10.3.2009 | 14:48
JFK - 911 - Íslenskt efnahagshrun
Rannsókn hvað?
Auðvitað munu menn hylma yfir sannleikann. Hann er of erfiður til að horfast í augu við. Þeir sem hafa komið af stað einkavæðingarferlinu og selt fiskveiðiheimildirnar og sjálft ríkið einhverjum köllum úti í bæ eru fyrstir í röð atburðarrásar sem endaði í bullfréttamennsku og áróðri um "peningasigra" eins og við værum að horfa á íþróttafréttir. Og að "okkar lið" væri að sigra heiminn.
En "okkar lið" var bara að þykjast, eins og trúður í jakkafötum sem er nýbúinn að fá kreditkortaheimild með risa-yfirdrátt og góðann "arf frá foreldrum" þ.e. ríkinu.
Ég segi hér við Ameríska vini mína að einu sinni var Íslenskt þjóðfélag bara fúnkerandi fyrir venjulegt fólk. En svo komu inn einhverjir jólasveinar úr Amerískum Bisnissskólum sem þóttust kunna að breyta hlutum. En kaninn á ýmsa góða frasa, og einn þeirra er: "If it aint broke don't fix it."
Nú eru margir búnir að fixa kerfið og það hrynur eins og spilaborg. Að fá ráðgjöf frá alþjóðabanka eða IMF er í raun fáránlegt miðað við reynslu af þeim í ýmsum löndum, t.a.m. Argentínu og löndum Afríku þar sem efnhagur hefur verið í sligum skuldasúpu sem enginn endi er á. Ýmsar kenningar eru á reiki með að þessar alþjóðastofnanir þjóni í raun þröngum hópi braskara sem vill engum vel, enda samkeppnin GUÐ og allir réttdræpir.
Of margir eru á innsta kopp til að dagsljósið fái að skína á rétta staði. Og dagsljósið endar á andliti Milton Friedmans, aðal trúðsins, sem hefur verið dýrkaður og settur á stall falsguða af allskonar fábjánum.
En hann er í raun bara auglýsingasnepill fyrir fámennann hóp braskara og kúkalabba. Í anda "kenninga" hans hafa nokkrar kynslóðir hagfræðinga menntast og sagt hefur verið að hagfræðinám sl. áratuga sé í raun byggt á vitlausri kenningu. Það er því svolítið flott að fá hagfræðing sem skilyrði fyrir að vera stjórnandi Seðlabankans, miðað við hvað hagfræðin hefur skilað þjóðarbúinu fyrir næstu áratugi. Með fullri virðingu þá er hagfræðin byggð á kenningum, ekki staðreyndum á borð við verkfræði eða raunvísindafög.
Sérfræðingarnir eru oft langbestir í að eyðileggja hlutina. Ég skal rökstyðja það betur ef menn vilja.
Gagnrýnir fámenna rannsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:00 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- arh
- robertb
- nimbus
- hehau
- soley
- gmaria
- tulugaq
- andreaolafs
- katanesdyrid
- ingibjorgelsa
- skodunmin
- varmarsamtokin
- joiragnars
- lextalionis
- gbo
- malacai
- floyde
- skarfur
- reykur
- fsfi
- gudmunduroli
- hallgrimurg
- veravakandi
- drum
- hlekkur
- haddih
- prakkarinn
- kreppukallinn
- krilli
- liljabolla
- magnusthor
- manisvans
- sgj
- huldumenn
- svarthamar
- palmig
- pjetur
- pjeturstefans
- ransu
- raudurvettvangur
- robertthorh
- runarsv
- lovelikeblood
- sivvaeysteinsa
- fia
- stefans
- stjornuskodun
- midborg
- sveinnolafsson
- torfusamtokin
- vest1
- steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world
Athugasemdir
Heyr heyr, einnig þarf fólk að sjá sorann sem þessir alþjóðlegu hagfræðingar koma á almenning í gegn um AGS eða World Bank, sem eru einkafyrirtæki ská á móti hvor öðru í miðborg Washington USA. Endilega horfið á The economic hitman og Money as dept en í þessum videóklippum er nær allt sem við þurfum að vita um þessu fámennu klíku sem er að skuldetja hvert einasta landsbarn og heiminn í dag. Sumir kalla þessa klíku Illuminati en ég kýs að kalla þá "The old fucking manipulators".
Kær kveðja og Lifi Byltingin!!!
Alfreð Símonarson, 10.3.2009 kl. 15:26
Nota bene þá er Geir Haarde hagfræðimenntaður frá www.sais-jhu.edu og hélt fyrirlestur 2006 þ.s. hann pimpar Íslandi sem ódýrari hóru:http://www.sais-jhu.edu/news-and-events/fall2006.htm
Hérna er sjálfur fyrirlesturinn http://www.sais-jhu.edu/mp3_player/haarde101106.htm
Alfreð Símonarson, 10.3.2009 kl. 15:34
Áhugaverðir linkar, Alfreð. Skoða þá þegar ég er búinn að vinna dagsverkið og elda mat í fjölskylduna.
Ólafur Þórðarson, 10.3.2009 kl. 15:48
Já, það er svo merkilegt að hagfræðingarnir virðast hlusta á kenningar sem eru svo augljóslega rangar að api með liðagigt sér að þær ganga aldrei upp. Ef maður gefur markaðinn frjálsan munu þeir ríku sjá um þá fátæku. Svo er sagt að hipparnir hafi verið bláeygðir.
Annars er þetta svo gagnsætt plott að það hálfa væri nóg. IMF, WB, Federal Reserve... allt sama gutlið, sama fólkið á bak við þetta allt saman. Drop the Debt. Flott mál, með því skilyrði að allir innflutningstollar verði lagðir niður í nafni frjálsrar samkeppni, svo evrópskir og amerískir bændur sem lifa á niðurgreiðslum geti kaffært markaðinn. Svo koma stórfyrirtækin og kaupa upp allt ræktarland af gjaldþrota bændunum fyrir eina kýr svo hægt sé að plundra landið seinna þegar við umhverfisvænu vesturlandahipparnir verðum farin að keyra um á biodiesel sem einhversstaðar þarf að rækta.
Geir pimpar Ísland sem ódýra hóru? Ekkert nýtt. Hefur einhver lesið bæklinginn Lowest Energy Prices, þar sem talað er um íslendinga sem vinnufúsan og ódýran starfskraft sem er sjaldan veikur?
Afsakið rausið.
Villi Asgeirsson, 10.3.2009 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.