Clinton verður næsti forseti BNA.

Það sagði ég á síðasta ári, að ég myndi éta hattinn minn ef frú Clinton yrði ekki kosin forseti. Nú virðist spá mín ganga skrefi nær, því Ameríska pressan er nýlega búin að fá tilmæli að ofan að hoppa í hvaða drullusvaði sem er til að kippa "þessum svertingja" úr keppninni. Þeir sem ráða á bak við tjöldin standa á bak við fjölmiðlaeinokun og Íraksinnrásina, t.d. braskarinn Murdoch, sem er að sölsa undir sig enn fleiri "frétta"miðla, hafa ákveðið að Obama sé ekki hæfur (sbr. New York Times slóganið "News thats fit") og því er bara að negla hann á krosslaga spýtur af því hann þekkir einhver prest sem er að rífa kjaft. 

Pressan er sjálf fyrir löngu búin að vinsa út þá sem eru allra óhæfastir, þá sem myndu teljast eðlilegir af okkur, fólki tengdu Skandínavískum siðferðigildum. Nefni sem dæmi Ralph Nader sem kann að forgangsraða eftir mikilvægi málefna. En fær enga pressu. Eins konar dirty politics hafa klippt hann og hina út úr myndinni með því að pressan velur hverja hún fjallar um. 

throwoutclintonFréttunum er stjórnað að ofan með sápulöðri og eru áróðursmaskínur afls sem við fáum lítið heyrt rætt um af -í pressunni sem þykist vera svo frjáls. Skrípaleikurinn með Bill og Monikku fyrir 10 árum er dæmi um hvernig pressan er einstaklega ó-fagleg og hreint verkfæri pólitískra öfgaafla, þeirra sem ég kýs að kalla einu nafni "auglýsendur." Sumir kunna að undrast yfir þessu að vera að gagnrýna "hlutlausu auglýsendurna," en hljóta að skilja að það eru á endanum auglýsendur sem geta haft lokaorðið og stjórnað pressunni í gegnum fjárútlát til handa viðkomandi  media-fyrirtækja.  "Frjáls markaðspressa" snýst jú um auglýsendurna, ekki hlutlausar ítarfréttir. Frjáls pressa er ekki sama og frjáls markaðspressa. Þetta er sérlega skýrt hér í Bandaríkjunum. Það getur verið erfitt að sjá annað ef maður er alinn upp við að auglýsingar séu skemmtilegar og æði gamansamar og branding þeirra vert umræðuefni og uppbyggilegra í samræðum en launahækkun til handa starfsfólki barnaheimila. Auðvitað er gaman að fyndnum auglýsingum en skilaboðin rista dýpra og fleira býr að baki.

Ekkert blað eða sjónvarp fer að gagnrýna stóra auglýsendur sína, sbr. máltækið "never bite the hand that feeds you." Það eru einhverjar undantekningar, sem sanna regluna. Mussolini var m.a. frægur fyrir í ræðu að jafna fasismanum við "corporatism" og það á við í dag ef við hugsum um þetta hjónaband fyrirtækja og stjórnvalds þar sem fyrirtækin ákveða um ýmsar lagabreytingar sér til handa. Fyrirtækin að þjóðreka lýðræðið. Með því að mata almenning á "fréttum" um ákveðin mál getum "við" talað um að meirihluti vilji þetta eða hitt, eftir hentisemi þeirra sem hafa hljóðnemann í hendi sér. Og það eru braskarar upp til hópa sem einoka þessa aðstöðu hér í BNA. Og þeirra mál er að koma að frú Clinton. 

Á meðan fröken olíukreppa er að spóka sig á bensínstöðvunum, fátæktarplága, láglaunaþrælahald, rasismi, öfgamennska í trúmálum og ofbeldis- og braskaradýrkun ræður ferðinni hjá stórum hópum, þá eru menn að rugla saman forsetaframboði Obama og presti sem hefur einhverjar skoðanir. Bandaríkin hafa 1% þegna sinna í fangelsi þar sem fleiri nauðganir eiga sér stað en utan veggja fangelsanna. Presturinn er ekki að bjóða sig fram en samt vantar ekki bullukollana til að velta sér upp úr þessum ruglingi. Að kaupa þessa dellu með að presturinn og Obama séu tvær hliðar á einum silfurpening. Og halda að þetta sé eðlileg frétt. "Dökkir menn" eru ekki allir eins. Obama er ekki þessi prestur, og hverjum kemur það við hvort presturinn er fyrrum nágranni, frændi, prestur eða faðir Obama? 

Ekki heggur svona yfirhylming á vandamálakjarna á sjálfann hnút Bandarísks almennings, en fréttin er í raun leiktjöld þ.e. skrípafréttum um ekki neitt. Á bak við þetta er ein raunfréttin sú að þriðjungur Bandaríkjamanna er án heilsutrygginga og svimandi sjúkrareikningar eru ein aðal ástæða þess að menn lýsa yfir persónulegu fjárhagslegu gjaldþroti. Það er stórt kosningamál og skandallinn er sá að kapítalíska kerfið (sem semur fréttirnar) er bara ekki að virka. Og þó, það virkar fyrir ákveðna hópa. Peningakallar eru gerðir að ritsjórum ritsjóra. Það er ekki nóg um að verða veikur, heldur mega óprúttnir sölumenn ráðskast með veikindi manns og rukka mann um slöngu í nefið og tittlingaskít á uppsprengdu einkavæddu verði. Stór hluti almennings vinnur á skítalaunum í vonlausum ópersónulegum djobbum fyrir kommúnísk mega fyrirtæki, fær lítið eða ekkert sumarfrí, enga heilsutryggingu og er svo í þokkabót stjórnað algerlega í gegnum pressu sem er algert failure af því það er engin ríkis-pressa til að vega á móti æsingadellunni. Verið er að bera fólk út úr húsum um þver og endilöng Bandaríkin vegna kreppu og pressan er að velta sér upp úr atriði sem hentar í Hollywood handriti fyrir fábjána. Þetta er sem sagt ekki bara eitthvað sem er að ske í Bandaríkjunum af því "Kanar eru so vitlausir." Berlinske Tidende sýnist mér ganga upp í að láta eins og að fréttin sé þessi prestur og Obama, og vitnar í skeinisnepilinn New York Post eins og það sé eitthvað fréttablað til að taka mark á. Það er jú í eign Murdoch rétt eins og auglýsingaskrumstöðin FOXNews og fleira mannskemmandi rusl.

Eitthvað er "rotten in the state of Denmark" og það er áherslan á forgangsatriði. Þegar vandamálin eru ekki rædd, þá versna þau.

Og hvað er það sem við lærum af þessu? Jú það er margt. M.a. að peningar í bland við stjórnmál eru eitthvað sem getur drepið lýðræðislega prócessinn. "One dollar, one vote" eins og frasinn segir. Sjálfsskipaðir peningaforréttindamenn kaupa sér þær lagabreytingar og skoðanir sem henta þeirra peningamafíum best. Frú Clinton ávann sér einmitt stærstu peningasummurnar frá stórum styrktaraðilum á síðasta ári og þeir munu ekki leyfa "sinni fjárfestingu" að tapa. Frú Clinton er heljarinnar kona, jákvæð og kraftmikil, og virðist hafa þennan prýðisgóða hæfileika að geta brosað framan í vandamálin og segja stundum meiningu sína.

Vonandi sendir hún ekki sprengjuflugvélar inn yfir Íran. 

Kveðja úr háhýsinu.


mbl.is Obama snýr baki við prestinum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært blogg og hittir naglann á beint höfuðið.

Kapítalismi á ekki heima í lýðræði, hann hreinlega eyðileggur lýðræðið.

Bandaríkin eru frábært dæmi um eyðileggingu lýðræðis í gegnum óheftan kapítalisma.

Peningaöflin ráða hreinlega öllu í gegnum spillta stjórnmálamenn og fjölmiðla.

Þótt ég myndi reyna, þá gæti ég ekki verið meira sammála áherslum þessa bloggs.

Hafðu þakkir fyrir Veffari

AJ 

AJ (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 09:40

2 Smámynd: Róbert Björnsson

Hverju orði sannara, því miður.

Það er með ólíkindum hversu frú Clinton og hennar maskína hefur lagst lágt í þessari kosningabaráttu...hún svífst einskis þessi bitch!  Það liggur við að maður kysi frekar gamla skoffínið McCain heldur en Clinton ef hún nær að eyðileggja þetta alveg eins og allt stefnir í.

Annars ættu bláu fylkin bara að taka sig saman og segja sig úr Bandaríkjunum og stofna þingræði með þeim Nader, Kucinich og Gravel í ríkisstjórn og Ron Paul í stjórnarandstöðu hehe

Róbert Björnsson, 1.5.2008 kl. 14:08

3 Smámynd: Adda bloggar

kv adda

Adda bloggar, 2.5.2008 kl. 18:45

4 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Batnandi manni er best að lifa. Hvað segir veffarinn um þetta, er það virkilega svo að fólk viti ekkert. Hlustið

Rúnar Sveinbjörnsson, 16.5.2008 kl. 23:36

5 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Jón Baldvin er afar skarpur. Takk fyrir linkinn, Rúnar.

Ólafur Þórðarson, 17.5.2008 kl. 07:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Ólafur Þórðarson

Þetta er blogg frá Manhattan.  Þetta blogg er sambland af faglegu blaðri og ýmsum skoðunum á þjóðfélagslegum hlutum.Ég hef til langs tíma verið gagnrýnandi í arkitektúr-, hönnunar- og borgarskipulagsdeildum ýmissa ágætra háskóla á austurströnd BNA. Þar fyrir utan reyni ég að lesa bækur um ýmis samfélagsmál og tengja saman í stærri heimsmynd.

Öll skynsamleg komment eru velkomin og vel þegin og gætu fengið ítarlegt svar.

Varðandi nafnleysingjaparanoju, þá heiti ég Ólafur Þórðarson. Bú!

Allt efni er höfundarvarið, en má dreifa ef getið er hvaðan það kemur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 1924

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband