11.8.2007 | 15:24
Kársnesið og baráttan við Kópavogs-kommúnistablokkirnar.
Kársnesið.
Það vildi svo til að ég fór um Kársnesið nýlega. Þetta er mjög rótgróið hverfi og eitthvað við það sem er mjög spes. Það er hægt að segja að þetta hverfi hafi töluverðann karakter, einmitt af því það er ekki hannað í einu holli og byggðist að hluta úr einhveri fátækt. Kannski er ekki að undra að það þarf hæstvirt skipulagsyfirvöld í Kópavogi til að stefna gæðum hverfisins í hættu. Einn kosturinn er einmit sá að þetta er á nesi þar sem takmörkuð umferð er um. Eins konar ágætis svefnhverfi fyrir stórreykjavíkursvæðið.
Miðað við skipulagsslysin í Kópavogi: Smáralindarumhverfið og hverfin þar í kring og að maður tali ekki um þessa tímaskekkju sem verið er að nauðga Fossvogsdal með (As we speak) þá er ekki hægt að búast við miklu frá Kópavogsyfirvöldum með að bæta eitt eða neitt.
Keyrði nýlega í Smárahverfið og það lá við að manni yrði illt í maganum. Þetta kaldranalega hraðbrautarhverfi er alger hryllingur. Ég hugsaði með mér, "Hvar er fólkið eiginlega?" Svo á einhverjum staurnum við eitt hraðbrautardraslið mátti greina grænt skilti þar sem hraðbrautin hafði verið verðlaunuð sem einhver fyrirmyndargata(!) Ef einhver er að reyna að vera fyndinn, þá hefur það tekist vel. Ég reyndi að taka mynd af skiltinu en það var ekki hægt að stoppa bílinn og umferðin of hröð. Skilaboðin: Þú ert óvelkominn í þetta hverfi. Þetta verðlaunahverfi.
Svo þegar keyrt er niður Fossvogdalinn blasir við annað umhverfisslys þar sem verið er að byggja meira af svona ömurlegum Kópavogs-kommúnistablokkum. Eða er það ekki ágætt nýyrði fyrir þessar innfluttu kommúnistablokkir? Þær voru líka vinsælar í Austur Berlín þó með minna af kjúttí beygjuhornum og svoleis glans-æði. Kannski er meira glansandi drasl utanáhangandi á þessum í hverfinu vestan við Kringlumýrarbrautina. Sama draslið.
Hvers vegna þarf að gera stóra höfn í Kópavogi? Eru þetta ekki bara skemmdir á annars ágætu nesi? Þarna á að liggja um stígur til útivistar, ekki enn eitt iðnaðarhverfið með fleiri Kópavogs-kommúnistablokkum.
Þar fyrir utan væri ágætt ef einhver getur bent mér á hvar ég kemst í skrifaða lýsingu af Kársnesinu um og eftir seinni heimsstyrjöld. Kveðja Ólafur
Átök um skipulag Kársness í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Skipulagsmál | Breytt 16.8.2007 kl. 04:08 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- arh
- robertb
- nimbus
- hehau
- soley
- gmaria
- tulugaq
- andreaolafs
- katanesdyrid
- ingibjorgelsa
- skodunmin
- varmarsamtokin
- joiragnars
- lextalionis
- gbo
- malacai
- floyde
- skarfur
- reykur
- fsfi
- gudmunduroli
- hallgrimurg
- veravakandi
- drum
- hlekkur
- haddih
- prakkarinn
- kreppukallinn
- krilli
- liljabolla
- magnusthor
- manisvans
- sgj
- huldumenn
- svarthamar
- palmig
- pjetur
- pjeturstefans
- ransu
- raudurvettvangur
- robertthorh
- runarsv
- lovelikeblood
- sivvaeysteinsa
- fia
- stefans
- stjornuskodun
- midborg
- sveinnolafsson
- torfusamtokin
- vest1
- steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world
Athugasemdir
Skólabókardæmi um fordóma.
Algjört rugl að landfyllingin sé eitthvað að eyðileggja nesið, þetta hefur ekki verið neitt útivistarsvæði síðustu 10 árin amk. Á svæðinu sem verið er að leggja undir þetta sem verið er að mótmæla núna hefur, eftir því sem ég man, aldrei verið göngustígur, eða yfir höfuð nothæf gangstétt. Þetta var orðið mjög óaðlaðandi svæði sem þurfti að laga til. Fólk getur haft mismunandi skoðanir um hvað á að vera þarna en mér finnst frekar fyndið að kenna uppbygginguna í nú hægrisinnaða bænum Kópavogi kommúnista- eitthvað
Þessi mynd er af Fífuhvammsvegi, sem er aðal bíla-æðin í gegnum Smárahverfið og annar umferðinni frá Smáralind, Smáranum, Lindahverfi, Salahverfi o.s.frv. Þetta er eins og að keyra eftir Miklubrautinni í Reykjavík og segja "Fussumsvei, þetta er bara hraðbrautabær, hvar er allt fólkið". Auðvitað þarf samgöngur fyrir allt fólkið og einkabíllinn er samgöngutæki nútímans. Prófaðu næst að keyra inn í íbúðagöturnar ef þú ætlar að fara að dæma íbúðahverfið.
Guðmundur Ólafsson (IP-tala skráð) 12.8.2007 kl. 02:56
Þú ert bara alveg ólæknandi kommúnisti Guðmundur minn.
Sennilega ertu félagi í einhverjum afturhaldskommatittsflokki eins og snillingurinn Davíð benti á varðandi Össur forðum á Alþingi.
Árni Gunnarsson, 12.8.2007 kl. 18:01
Sammála því að það er eitthvað í þessu sem virðist gleymast. Umhverfi, sem kallar á mannlíf og er sniðið utan um mannlegar þarfir. Allavega vildi ég ekki ala börn upp í þessum vinnuaflsgeymslum. Það virðist algerlega gleymast í skipulagi Kópavogsbæjar að gefa bænum hjarta, torg, kjarna, sem gerir bæ að bæ. Ég hélt um tíma að það stæði til þarna á kópavogsbrúnni að búa til torg eða kjarna, sem hengdi saman þennan bæ en viti menn, þetta verðmæta land var notað undir forljóta steinkumbalda til að hýsa banka og annað því líkt. Kópavogur verður ekki bær, fyrr en hann fær hjarta.
Jón Steinar Ragnarsson, 13.8.2007 kl. 12:12
Orðið "fordómar" notast stundum sem stikkorð og hér er það hugsanlega tilraun til að dreifa umræðuefninu yfir á skrifanda frekar en umræðuefnið.
Það þykir mér svakalega fyndið að jafna verðlauna"götunni" við Miklubraut. Miklubrautin á sér reyndar eitt götuhorn sem gæti kannski virkað einhvern tímann, ólíkt þessum milli-byggða-vegi með græna verðlaunaskiltinu en hvort tveggja eru þó bara millibæjarvegir eða þéttbýlisskeri eða leiðinda hraðbraut fyrir mestann partinn. Sjáið hvernig íbúabyggðin snýr baki í veginn með grasrana. Svona hraðbrautardrasl er alls ekki nauðsyn þess að flytja fólk á milli, ólíkt því sem flestir halda fram. En þetta system er sannarlega byggt á löngu úreltum borgarskipulagshugmyndum frá því á fyrri hluta 20. aldar og ákveðnir hópar græða vel á þeim. Brúmm brúmm. Það eru líka ákveðnar þjóðfélagsbreytingar sem hafa orðið vegna þessa hraðbrautarfyrirkomulags. Íbúar löngu búnir að ánetjast þessu og skipulagið orðið fast í svaðinu ef svo má að orði komast. Síðan 195o- og eitthvað.
Það er nú ekki alveg að ástæðulausu að maður kalli þetta kommúnista-eitthvað. Það er frekar létt að sjá hvað er sambærilegt, félagar.
Annars fór ég nú og kíkti inn í íbúðahverfin aftan við grasranana þarna í Kópavogsdalnum, verslunar"hverfin" og þessi vinnuhverfi uppi á hálsinum syðst. Mér þykir ekki mikið til koma, satt að segja, þetta er ósköp venjulegt sundurslitið úthverfastöff með einhverju ágætu litlu inni á milli slitið úr samhengi við allt annað. Ég hef kannski misst af þessu æðislega? Svo er þetta fansí kaldranalega shopping mall og allt í einum stórum graut bílastæða og milliborgavega. Ef fólk vill búa svona... tjah, en ég er bara ekki viss um að það séu einu sinni valkostir. Hvað þá umræða, sumir íbúar fara jafnvel í fýlu ef verið er að gagnrýna skipulagið þar sem þeir búa. Jafnvel þó skipulagið komi slíkum persónulegum MBY isma ekkert við. Valfrelsið kannski ekki til í raun. Tökum sem dæmi ef þú vilt ekki eiga bíl, hvers konar valkosti erum við þá að ræða?
Þessar 3 rauðleitu skrifstofublokkir þarna rétt norðan við Garðabæ eru líklegast með ljótustu byggingum Íslandssögunnar. Viðurkenni fúslega að ég hef unnið tímabundið við jafnvel enn ljótari byggingar. Fyrir pening að sjálfsögðu það þýðir þó ekki að ég setji tape fyrir kjaftinn...
Vonandi byggja þeir ekki svoleis þarna yst á Kársnesinu.
Sammála Jóni, brúin yfir gjánna hefði átt að vera eitthvað annað. Það virkar þá eins og skipulagstappi á brúnni sem sameina átti vestur og austur. Í staðinn fyrir brú kom "bankaútibrú" ef ég er að skilja þetta rétt.
Ólafur Þórðarson, 13.8.2007 kl. 22:15
Orðið fordómar er notað yfir það þegar fólk dæmir eitthvað áður en það er búið að kynna sér það vel. Það að mynda sér skoðun á heilu hverfi eftir að haf keyrt í gegnum það eftir "hraðbraut" sem er með risastóra hljóðvarnargarða sitthvorumegin hljóta að geta talist sem fordómar. (eins og það leit út fyrir að þú hefðir gert)
Ég er alveg sammála þér að þessi verslunarhús fyrir ofan Smáralind eru mjög undarleg og leiðinleg, og blokkirnar efst eru ekkert augnayndi þótt þær séu nú ekki með ljótustu húsum landsins. Það er líka stórt land inní miðju þessa verslunar- og skrifstofuhverfis sem er ófrágengið. Þetta svæði er langt frá því að vera einkennandi fyrir hverfið.
Ég hef aldrei búið þarna en gæti vel hugsað mér það. Mjög aðlaðandi, rólegt og þægilegt íbúahverfi á góðum stað, sérstaklega í brekkunni fyrir ofan Fífuhvammsveginn. Skemmir ekki fyrir að það er stutt í allar áttir eins og einhver sagði. Ef þú villt ekki eiga bíl er einn stærsti verslunarkjarni Íslands þarna við hliðina.
Valfrelsi þýðir ekki að fólk eigi að geta valið milli hluta án þess að taka afleiðingum valsins.
Guðmundur Ólafsson (IP-tala skráð) 13.8.2007 kl. 23:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.