Glæpamenn.

Sorglegt að lesa um hvernig sumir menn haga sér. Nú er mér ekki kunnugt um sérstök málsatvik í þessu máli.

Hitt er enn sorglegra að það er eins sé og fullt af mönnum sem átta sig ekki á hvað þeir eru að gera þegar þeir "lemja einhvern" og halda að þeir séu voða menn. En afleiðingarnar eru margvíslegar:

1) Að stofna lífi og velferð annara í hættu með mögulegri æfilangri erfiðri örkumlun eða dauða.

2) Að gera sínum nánustu ljótann grikk og valda mikilli angist, andlegu álagi, jafnvel áfalli, meðal ættingja og vina.

3) Við fyrsta högg eru þeir sjálfir einfaldlega orðnir að glæpamönnum. Kannski er það það sem þeir stefna að í lífinu, að vera glæpamenn, en ekki verður aftur tekið það sem skeð hefur.

Afgreiðslumaðurinn í vínbúðinni hér rétt hjá á vin, samlanda, sem safnaði sér upp í ferð til Íslands. Sá var að labba á gangstétt í Reykjavík seint um nótt þegar einhver svona sér-íslenskur glæpamaður kemur upp að honum að tilefnislausu og kýlir hann. Það fossblæðir, tönn brotnar og á slysavarðsstofunni þarf að sauma 10 spor. 

Skemmtileg landkynning það!

En einhvern veginn kannast maður við þessa brenglun sem er rík í einstökum hópum. Ég, bláókunnugur fór að afsaka fyrir eitthvað sem Íslenskt asshól hafði gert þessum gesti á Íslandi. Eyðileggja ferðina og skilja eftir varanlega mynd af Íslandi sem hann örugglega hefur engann áhuga á að heimsækja aftur.

Þetta mál, að menn séu að fara um bæinn til að lemja aðra, er eitt af ofbeldisvandamálum þjóðfélagsins sem er nauðsynlegt að taka á, til jafns við nauðganir, mansal, einelti o.s.frv.

Að sjálfsögðu er þetta að mestu uppeldislegt atriði og þeir sem stunda þetta séð ranga hluti í lífinu. En það skiptir nú litlu máli fyrir þá sem eru fórnarlömbin, tala nú ekki um ef menn enda í æfilangri örorku fyrir að labba úti á götu og lenda í svona glæpamönnum.


mbl.is Réðust tveir á einn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Þessir glæpahundar skilja ekki refsidóma sem felast í sektum og skilorðsbundnu bulli. Það eina sem gæti bent þeim á hversu alvarlega þeir haga sér er að taka þá sjálfa og berja þá sundur og saman eins og þeir gerðu við drenginn. Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn er það eina sem virkar þegar verið er að eiga við heilalaus fífl.

corvus corax, 13.11.2009 kl. 14:44

2 identicon

Corvus:  Sem hlýtur að gera þig sjálfan að heilalausu fífli.

Daði (IP-tala skráð) 13.11.2009 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

 

Ólafur Þórðarson

Þetta er blogg frá Manhattan.  Þetta blogg er sambland af faglegu blaðri og ýmsum skoðunum á þjóðfélagslegum hlutum.Ég hef til langs tíma verið gagnrýnandi í arkitektúr-, hönnunar- og borgarskipulagsdeildum ýmissa ágætra háskóla á austurströnd BNA. Þar fyrir utan reyni ég að lesa bækur um ýmis samfélagsmál og tengja saman í stærri heimsmynd.

Öll skynsamleg komment eru velkomin og vel þegin og gætu fengið ítarlegt svar.

Varðandi nafnleysingjaparanoju, þá heiti ég Ólafur Þórðarson. Bú!

Allt efni er höfundarvarið, en má dreifa ef getið er hvaðan það kemur.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband