9.5.2007 | 03:28
New York hjólatúrar, meðfram Hudson ánni
Jæja nú er sumarið komið og hjólreiðatúrarnir farnir að taka á sig aðra mynd. Þessi 15km leið meðfram Hudson ánni hefur með hækkandi sól breyzt úr grámyglulegum vetrarbúning í græna laufaslæðu Riverside Park. Það er alltaf afar áhugavert að hjóla héðan úr meinþéttu fjármálahverfinu og þangað sem grænu svæðin víkka. Maður fer úr mannhafi stressaðra braskara að ýta hvorum öðrum úr vegi, upp í grænann garð þar sem fólk er rólegt með myndavélar að mynda einhver dýr eða fugla, situr í sólinni og les bækur eða spilar fótbolta. Dóttir mín Lilja er í kerru aftan í hjólinu og fær að fara í 1-2 tíma rólótörn í flóðhestaróló (hippóróló eins og við köllum hann) við 92. götu. Þar er neBBlega hægt að skríða inn um munninn á flóðhestastyttu og koma svo út um... magann.
Örstutt klippa af okkur að hjóla http://youtube.com/watch?v=i7tUnQLqTpc
Margt ber við á leiðinni, sem liggur í norð-norð-austur. Fyrst förum við í fjármálahverfið, þá gegnum Battery Park City, hverfi byggt á 9. áratug sem er með mjög vel heppnuðum og góðum margnota stíg meðfram ánni. Þar er m.a. Winter Garden, sem er stórt glerhýsi og kemur sér vel á köldum dögum og til tónleikahalda.
Skammt norðan við var til margra ára bryggja þar sem hægt var að leigja hjól, fara í minigolf og fá sér snarl á útigrilli ofl. Fólk bjó þar í bát sínum sem það leigði út í einkasamkvæmi, allt mjög óformlegt. Bryggjan var rifin sl. sumar af verktökum á samning við borgina. Þeir stoppuðu svo verkið til að heimta meiri peninga. Óljóst er um framtíð bryggjunnar, því nú er búið að rífa hana með manni og mús og fjárlög eitt spurningamerki.
Rétt þar fyrir norðan er Canal Street þar sem Laurie Anderson er með stúdíó með útsýni yfir Hudon ána. Aðeins ofar eru nýlegár hvítar glerblokkir hannaðar af Richard Meier arkitekt, ekki endilega arkitektúrsnilld, en einfaldar blokkir fyrir vel stæða með einni íbúð per hæð.
Ótal staðir eru á leiðinni þar sem hægt er að fjalla um. Maður hjólar m.a. fram hjá afgirtri byggingu við 15. götu, fyrrum bílastæðahúsi þar sem lögreglan hélt eitthvað 2000 manns í gíslingu vegna pólitískra skoðana árið 2004. Skammt fyrir norðan eru svo Chelsea Piers við 23. götu, áhugaverður staður með æfingasvæði kylfinga og bátahöfnum. Borgarmegin er nýrisin bygging eftir Frank Gehry, skemmtileg skúlptúræfing, en ekki endilega góður borgarstrúktúr. Tók eftir því meðan verið var að byggja hana að súlurnar eru steyptar skakkar til að fylgja eftir hallandi hliðum hússins. Rétt norðan við Chelsea Piers var veitingastaður á bryggju á sumrin. Þar var hægt að hjóla beint inn og að borði og setjast niður án formlegheita. Þar var líka hægt að leigja kajaka til að sigla í ánni. Að sjálfsögðu er nýbúið að rífa bryggjuna með veitingastað og alles, öll svona grasrótarfyrirbæri hverfa í gin einkavæðingarbrasksins, sem lofar borginni gulli og grænum skógum en stoppaði verkið strax eftir niðurrifið til að heimta meiri pening en samið var um. Þar fyrir norðan tekur við þyrlulendingarsvæði, flugmóðuskip og mörg smærri græn svæði.
Sífelldur straumur fólks að hlaupa, ganga, á línuskautum, reiðhjólum fer upp og niður eftir öllum stígunum. Helst ber að vara sig á túristunum, sem eiga til að labba út á hjólastígana, hægt og stefnulaust eins og fólkið í Zombie myndunum. Sumir nota stíginn til að þjálfa sig í hjólakeppnir, þeir þekkjast úr á hjólunum, gallanum og hraðanum.
Við 59 götu breytist leiðin mikið, þar sem breiðgatan sjálf breytist í hraðbraut sem fer upp á brúarsystem. Rét þar á undan er smá garður með ágætis risa-flöskuskúlptúr sem vert er að skoða, hægt er að kíkja inn í hann. Hjólreiðastígurinn fer svo undir hraðbrautina á 1-2km kafla og eru m.a. boltavellir þar, þá með þaki. Þetta er mikill strúktúr sem veitir gott skjól í rigningu og ekki verra að lítill opinn bar er þarna við stíginn á sumrin, þar sem hægt er að fá sér einn kaldann. Mér skilst að Donald Trump hafi átt þátt í þessum hluta og skál fyrir honum. Hægt er að hjóla beint í barinn og drekka einn stífann án þess að einu sinni fara af hjólinu. Þetta kallast þjónusta, en hana notfæri ég mér ekki með Lilju í eftirdragi að sjálfsögðu. Fæ mér í mesta falli djöfladrykkinn Coca Cola. Þá er haldið áfram norð-austur og m.a. farið framhjá smábátahöfn þar sem húsa- og lystibátar eru. Frekar farið að eldast og í niðurníðslu. Þá beygir stígurinn inn að borginni, fer inn undir hraðbrautina og kemur upp í hinn eiginlega Riverside Park. Þetta er frábær upplifun í rými, að fara frá opnum árbakkanum í garðinn með sínum 100-150 ára gömlu trjám. Yfir höfði manns er hæfilega þétt laufþak og hér breytist andrúmsloftið. Grænt svæði er hæfilega breitt og teygir sig nokkra kílómetra norður eftir ánni. Maður tekur ekki eftir hraðbrautinni sem er þar við. Minnir mig á að þetta svæði var hannað á bilinu ca 1870-1930, síðasta hollið þegar hraðbrautir voru fyrst að koma á sviðið. Þessi flétta hraðbrautar og útivistar er einstaklega vel heppnuð, gerólíkt eyðieyjum flestra hraðbrauta. Annað áhugavert er að lestargöng eru undir miðju garðsins, svo þrátt fyrir kyrrðina er mikið um að vera og svæðið þrælskipulagt án þess að ókunnugir tækju eftir.
Við 96 stræti breytist garðurinn og verður enn rólegri, tvískiptur með sparkvöllum nær ánni og grænu svæði ofantil. Hér bjó ég við 116 götu þegar ég var í Columbia Háskóla á árunum 1987-1990. Joggaði á sínum tíma á svæðinu milli 96. og 119. götu. Minnistæð eru ótal partý frá þessum árum, þegar lífið snerist um mikla einbeitingu að námi og að djamma stíft þess á milli. Í dag fer ég oftast á hjólinu að þessum punkti (119 götu) og sný við og held aftur suður á bóginn.
Og þá er hjólaferðinni lokið, samtals um 30 km leið. Tek fram að hér er afar mörgu sleppt úr. Hjólað eins oft og tími og veður leyfir. Skál.
Færsluflokkar
- Bloggar
- Einkavæðing
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Fréttablogg
- Heilbrigðismál
- Hjólablogg
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lilja Anna Ólafsdóttir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Manhattan
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Skipulagsmál
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Nýjustu færslur
- Spítali í miðri borg.
- Nefnifallssýki.
- Patterson Field, litli flugvöllurinn í Keflavík
- Hlemmur: Miðpunktur í Reykjavík.
- Lausnin felst í minnkuðum hraða.
- Og svo er það... RÚV vefsíðan
- Skrýtin frétt: Umskurðarherferð í Swazilandi.
- Dómsmál
- Dow Jones lækkar.
- Skattgreiðslur auðkýfinga.
- Það áhugaverðasta er...
- Algrími, orðskrípi?
- Eðlilegar sektir fyrir bíla-yfirgang.
- 1+1=1
- 1300 ár.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- arh
- robertb
- nimbus
- hehau
- soley
- gmaria
- tulugaq
- andreaolafs
- katanesdyrid
- ingibjorgelsa
- skodunmin
- varmarsamtokin
- joiragnars
- lextalionis
- gbo
- malacai
- floyde
- skarfur
- reykur
- fsfi
- gudmunduroli
- hallgrimurg
- veravakandi
- drum
- hlekkur
- haddih
- prakkarinn
- kreppukallinn
- krilli
- liljabolla
- magnusthor
- manisvans
- sgj
- huldumenn
- svarthamar
- palmig
- pjetur
- pjeturstefans
- ransu
- raudurvettvangur
- robertthorh
- runarsv
- lovelikeblood
- sivvaeysteinsa
- fia
- stefans
- stjornuskodun
- midborg
- sveinnolafsson
- torfusamtokin
- vest1
- steinibriem
Tenglar
MIKILVÆGIR TENGLAR
Gegnumgangur-Passage
- Á FACEBOOK
- Skrýmsli í ráðhúsinu! Sýning 2007
- EILÍFÐARDRAUMURINN Listaverk mitt nú í smíðum á Seyðisfirði
- Gegnumgangur nýja bókin mín Nýja bókin um verk mín
- Miðbær á Akureyri Hugmynd mín að nýjum miðbæ á Akureyri
- EGGIN, rit um stjórnmál og samfélag.
Bækur
Lesnar á allra síðustu árum (hálflesið og ýmislegt drasl undanskilið)
-
Ágætt samansafn, góðir textar, verkin svona þokkaleg.
: Sanctuaries-The last works of John Hejduk -
Er að lesa, merkilegt hingað til. Ekki fyrir áhangendur Reaganismans, gæti skemmt brothætta heilastarfsemi í einstrengislegum einkavæðingarsinnum.
: The Disposable American -
Saga olíuvinnslu- og sölu. Frábær doðrantur um einn af mikilvægari hliðargöngum mannkynssögunnar 1860-1990. Þræðir vel inn í áberandi og minna áberandi viðburði á þessu tímabili. Meira "neutral" í málflutningi fyrri partinn en þann seinni. Samt ágætt rit fyrir kommúniskt-sjúka til að skilja mikilvægi markaðsins og hlutverk fyrirtækja almennt. Frábær bók.
: The Prize -
(ISBN: 9979-66-141-0)
Afar ítarleg nálgun á ýmis viðfangsefni nær og fjær í tíma og rúmi. Stefán flokkar bókina í skoðun á hinu sanna, hinu góða, hið fagra og að auki með viðbót sem tekur sértaklega fyrir gildi íslenskrar tungu. Stefán dregur saman efni víða að, frá Platón til Bob Dylan og er reyndar líka mjög gott heimildasafn fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa bók sem er gluggi inn í hinn víða heim heimspekinnar.
: Ástarspekt -greinar um heimspeki -
(ISBN: 0-674-55775-1)
Tekur skýrmerkilega á viðfangsefninu og hefur góða stjórn á þeim vinkli sem hann setur fram. Fer kerfisbundið í gegnum glansmyndirnar og hvað í raun bjó að baki þeim.
: The meaning of Hitler -
Snilldarbók sem dregur fram rannsóknir með hvað Ameríkuindíánar hafa í raun búið lengi í álfunni: Voru farnir að byggja samfélög fyrir tíma Mesópótamíu. Mæli sterklega með þessari.
: 1491 -
Þessi bók er frá 1968 og ég fann fyrir rúmum áratug orginal útgáfuna, notað eintak. Var að klára hana aftur. Titillinn að vísu barn síns tíma og hefði mátt vera annar, t.d. superhighway and big business fraud-eitthvað. Einkavæðing á massívum skala. Uppbygging hraðbrautarkerfis Bandaríkjanna uppúr seinni heimsstyrjöld og útrýming almenningssamgangna. Af sömu aðilum. "Fjárfestum." Sannarlega er bíllinn Monopoly og ekki það frjálsræði sem auglýst er. Þessi bók er frekar þurr lestrar enda endalausar blaðagreina- og fundatilvitnanir. En góð er hún og gott uppflettirit ef verið er að velta þessum málum fyrir sér. Spilling einkavæðingarinnar í mínum ástkæru Bandaríkjum á fullu þegar Íslendingar voru á öfugri keyrslu.
: Superhighway-Superhoax -
Einstaklega áhugaverð lesning. Sýnir hvernig vísindarannsóknir eru háðar duttlungum vísindamanna og er í stöðugri þróun.
: 1491 -
Bjóst við meiru. Sumt er alveg ágætt en höfundur fer oft út í einhverja la di da sálma sem þjást af endurtekningarsýki og fullyrðingum sem ekki standast fyrir alla.
: The Architecture of Happiness - : Bréf til Maríu
- : America Besieged
-
Mæli sterklega með þessari, nokkuð ítarleg lýsing á atburðarásum sem eru flestum hulin. Áhrifarík og varpar einhverju ljósi á stöðu mála í dag.
: All The Shah´s Men-An American Coup and the Roots of Middle East Terror - : In Search Of Fatima
- : JIHAD-The Rise of Militant Islam in Central Asia
-
Þunnt. Ekki þess virði að lesa. Gitlin hefur gert góða hluti en þetta er tannlaust kvikyndi og gangslaust í að skilja pressuna.
: Media Unlimited -
Þrátt fyrir gott approach í heimildarsöfnun þykir mér bókin leka svoldið þeirri staðreynd að kannski þurfi höfundurinn ekki að vinna og sé þess vegna með svoldið undarleg gleraugu fyrir lesandann að skoða efnið í gegnum. Ýmsar áhugaverðar upplýsingar koma þarna í gegn, samt sem áður.
: Nickel and Dimed-On (Not) Getting By in America -
Þessi bók er afar áhugaverð því hún snertir á svo mörgu sem er í gangi hvað varðar svindl og svínarí. Hún er helst til "höll undir Demókrata" en ætti að vera hlutlausari greining á þessum vandamálum.
: The Cheating Culture -
Borgarskipulag, einn góður og ítarlegur flötur sem allir ættu að lesa.
: The Death And Life of Great American Cities - : The Catcher in The Rye
- : Age of Reason
- : The Republic
- : How To Read A Book
- : Alkemistinn
- : Manifesto For a New World Order
- : The Fabric of Reality
- : The Order of Things
-
Gríðarlega fallega skrifuð bók. Gríp í hana (Enska þýðingu) við og við og það er eins og maður droppi inn í lifandi heim hennar á augabragði.
: The Conquest of Plassans - : The Web Of Life
-
Frjálshyggjumaður: Lestu þessa bók tvisvar. Sláandi efni um raunveruleika stórs hluta Ameríkana. Þessa hluta sem ekki er samdauna Hollywoodsjóinu. Gamli frasinn um "Land tækifæranna" fær aðra merkingu.
: The Working Poor-Invisible in America - : The GOD Delusion
-
Afar áhugaverð bók, skrifuð af blaðamanni sem hefur dekkað fullt af stríðum. Mæli sterklega með henni, sérstaklega ef þú heldur að Ísland eigi að stofna her.
: What Every Person Should Know About War - : WAR is a force that gives us meaning
- : Crime Control as Industry
-
Óheyrilega leiðinleg bók, en mikilvæg sem pólitískt bakbein. Hér koma fram upplýsingar um hvað var vitað fyrir þessa klikkuðu inn/árás á Írak sem hefur breytt landinu í helvíti. Saga Íraks rekin meira og minna með tilliti til Persaflóastríðs 1991 og síðan.
: Iraq Confidential - : Poverty in America
- : The Singing Life of Birds
-
Mjög góð, gott innlegg í þessa þjóðfélagsvöltun sem er að eiga sér stað í gegnum nafnlaus risaapparöt.
: Fast Food Nation - : The Basis of Morality
-
Bók sem tekur fyrir skólamál í USA. Ójöfnuð og opnar augu manna við hvernig kerfisgallar viðhalda rasisma og fordómafullum forsendum. Vara við að þessi lesning er ekki fyrir hvern sem er og er frekar heavy. En góð er hún og fræðandi um hvað ójöfnuður í aðgengi skóla getur þýtt.
: Savage Inequalities -
Las þessa fljótlega eftir að hún kom út og fannst hún þá frekar scary. Hún batnar með aldrinum og holl lesning ef menn vilja skilja meira í heimspólitíkinni. Hana mætti lesa með hliðsjón af bók sem skýrir pólitíkina út frá stöðu Rússa, bara svona sem balans.
: The Grand Chessboard -
Að venju beittur stíll og hvetjandi til dáða. En hvort hann talar í staðreyndum eða taki sér leyfi skáldsins er oft erfitt að sjá án þess að þekkja viðfangsefnin vel.
: Dreaming War -
Þessi bók er svo illa skrifuð að hún kemst ekki framhjá "beinagrindarformatinu." Ég þyrfti að skrifa heila bók til að útskýra hvers vegna þessi bók er svona hálfvitaleg eins og raun ber vitni. Aðra bók um af hverju vanvitar lesa og taka TRÚanlega. Sannarlega ein af vitlausustu bókum sem ég hef lesið. Hlátursköll á hverri blaðsíðu. Uppfull af fullyrðingum sem standast ekki raunveruleikann og gleyma hinum einföldustu mannlegum þáttum. Ég giska á að þetta sé bara venjuleg áróðursbók, tilkostuð af einhverjum bröskurum.
: Economics in One Lesson -
Þessi bók kemur mér fyrir sjónir sem áróður greiddur af einhverjum sem græða á svona útgáfum.
: A Long Short War - : Rogue States
-
: Against all enemies -
Afar áhugaverð bók. Lestu hana.
: Nuremberg Diary -
Afar áhugaverðar póetískar vangaveltur um ýmis þjóðþrifamál og hluti sem oft eru afgreiddir billega.
: Upside Down: A primer for the looking-glass world
Athugasemdir
Góður rúntur...eru þeir búnir að opna USS Intrepid safnið aftur? Skipið var í slipp þegar ég ætlaði að kíkja um borð í fyrra.
Það er ekki eins mikið að sjá hérna upp með Mississippi ánni...en maður þarf þó ekki að horfa á New Jersey hinum megin árbakkans!
Róbert Björnsson, 9.5.2007 kl. 03:59
Mér skilst það sé í slipp fram á næsta ár. Veit ekki hvar allar rellurnar eru sem voru á dekkinu, m.a. U2 vél. Tékka á því í næsta túr!
Ólafur Þórðarson, 9.5.2007 kl. 04:19
Aukahjól á ég, Örn. Var að koma ofanfrá, steikjandi hiti sól og gott að vera til.
Ólafur Þórðarson, 10.5.2007 kl. 03:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.