum.

Þar fyrir utan væri ágætt ef einhver getur bent mér á hvar ég kemst í skrifaða lýsingu af Kársnesinu um og eftir seinni heimsstyrjöld. Kveðja Ólafur


mbl.is Átök um skipulag Kársness í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lesbókargrein eftir Stefán Snævarr

Er Íslendingur sem hef búið í BNA síðan 1983 og verð að taka undir með Stefáni Snævarr í ýmsu af því sem hann ber fram í sinni grein. Hef séð allskyns fátækt hér í USA og áttaði mig fyrir löngu á að Hannes og aðrir ámóta fræðimenn hafa komið til Bandaríkjanna til að vera við fyrirlestra í fínum háskólum og kynnast frægum nöfnum með boðum til Íslands og slíkt. Háskólar í bandaríkjunum eru að mörgu leyti verndaðir frá hinu daglega amstri Bandarískra þegna. Þeir eru staðir þar sem forréttindi eru mikils metin og ekki allir komast að. Þá háskóla sem ég hef verið viðriðinn má segja að nemendur séu stundum að kaupa sér gráður eins og hverja aðra banana. 
Hannes hefur örugglega ekki farið til Bandaríkja hins venjulega borgara og dvalið í fátækrarhverfi, hjólhýsahverfi, sveitafátækt eða meðal verkamanna eða afgreiðslufólkinu í vinnugúlagi kapíltalismans; Home Depot, Stop and Shop, Duane Reade, Dunkin Donuts eða McDonalds með sinn 50,000 kall á mánuði fyrir skatta. Þess stóra hluta Bandaríkjamanna sem hafa sára lítið milli handanna þó þeir eigi tvö eða þrjú sjónvörp til að geta verið almennilega heilaþvegnir af sápukúlu-auglýsingadrasli.
1/4-1/5 Kana hafa vegabréf, sem segir meira en margt annað um hvað þeir hafa í raun efni á. Hannes er því einn af þeim fjölmörgu sem kemur og kynnist rjómanum. Gúddí slikkerí er alltaf ljómandi á bragðið og sannarlega í frásögur færandi fyrir eftirlegukindurnar back home.
Það eru nokkrar bækur um BNA sem ég er með á lista hér til hægri sem ég mæli sterklega með, í framhaldi af því að þó Ameríka sé uppfull af tækifærum, þá eru nú ekki nema sumir sem geta virkilega notfært sér þau.
Vona svo að Stefán skrifi meira á móti þessari markaðs-æðis-dellu sem er að breyta Íslandi í þetta leiðinda peningapunga þjóðfélag, þar sem mannleg gildi eru að hverfa fyrir blindri hugsjón einnarlínumanna, sem líta á þig með slyfsi um hálsinn og spyrja:
"Hvers virði ætli þessi sé?"
Bestu kveðjur.
Ólafur

Nýr vegaspotti í Hornyfirði.

Það er ekki bara mýrlendið og ósnortin náttúra sem tapast, heldur er tekin möl einhvers staðar. Hvað á s.s. að græðast við styttingu hringvegar um 10km? Af hverju er ekki hægt að nota þessa aura til að bara bæta veginn sem fyrir er og setja hjólreiðastíga um höfuðborgarsvæðið í staðinn? Keyrði Hornyfjörðinn nýlega, sé ekkert að veginum, nema hann má laga og vantar nýja brú á sama stað. Brúarstæðið er fallegt og styttingar eru ekki sjálfkrafa af hinu góða. Talandi um vegamál á þessum slóðum, þá mætti fara austar um einn fjörð og laga Lónsheiðarveginn, bora göng eða koma veginum fyrir Þvottárskriður í viðunnandi ásigkomulag með yfirbyggingu eða eitthvað. Skil ekki hvaða mikla þörf er á þessum tilgangslausu stórkallalegu vegalagningum til að stytta langar leiðir um örfáa kílómetra og sneiða framhjá landinu. Nú eru flestir vegir orðnir svo beinir að það er að verða fúlt að keyra um landið. Maður finnur ekki einu sinni fyrir því og bannað að stoppa hvar sem er því hraðinn gerir það hættulegt. Fólk sofnar af leiðindaakstri. Alltaf sneitt framhjá þorpunum, þau ekki lengur viðkomustaður af því vegagerðin setur allt í hraðann, framhjákeyrslur -og einkarekstur innan þorpa fer beint á hausinn. You know, þegar kúnnana vantar.

Sko. Ef hægt er að leggja veginn í gegnum sjálfa Höfn, þá værum við að tala um eitthvað gagnlegt fyrir byggðarlagið. Umferð í gegnum bæinn myndi vera eins og vítamínssprauta, því í dag keyrir stór hluti bara framhjá afleggjaranum, langt í burtu frá Höfn.

Einn á móti því að taka þjóðveginn út úr þorpunum sem uxu upp vegna hans eða þorpum sem njóta góðs af vegar #1.


mbl.is Höfða mál vegna fyrirhugaðar vegalagningar um Hornafjarðarfljót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stormsveipur í Brooklyn!

"Tornado in Brooklyn"

Svo hljóða sumar fréttir í kvöld. Stormsveipurinn fór yfir Brooklyn snemma í morgun. Það er eftir öðru hér að það tekur einn dag að fatta hvort stormsveipur hafi komið eða ekki. Meðal annars fór stormsveipurinn yfir Garð Leifs Eiríkssonar þar sem einhver tré brotnuðu og bílar skemmdust. Tekið skal fram fyrir þá sem fá hland fyrir hjartað, að Garður Leifs Eiríkssonar er eftir sem ég best veit hálfgert bílastæði og beint undir fjölfarinni hraðbraut.
http://maps.google.com/maps?client=safari&rls=is-is&q=Leif+Ericson+Park+Square&ie=UTF-8&oe=UTF-8&um=1&sa=N&tab=wl
Allavega var það 6km kílómetra í suður frá okkur svo við vorum alveg safe. Hundurinn var snarvitlaus þó, spangólaði og gelti í alla nótt og heimtaði að fá að koma upp í rúm vegna þrumuveðurs og klikkaðra eldinga. Svo þegar ég fór loks úr bælinu fór hundurinn að hossa sér á hægri löppinni. Greinilega eitthvað mikið í gangi.
Þegar fólk fór í vinnuna voru allar lestar stopp og samgöngukerfin í ólagi. Barnapían 2 klst of sein og allt í lamasessi.
Allavega, sko, þá er þetta komið á hreint. Þetta voru ekki hryðjuverk.


« Fyrri síða | Næsta síða »

 

Ólafur Þórðarson

Þetta er blogg frá Manhattan.  Þetta blogg er sambland af faglegu blaðri og ýmsum skoðunum á þjóðfélagslegum hlutum.Ég hef til langs tíma verið gagnrýnandi í arkitektúr-, hönnunar- og borgarskipulagsdeildum ýmissa ágætra háskóla á austurströnd BNA. Þar fyrir utan reyni ég að lesa bækur um ýmis samfélagsmál og tengja saman í stærri heimsmynd.

Öll skynsamleg komment eru velkomin og vel þegin og gætu fengið ítarlegt svar.

Varðandi nafnleysingjaparanoju, þá heiti ég Ólafur Þórðarson. Bú!

Allt efni er höfundarvarið, en má dreifa ef getið er hvaðan það kemur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband