18.10.2007 | 18:44
Ný greiðsla til Macintosh?
Er "tímavélin" ekki bara enn eitt stikkorð sölumanna? Svona eins og það sé að koma út ný spennandi kvikmynd! Er tímavélin eitthvað svipað og Windows Restore, sem hefur verið í gangi í áraraðir? Eða er verið að meina tímann sem fer í að stilla og uppfæra þessar tölvur?
Af hverju er annars verið að búa til nýtt stýrikerfi, var þetta gamla svona gallað? Eða var þetta gamla kerfi bara óklárað, eins og mikið af þessum pródúktum eru? Af hverju þarf maður að borga mörgum sinnum fyrir sama hlutinn?
Allavega fékk ég mér Mac í vor eftir áratuga monopoly PC. Og söknuð vegna þess að ég átti mac fyrstu 5 tölvuárin. Langt síðan og hélt lífið yrði einfaldara. Ég er núna aftur á gamla Windows af því það er bara í almennri notkun sveigjanlegra og hraðskreiðara. Notaði Makkann voða mikið fyrst í vor, en í dag nota ég hann 15% af tímanum, PC bara aðgengilegra. Svo eru Adobe Mac-pakkinn með leiðindagöllum sem eru furðulega mikil risaeðla, Windows-inn bara margfalt hraðskreiðari þó hann sé ljótari.
Makkinn er betri í kvikmyndagerð og layout vinnu. Og auðvitað fer þetta svoldið eftir því hvað maður hefur vanið sig á að nota.
Ný útgáfa Mac OS X væntanleg í mánuðinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Tölvur og tækni | Breytt 19.10.2007 kl. 04:53 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- arh
- robertb
- nimbus
- hehau
- soley
- gmaria
- tulugaq
- andreaolafs
- katanesdyrid
- ingibjorgelsa
- skodunmin
- varmarsamtokin
- joiragnars
- lextalionis
- gbo
- malacai
- floyde
- skarfur
- reykur
- fsfi
- gudmunduroli
- hallgrimurg
- veravakandi
- drum
- hlekkur
- haddih
- prakkarinn
- kreppukallinn
- krilli
- liljabolla
- magnusthor
- manisvans
- sgj
- huldumenn
- svarthamar
- palmig
- pjetur
- pjeturstefans
- ransu
- raudurvettvangur
- robertthorh
- runarsv
- lovelikeblood
- sivvaeysteinsa
- fia
- stefans
- stjornuskodun
- midborg
- sveinnolafsson
- torfusamtokin
- vest1
- steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world
Athugasemdir
Svona for the record að þá er MacOS X 10.4 orðið tveggja og hálfs árs gamalt stýrikerfi. Það er kannski ekki gamalt í Windows heiminum en Macintosh notendur eru öðru vanir, hvort sem það er gott eða slæmt. Persónulega sé ég ekkert að þróun, ég sleppi þá bara að nota tímavélina ef ég kýs það.
Þetta með að hafa fengið sér makka hljómar meira eins og PC maður sem keypti sér makka með það markmið að gefa honum ekki einusinni séns. Það er kannski ekki alveg að marka þetta komandi frá mér þar sem ég er hönnuður en ég sé ekki hvernig nokkur maður hafi nokkuð á móti því að nota stýrikerfi án vírusa og spyware rusls á tölvunni sinni alla daga, hönnuður eða ekki hönnuður.
Ég er alls ekki Apple fanatic, ekki misskilja mig. Fólk á rétt á að nota það sem það vill, sumir þurfa einmitt PC til að bara geta gert vinnuna sína.
En þessi athugasemd hjá þér hljómar af hroka og fordómum í garð Apple og það líð ég bara ekki :)
Jonni (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 19:18
Það besta við nýja MacOs-ið er að það býður uppá Dual-Boot fyrir Windows enda allir nýjir makkar með intel örgjörva. Þannig geta makkanotendur sýnt sig á kaffihúsunum og þóst vera svaka bóhemar...og svo notað Windows heima hjá sér þegar þeir þurfa að koma einhverju í verk...þar sem enginn sér til þeirra!
Róbert Björnsson, 18.10.2007 kl. 20:52
Já þú meinar það Róbert Reyndar tek ég Makkann á kaffihús ef ég hef tíma til að bíða eftir einhverju. Hann er alveg ágætur sko. En af hverju ætti maður að þurfa Windows ef maður er með mac á annað borð?
Minn 5. ára PC startar Photoshop CS á 10 sek
Glæný Mac Powerbook startar Photoshop CS á 40 sek
Svo mikið fyrir fordóma : )
Kannski þarf maður að fá Jonna í heimsókn til að koma og stilla eitthvað? Það getur verið erfitt að vera bissý guy þegar Photoshop þarf 40 sek til að opnast. Eiginlega er það svona 1995 hraði :-) En hvað veit ég. Allavega fór ég á mac síðurnar til að reyna að finna út úr þessu og var sagt að ég væri bara með fordóma eitthvað og engin lausn fannst á þessum vanda. Adobe að kenna. Auðvitað segir Adobe svo eitthvað annað ef ég þekki þetta rétt.
Af hverju ætti maður annars að hafa keypt sér Makka til að gefa honum ekki séns? Furðulegt. Ég hef hannað fullt á hvort tveggja og satt að segja er Pésinn bara að mörgu leyti mun þægilegri. Og ekki hef ég fengið vírus í Windows nema einu sinni 2002, enda var ég ekki með vírusvörn þá. Þekki heldur ekki þetta spyware dót, fer nebbla ekkert á klámsíður *hóst.* Eða þannig sko. Er bara hættur að nenna að stilla tölvur.
Ólafur Þórðarson, 18.10.2007 kl. 23:50
Það er merki um kyndeifð að kíkja ekki af og til á klámið
Örn (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 11:12
fáðu þér bara Linux óli minn, alveg þrælstabílt og nútímalegt. Ubuntu eru núna fremstir í flokki
Örn Orrason (IP-tala skráð) 20.10.2007 kl. 01:18
er samála örn ,ubuntu 7.10 er nú fremstir og með hraðasta linuxinn og með compiz fusion sem er allveg geggjað hvað er hægt að gera núna í ubuntu ;) hér er smá myndband sem sinir það http://blog.central.is/protonus/index.php?page=comments&id=3344437#co
protonus (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 11:11
Seinagangur Adope pakkans gæti komið til vegna þess að þú hafir keypt intel vél áður en "Universal" útgáfa af hugbúnaðnum kom út.
Þá er hugbúnaðurinn keyrður í gegnum þýðingarvél sem að gerir intel útgáfunni af OS X fært að keyra kóða sem var settur saman fyrir power pc örgjörvan.
Það er svo álitamál hvort hægt sé að kenna Adope eða Apple um málið. Apple að kenna fyrir að skipta yfir í nýtt umhverfi og Adope að kenna fyrir að vera ekki fljótir að koma með nýja útgáfu.
Varðandi Time Machine, þá myndi ég segja að það sé nytsamasta afritunarlausn sem ég hef séð. Vandinn við backup lausnir er að þær notar fáir í alvörunni vegna þess að viðmótið er svo krefjandi. Búa til backup set, setja tímasetningar fyrir afritanir. Þú getur rétt ímyndað þér að við sem nennum ekki að verja heilu kvöldi í að stilla afritunarskema erum löngu búin að gefast upp. Time Machine, er preconfiggað og þarfnast bara diskpláss og lætur þig svo í friði (samkvæmt Apple).
Viðmótið fyrir að finna eyddar skrár er síðan algerlega innvinklað inn í kerfið þannig að þú getur alltaf "farið aftur í tímann" og séð eldra ástand möppunar sem þú ert að skoða sem dæmi.
Það sem verður athyglisvet að sjá er hvort það verði í framtíðinni hægt að nota Time Machine með veflægum hýsingarlausnum eins og S3 frá Amazon.
Addi (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 12:18
Já mér þótti frekar fúlt að eyða svona pening í tölvu sem á að vera súpersérsniðin fyrir Adobe pakkann og virkar svo ekki nógu hratt fyrir hann.
En svona er þessi tölvubransi; "hinum að kenna!"
Linux má skoða! Þegar ég finn tíma frá hinum tölvustillingunum skal ég skoða það að hafa 3ja kerfið, allt í einum graut
Ólafur Þórðarson, 24.10.2007 kl. 01:47
er nú bara með eitt ,þarf ekkert annað enn linux ;) ,ekkert m$ rusl í mínum tölvum ;) ,ps: m$ er microsoft
protonus (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 18:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.