7.12.2007 | 21:20
Prófdómar undanfarna daga
Var að koma áðan úr graduate-borgarskipulagsdeild Pratt Institute hér í New York borg þar sem nemendur kynntu skipulagsverkefni þessarar annar. Hef sem sagt undanfarna daga verið prófdómari og það getur verið snúið að setja sig inn í verkefni nemenda án þess að vera of gagnrýninn, en að gera krítina uppbyggjandi og fræðandi. Til þess er jú menntun gerð; til að skoða hluti frá mismunandi sjónarhornum.
Þarna áðan í Pratt voru þetta mestu skýjaborgir sem ég hef hingað til séð í borgarskipulagsdeild, sennilega af því tekið var fyrir þröngt rannsóknarsvið; hvernig hægt er að minnka C02 í gegnum borgarskipulag. Í fyrstu kann þetta að hljóma fáránlega en þegar litið er til þess að um helmingur C02 útblásturs hér í BNA er vegna bygginga, þá er þetta nauðsynlegt og afar áhugavert rannsóknarverkefni. Í raun er sviðið samtengt inn á fjölmörg önnur fög, t.a.m. matvælaiðnað, flutning á vörum, rusl og endurvinnslu, einnota-ofnotkun, bílaumferðarflæði, getu fólks til að rækta garða í miðri borg eða mat á húsþökum og svölum og þar fram eftir götum. Kynnt voru 6 hópverkefni hvert með sínu sniði með hvernig hægt er að taka fyrir hverfi í Harlem og endurlífga það í gegnum stefnumótun með C02 sem drifkraft. Án þess að senda inn jarðýtur eða rífa byggingarnar sem fyrir eru. Það hefur mér alltaf þótt merkilegt hversu mismunandi arkitektaskólar eru í áherslum og hve mismunandi stúdíóin eru eftir kennurum og nemendum. Til marks um fjölbreytni viðfangsefna var í sal við hliðina verið að dæma verkefni sem eru skýjakljúfar, þar til gerðum húsalíkönum um 2m háum. Mjög kúl.
Í gær var ég svo í New Jersey Institute of Technology þar sem arkitektanemendur vörðu lokaverkefni sitt í skipulagi á húsnæðisblokkum. Sum verkefnin voru nokkuð smekkleg en það virðist há sumum nemendum að hafa aldrei búið í borg (heldur úthverfum) svo þeir hreinlega vita ekki einföldustu hluti með hvernig hverfi virka eða hvað gata er. Það er klárlega munur á þessum tveimur skólum, Pratt í mun betri kaliber, umræðan skilvirkari og beittari.
Var svo fyrir um 1-2 mánuðum í arkitektadeild NJIT í krít þar sem kynnt voru arkitektúrverkefni. Deildin hafði skömmu áður svona rétt sloppið í gegnum NCARB samþykkt og deildarstjórinn fékk þá snilldarhugmynd að banna sköpunargáfur (mín túlkun), venti kvæði síns skóla í kross og það eina sem maður sá voru teikningar af fermetrastærðum, ekki snefill af hönnun. Það er mikilvægt mál og krítísk að bregðast við með réttum viðbrögðum, ekki að skemma deildina með panik.
Allavega er krefjandi og gefandi að vera í þessum prófdómum.
Flokkur: Menning og listir | Breytt 16.12.2007 kl. 15:05 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
arh
-
robertb
-
nimbus
-
hehau
-
soley
-
gmaria
-
tulugaq
-
andreaolafs
-
katanesdyrid
-
ingibjorgelsa
-
skodunmin
-
varmarsamtokin
-
joiragnars
-
lextalionis
-
gbo
-
malacai
-
floyde
-
skarfur
-
reykur
-
fsfi
-
gudmunduroli
-
hallgrimurg
-
veravakandi
-
drum
-
hlekkur
-
haddih
-
prakkarinn
-
kreppukallinn
-
krilli
-
liljabolla
-
magnusthor
-
manisvans
-
sgj
-
huldumenn
-
svarthamar
-
palmig
-
pjetur
-
pjeturstefans
-
ransu
-
raudurvettvangur
-
robertthorh
-
runarsv
-
lovelikeblood
-
sivvaeysteinsa
-
fia
-
stefans
-
stjornuskodun
-
midborg
-
sveinnolafsson
-
torfusamtokin
-
vest1
-
steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.