"Ó jú, en skuldirnar eru í einkageiranum"

Oft var mér sagt... að risavaxnar skuldir Íslendinga skiptu litlu máli af því þær "væru mestmegnis í einkageiranum. Ríkið væri skuldlaust."
Svo virðist sem tsunami ósannsögli hafi flætt yfir þjóðina á síðasta áratug. Uppgangurinn bara ein stór lygi?
Spurningin hjá mér er hverjir í raun hagnast á Íslandi á hnjánum. Eru einhverjir sem renna hýru auga til auðlindanna? Hverjir eru það? Ef svo er, er það þess virði að ríkið taki á sig allar þessar "Einka-" ábyrgðir?
Og ef bankarnir voru einkavæddir á sínum tíma, af hverju er nú þessi ríkisábyrgð, því spurning hvort þeir hafi verið einkavæddir ef eigendur bera ekki ábyrgð á "eigum sínum."
Bara spyr.


mbl.is Ísland standi við alþjóðlegar skuldbindingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þetta er það sem ég hef ekki verið að skilja. Annars var einhver að segja að við skulduðum það sem Tryggingasjóður ætti og ekki krónu meir. Það væri gott að vita hvað er í gangi og hver skuldar hvað og ef millarnir ætli að leggja eitthvað í púkkið.

Villi Asgeirsson, 16.10.2008 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Ólafur Þórðarson

Þetta er blogg frá Manhattan.  Þetta blogg er sambland af faglegu blaðri og ýmsum skoðunum á þjóðfélagslegum hlutum.Ég hef til langs tíma verið gagnrýnandi í arkitektúr-, hönnunar- og borgarskipulagsdeildum ýmissa ágætra háskóla á austurströnd BNA. Þar fyrir utan reyni ég að lesa bækur um ýmis samfélagsmál og tengja saman í stærri heimsmynd.

Öll skynsamleg komment eru velkomin og vel þegin og gætu fengið ítarlegt svar.

Varðandi nafnleysingjaparanoju, þá heiti ég Ólafur Þórðarson. Bú!

Allt efni er höfundarvarið, en má dreifa ef getið er hvaðan það kemur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 1925

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband