2.3.2008 | 03:22
Fornbílaklúbbur, af hverju ekki 727-100
727-100 fyrsta þotan sem kom til landsins 1967 er að sjálfsögðu merkur áfangi í sögu Íslands. Þotan sjálf er ekki bara svoldið kúl eins og gömlu fornbílarnir sem fæstir myndu fussa og sveia yfir. Hún er upphafið á nýju tímabili í sögu landsins. Hún er ein af þessum með dyrnar á rassinum ef svo má segja, gengið er út að aftan með innbyggðum stiga. Það eru varla fleiri en 100 slíkar vélar í notkun í dag, síðast þegar ég flaug með einni slíkri var frá New York til Mexíkó í Ágúst 2001.
En málið með þoturnar er að þær gerbreyttu landinu. Einangrun var þá að fullu rofin, sem hefur haft miklar afleiðingar fyrir þjóðfélagið allt. Ferðalög til útlanda jukust og auðvitað er því þannig háttað í dag að þotan er ómissandi máttarstólpi þjóðfélagsins. Við myndum ekki lifa eins og við gerum ef ekki væri fyrir þotur af öllum stærðum og gerðum. Þá er eðlilegt að spyrja hvort ekki sé nauðsynlegt að hlúa að rótunum og eiga fyrstu þotuna? Hversu mikils virði er að eiga hlut sem gerbreytti þjóðinni? Ef við lítum aftur og hugsum að ekki hafi henni verið bjargað þegar kostur var á, þá kannski eiga menn eftir að baga sig í handabakið. Svona til samanburðar, er hægt að setja verðmiða á fyrsta Íslenska bílinn? Á fyrsta íslenska reiðhjólið? Fyrsta steinhúsið? ... Hversu mikils virði eru fornbílarnir í fornbílaklúbbnum? Eru þeir ekki menningarverðmæti? Jú auðvitað eru þeir það. Og svona þota er það líka. Það má segja að þotur séu stór lykill að menningarverðmætum.
Svo væri flott ef flugvöllurinn í Reykjavík yrði gerður almennilega upp með glæsilegri nýrri alþjóðaflugstöð í Vatnsmýri og eitt gamalt flugskýlið gert að flugvélasafni. Flott þar, á alþjóðaflugvelli í hjarta Reykjavíkur. Ef ég ætti kost á að lenda í Reykjavík eða Keflavík myndi ég sannarlega velja Reykjavík.
Fyrsta þota Íslendinga í hættu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Ferðalög, Menning og listir, Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 03:26 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- arh
- robertb
- nimbus
- hehau
- soley
- gmaria
- tulugaq
- andreaolafs
- katanesdyrid
- ingibjorgelsa
- skodunmin
- varmarsamtokin
- joiragnars
- lextalionis
- gbo
- malacai
- floyde
- skarfur
- reykur
- fsfi
- gudmunduroli
- hallgrimurg
- veravakandi
- drum
- hlekkur
- haddih
- prakkarinn
- kreppukallinn
- krilli
- liljabolla
- magnusthor
- manisvans
- sgj
- huldumenn
- svarthamar
- palmig
- pjetur
- pjeturstefans
- ransu
- raudurvettvangur
- robertthorh
- runarsv
- lovelikeblood
- sivvaeysteinsa
- fia
- stefans
- stjornuskodun
- midborg
- sveinnolafsson
- torfusamtokin
- vest1
- steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world
Athugasemdir
Þetta voru fallegar vélar og manni fynnst alltaf sárt að horfa uppá svona gripi eyðilagða. Að vísu er varla ein skrúfa eftir af upprunalegu vélinni og UPS voru búnir að breyta henni töluvert. En 80 milljónir eru í raun og veru afskaplega lítill peningur á Íslandi í dag...eitt hesthús?
Það kæmi mér ekki á óvart að Arngrímur Jóhanns og félagar tækju sig til og stofnuðu "tvista-vinafélag" og kæmu gripunum norður á Akureyri í nýja flugmynjasafnið. Ég held að það séu yfir 100 meðlimir í Þristavinafélaginu sem heldur DC-3 vélinni gangandi.
Róbert Björnsson, 2.3.2008 kl. 06:17
Heill og sæll, veffari góður og aðrir skrifarar !
Þakka þér; einkar athyglisvert innlegg, í samgöngumála flóruna.
Með beztu kveðjum, sem fyrr / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 17:05
Það var kúl að hafa afturvængina uppá stéli
annars er það fært í stílinn að segja að þessi þota hafi rofið einangrunina. Rofið gerðist svona hægt og sígandi, Gullfoss skipið breytti miklu. Vickers vélarnar sem komu 1957 voru fyrstu vélarnar með jafnþrýstibúnaði. Svo kom DC6 Cloudmasterinn hjá Loftleiðum 1959 sem hafði enn meira flugþol. Síðan var næsta skref þegar Loftleiðir keyptu Canadair 160 farþegavélar árið 1964. Loftleiðir tóku fyrstu þotuna í notkun 1970 sem var DC8 en Flugfélag Íslands var á undan 1967 þegar Gullfaxi kom. Ég var fimm ára og man eftir því - var eitthvað að vappa í Vatnsmýrinni og það var þjóðhátíð og miklar væntingar í loftinu. Vissulegar voru bundnar miklar vonir við "Þotuöld" og við erum á þeim aldri að tengja okkur við þetta móment. Framfarir síðan þá eru ekki miklar. Við erum einfaldlega stödd í næstu kynslóðinni 737/757 sem hefur verið hér síðan 1990 ef ég man rétt. Eftir um 1-2 ár kemur næsta bylting þegar næsta kynslóð kemur frá Boeing þegar Dreamlinerinn (787) kemur. Flugþreyta á að minnka verulega þar sem hávaði verður minni, þrýstingur nær jörðu (1600 metra í stað 2400 metra), rakastig nær því sem okkur er eðlilegt vegna notkun nýrra non-málma, ósón verður fjarlægt, ég á nú eftir að sjá það.
Örn Orrason (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 21:02
Var að rekast á vefsíður Baldurs Sveinssonar með helling af flugvélamyndum. Vel þess virði að kíkja á þær.
Annars held ég að þoturnar hafi rofið einangrunina að því marki sem við þekkjum í dag. Þær eru hraðskreiðari og þægilegri. Þoturnar voru með ímynd sem gerbreyttu afstöðu fólks til flugs, þ.e. farþegaflugs. Iconið á þessum tíma var Concorde og það var runnið upp nýtt tímabil. Auðvitað er þróun í þessu eins og öðru. En sólarlandaferðirnar voru komnar á fullt uppúr 1970+ ef ég man rétt. En ég leitaði að einhverju um þessar Canadair 160 og fann ekki neitt.
Ég man líka eftir flugsýningum á Reykjavíkurflugvelli. Þá var maður uppi á Öskjuhlíð sem smá patti og horfði á vélar sigla yfir flugbrautunum og gera einhverjar hundakúnstir. Flott að hafa flugvöllinn þarna en ekki einhverjar forljótar blokkir í hafsjó bílastæða.
Ólafur Þórðarson, 3.3.2008 kl. 05:16
Þær hétur reyndar Canadair CL-44D og tóku 160 farvþega, síðar 189 farþega og voru þá stærstu skrúfuþotur sem flugu yfir N-Atlantshafið.
Fárbært yfirlit yfir flugsöguna er að finna á http://www.flugsafn.is/html_isl/flugsaga-01.html
Örn Orrason (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 09:42
Já flott yfirlit á flugsafn.is!
Ólafur Þórðarson, 3.3.2008 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.