Vá, 0,1% ÆÐI!! Ég er að springa af kæti, fjölskyldan dansandi og hoppandi!

Ég verð að segja að mér þykir frábært að halda að svona sé umræðuvert. Einhver markaður hækkar um 0,1% og þetta er birt sem einhver frétt?

Annar markaður lækkar um 0,17%.

Ég meina, skeði eitthvað? Hvað myndi fólk segja ef veðurfræðingur kæmi og segði hitastigið hærra í dag en í gær, af því það mældist 3,04 gráður í gær, en 3,05 í dag?

"Halló lesendur góðir, frétt dagsins: Ekkert skeði!"

Er það frétt ef sólarhrings umferð bíla á einhverri götu eru 1673 einn daginn en 1672 þann næsta?

Greinilega eitthvað komið úr sambandi í toppstykkinu.

Væri ekki bara betra að gera almennilega frétt um hvernig er að vera láglaunamaður með tvö börn? Fjallaferð austur á landi eða gera fréttarannsókn um spilafíkn braskara?


mbl.is Bæði hækkanir og lækkanir á Wall Street
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Ólafur Þórðarson

Þetta er blogg frá Manhattan.  Þetta blogg er sambland af faglegu blaðri og ýmsum skoðunum á þjóðfélagslegum hlutum.Ég hef til langs tíma verið gagnrýnandi í arkitektúr-, hönnunar- og borgarskipulagsdeildum ýmissa ágætra háskóla á austurströnd BNA. Þar fyrir utan reyni ég að lesa bækur um ýmis samfélagsmál og tengja saman í stærri heimsmynd.

Öll skynsamleg komment eru velkomin og vel þegin og gætu fengið ítarlegt svar.

Varðandi nafnleysingjaparanoju, þá heiti ég Ólafur Þórðarson. Bú!

Allt efni er höfundarvarið, en má dreifa ef getið er hvaðan það kemur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1920

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband