25.10.2008 | 15:48
Krónan?
Björgúlfur, hinn mæti útrásarmaður, styrktaraðili listalífs og skurðgoð frjálshyggjupostulana segir í viðtali að krónan hafi verið mesta vandamálið. Maður veltir fyrir sér hvað býr að baki svona orðum, því ég veit ekki betur en að krónan hafi verið óvenju sterk og íslendingar getað veitt sér hluti fram yfir það sem er normið, vegna þess að krónan hafi verið góður gjaldmiðill. Og svo hefur maður heyrt að ýmsir hafi þénað drjúgt á krónunni í gegnum viðskipti. Stundum kemur gengisstaðan sér vel, stundum ekki. Soddan er det min ven.
En einhvern veginn held ég að þetta sé frekar grunn útskýring. Krónan er bara krónan okkar. Vandamálið hefur frekar verið ákveðið hugarfar sl. áratug með að allt sé falt, að í lagi sé að veðsetja upp í topp, selja fyrirtæki fram og aftur til að auka verðgildið og veðsetja meira, taka meiri lán og það er líklegast svona óábyrg græðgisvæðing og brask sem hefur eyðilagt hlutina frekar en krónan. Að húsnæðisverð hafi fjórfaldast í verði er risastór afturför í þjóðfélaginu. Að fólk sé að borga í áratug af íbúð sinni og höfuðstólinn sé sífellt að hækka í krónutölum, það er vandamálið. Þetta er eins og að leigja íbúð einhvers staðar og taka úr henni eldavél og arinn áður en henni er skilað aftur til eiganda. Bankar orðnir hinir nýju lénsherrar, það er vandamálið. Almenningur orðnir þrælar bankanna og allur þessi píramídi byggður úr sandi og leiktjöldum... og allir á leiðinni á hausinn... Að Ísland skuldi tífalda árlega þjóðarframleiðslu, það er vandamálið. Ég held það hafi lítið með krónuna sem slíka að gera, heldur viðskiptamáta sem hefur til langs tíma ekki meikað sens, brask er alltaf bara brask, sama hvernig við lítum á málin. Frjálshyggjan var alltaf skipbrot og sjálfsblekking. Ef menn notuðu viðskiptamódel sem ekki gengu upp með krónunni, af hverju voru þau viðskiptamódel notuð til að byrja með? Sem sagt ef á móti blæs, þá kolfellur spilaborgin út af krónunni? Maður bara spyr hver er byggingarmeistari slíks furðuverks?
Viðskipti, þjónustur og framleiðsla eru undirstaða. Las Vegas og verðbréf eru brauðfætur; aðferðafræði sjálfsblekkingarsjúkra. Nú erum við að fá gígantískt lán til að dekka hin lánin sem voru tekin til að dekka hin lánin sem voru tekin til að dekka hin lánin sem voru tekin til að... Hvar endar þessi della eiginlega, og er þeim gróðafíklum sem komu okkur í þetta vandamál treystandi til að koma okkur úr því? Ég held nú ekki!
Breytingin sem þarf að koma núna felst ekki í krónunni sjálfri.
Ég held að vandamálið útskýrist miklu frekar í að bankarnir hundsuðu sífelldar viðvaranir að utan. Ekki fyrir svo löngu síðan voru "Danir að reyna að eyðileggja íslenska banka!" Helvítis Danirnir. Eða hvað? Fyrir 3. árum var Royal Bank of Scotland að reyna að eyðileggja Ísland með sinni raunhæfu skýrslu um brauðfótamál íslensks efnahags. Umræðan er í raun á grátbroslegum forsendum. Fyrirmenn bankanna áttu að vera fremst í röð til að hlusta vel á ráðgjöf fjármálastofnana að utan en þeir hafa brugðist, í einhverjum PR leik í fjölmiðlum, leik með snöru, sífellt að gera hana lengri og lengri með "Áfram Ísland!" frösum. Og svo hlógu þeir og borguðu hver öðrum laun sem voru MILLJÓN á dag. Þar er myndbirting vandamálsins.
Svo má nú segja eins og er að menn eiga að haga sínum viðskiptum á þeim útgangspunkti sem tekur m.a. mið af því að Íslendingar nota krónuna. Ekki miða við að krónan sé vandamálið. Sumir hafa gengið svo langt að vilja taka upp enskuna. Nú er spurning hvort við þurfum ekki að taka upp frystinguna og frysta eignir þeirra sem tóku sér há laun fyrir að sofa á verðinum?
Kannski er allt þetta bara fyrirsögninni að kenna.
Meðfylgjandi mynd er af verki mínu "Kaffibolli nýfrjálshyggjunnar" 2004, úr steypu. (Einkaeign safnara í London).
![]() |
Krónan stærsta vandamálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Einkavæðing, Menning og listir, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:34 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
arh
-
robertb
-
nimbus
-
hehau
-
soley
-
gmaria
-
tulugaq
-
andreaolafs
-
katanesdyrid
-
ingibjorgelsa
-
skodunmin
-
varmarsamtokin
-
joiragnars
-
lextalionis
-
gbo
-
malacai
-
floyde
-
skarfur
-
reykur
-
fsfi
-
gudmunduroli
-
hallgrimurg
-
veravakandi
-
drum
-
hlekkur
-
haddih
-
prakkarinn
-
kreppukallinn
-
krilli
-
liljabolla
-
magnusthor
-
manisvans
-
sgj
-
huldumenn
-
svarthamar
-
palmig
-
pjetur
-
pjeturstefans
-
ransu
-
raudurvettvangur
-
robertthorh
-
runarsv
-
lovelikeblood
-
sivvaeysteinsa
-
fia
-
stefans
-
stjornuskodun
-
midborg
-
sveinnolafsson
-
torfusamtokin
-
vest1
-
steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world
Athugasemdir
Mjög góð færsla hjá þér og alveg eftir þeim hugsunum sem ég hef haft um þessi mál.
Takk fyrir þetta og Kærleikskveðja til USA
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.10.2008 kl. 15:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.